Skagamenn með flesta uppalda/Þeim gengur vel,og Val einnig,en þetta vonandi kemur hjá hinum einnig,mitt lið Fram heillum horfið!!!

Skagamenn með flesta uppalda Íþróttir | Morgunblaðið | 10.5.2012 | 8:49 Nýliðar Skagamanna tefldu fram flestum uppöldum leikmönnum í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar í knattspyrnu. Níu af þeim þrettán semÍA og Breiðablik notuðu samtals 17 uppalda leikmenn í... klæddust gula og svarta búningnum í sigurleiknum gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli á sunnudagskvöldið eru heimamenn á Akranesi. Í fyrra var það einmitt Breiðablik sem var með flesta uppalda leikmenn í fyrstu umferðinni, ellefu af fjórtán, en nú er Kópavogsliðið í öðru sæti með átta heimamenn af þeim 14 sem þátt tóku í leiknum gegn ÍA. Í byrjunarliði ÍA voru sjö heimamenn, Blikinn Kári Ársælsson, Hornfirðingurinn Ármann Smári Björnsson og svo Englendingarnir Mark Doninger og Gary Martin. Inná komu Skagamennirnir Jón Vilhelm Ákason, sem gerði sigurmarkið, og Ólafur Valur Valdimarsson. Á töflu í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag má sjá, að hlutfall uppalinna leikmanna er afar mismunandi hjá liðunum tólf í deildinni í þessari fyrstu umferð. Þar er hvert lið greint útfrá uppöldum leikmönnum, öðrum íslenskum leikmönnum og erlendum leikmönnum

„Stigalega séð er þetta mjög góð byrjun og við erum ánægðir með það,“ sagði Atli Sveinn Þórarinsson varnarmaður Vals í samtali við mbl.is að loknum 3:1 sigurleiknum gegn Selfossi. Atli sagði Valsmenn vera með rúmlega 20 leikmenn í sínum leikmannahópi og sagði það vera frábært. Hann sagði það hafa verið meiriháttar að sjá varamennina koma inn á og klára dæmið í leiknum í kvöld.

Keflvíkingar nýttu sér hverja einustu glufu í vörn Grindvíkinga og uppskáru 4:0 sigur í Grindavík í kvöld þegar leikið varí 2. umferð Pepsi-deildar karla. Eftir tíðindalitlar fyrstu mínútur kom að því að þétt vörn Grindvíkinga gerði mistök og Frans Elvarsson skoraði á 21. og 34. mínútu. Það kom félögum hans á bragðið, þeir biðu þolinmóðir og Arnór Ingvi Traustason bætti við marki fyrir hlé. Fljótlega eftir hlé skoraði Einar Orri Einarsson fjórða markið. Grindvíkingar skerptu á sókninni og fengu tvö ágæt færi undir lok leikins en ekkert mark,

Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, var svekktur með tap sinna manna gegn FH, 1:0, í Pepsi-deildinni í kvöld. Fram sótti mikið í leiknum án þess þó að skapa sér mikið af færum en liðið fékk hornspyrnur og aukaspyrnur á hættulegum stöðum. Grindavík er því með 1 stig eftir tvær umferðir en Keflvíkingar fjögur.

//////Tvær umferðir búnar og menn koma misjafnlega út,og það von,sjáum mitt lið Fram sem skaraði frámúr í vetur,en kann  ekki að skora,svona mætti lengi telja en þetta fer nú að kírast ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Skagamenn með flesta uppalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 1045670

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband