Rekstur Vinjar tryggður/allt sem vel er gert skal virða,ekki bara það slæma!!!

Rekstur Vinjar tryggður Innlent | mbl | 18.5.2012 | 15:25 Búið er að tryggja rekstur Vinjar við Hverfisgötu, sem er athvarf fyrir fólk með geðraskanir, næstu þrjú árin, eða út árið 2014. Samkomulag þess efnis var undirritað í Vin í dag. „Mér finnst þetta alveg frábært,“ segir Þórdís Rúnarsdóttir, forstöðumaður Vinjar, í samtali við mbl.is. „Þetta er ómetanleg þjónusta og ég held að það sé öllum ljóst
Velferðarráðuneytið, Reykjavíkurborg, Vinafélag Vinjar og...
að hún verður að vera fyrir hendi,“ segir hún. Hátt í 30 manns heimsækja Vin daglega og á síðasta ári jukust gestakomur frá árinu 2010. Þórdís bendir á að Vin sé ekki meðferðarstaður heldur sé tilgangur starfseminnar fyrst og fremst að rjúfa félagslega einangrun geðfatlaðra. Geðfatlaðir geti nýtt sér almennar félagsmiðstöðvar Rauði kross Íslands hefur séð um reksturinn á undanförnum árum en sl. haust tilkynnti hann að til stæði að loka athvarfinu vegna sparnaðaraðgerða. „Eftir að baráttan fór í gang í haust sameinuðust þessir fjórir aðilar; velferðarráðuneytið, Reykjavíkurborg, Vinafélag Vinjar og Rauði krossinn, um að reka Vin næstu þrjú árin,“ segir Þórdís. Hún tekur fram að markmiðið sé að loka Vin því hugmyndir séu uppi hjá Reykjavíkurborg um að geðfatlaðir einstaklingar geti, líkt og aðrir borgarbúar, nýtt sér almennar félagsmiðstöðvar. „Ef þetta er raunhæfur möguleiki, að okkar fólk geti notað almennar félagsmiðstöðvar Reykjavíkurborgar, ætlum við ekki að standa í vegi fyrir því,“ segir Þórdís. Sinna um 340 einstaklingum á ári Hátt í 100 einstaklingar heimsækja Vin 10 sinnum eða oftar í mánuði. „Á ársgrundvelli eru þetta um 340 einstaklingar sem við sinnum hér,“ segir Þórdís og bætir við að Vin sé því eins konar félagsmiðstöð fyrir þennan hóp, sem bæði þurfi mikla hvatningu og að vel sé haldið utan um hann. Aðspurð segir Þórdís að stöðugildi við Vin séu 3,7. „Við rekum Vin fyrir um tvær og hálfa milljón, fyrir utan launakostnað, á ári. Í það heila eru þetta 20 til 25 milljónir sem fara í Vin á ári með öllu, þ.e. rekstrinum á húsnæðinu, launakostnaði, mat og öllu saman. Þetta er því eitt ódýrasta þjónustutilboð sem Reykjavíkurborg hefur upp á að bjóða,“ segir Þórdís.///Þarnn fáum við góðar fréttir svo það er ekki allt slæmt sem skrifað er um,það ber að geta einnig þess sem vel er gert,og auðvitað er þarna þörf og vel það,það er sko nóg sem þetta blessað fólk þarf að þola,gott og þökk fyrir!!! /Halli gamli

mbl.is Rekstur Vinjar tryggður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott mál.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.5.2012 kl. 16:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045764

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband