Fagnar stofnun vinnuhóps um afnám gjaldeyrishafta/HVER setti þau á var það ekki Ríkisstjórn okkar

Fagnar stofnun vinnuhóps um afnám gjaldeyrishafta Innlent | mbl.is | 24.5.2012 | 12:20 Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fagnaði stofnsetningu sameiginlegs vinnuhóps Íslands og ESB um Össur Skarphéðinsson og Stefan Füle
afléttingu gjaldeyrishaftanna á fundi sínum með Stefan Füle stækkunarstjóra Evrópusambandsins í morgun. „Frjálst flæði fjármagns er einn meginþátturinn í fjórfrelsinu á sameiginlegum innri markaði Evrópu og því liggur fyrir að ríki með gjaldeyrishöft geta ekki gerst aðilar að Evrópusambandinu. Afnám gjaldeyrishaftanna er því viðfangsefni aðildarviðræðnanna og er hlutverk vinnuhópsins að móta sameiginlegan skilning og meta leiðirnar út úr höftunum í samvinnu ESB og Íslands,“ segir í fréttatilkynningu. Á fundinum ræddu utanríkisráðherra og Füle almennt um stöðu aðildarviðræðna Íslands og ESB og voru sammála um að í þeim hafi verið góður gangur. Samningar hafa hafist um tæplega helming samningskafla og er um þriðjungi lokið. Utanríkisráðherra ræddi sérstöðu Íslands í sjávarútvegsmálum og ítrekaði þá afstöðu Íslands að hefja sem fyrst samningaviðræður um veigamestu málefni viðræðnanna s.s. gjaldmiðilsmál, sjávarútveg, landbúnað og byggðamál. Í þessum málum hefði Ísland bæði ríka hagsmuni og skýra sérstöðu sem taka þyrfti tillit til í aðildarsamningi. Fundurinn í morgun markaði upphaf heimsóknar Stefans Füle til Íslands. Hann mun einnig hitta Steingrím J. Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og eiga fund með samráðshópi Íslands um samningaviðræðurnar við ESB. Eftir hádegi í dag mun Füle heimsækja Hellisheiðarvirkjun þar sem kynnt verður stefna Íslands um endurnýjanlega orku í samhengi við stefnu ESB í orkumálum. Í framhaldi af því mun hann heimsækja Hveragerði og Árborg og hitta bæjarstjóra og bæjarfulltrúa á fundi sem haldin er á vegum Samtaka sveitarfélaga á Suðurlandi. Á morgun mun Stefan Füle hitta forseta Alþingis og fulltrúa utanríkismálanefndar./////Kjaftaskurinn Össur okkar utanríkssráðherra,er bara kominni Efróðpusambandi,eð það er svo að heyra,og engin miskunn hjásamfylginu að fara þarna inn með þáttöku V.G. og einnig nokkra úr Framsókn og Sjálfstæðisflokki ,þessa vegna er það þjóðþrifamál,að láta Þjoðina kjósa um þetta og ekkert annað!!65% vill það ekki,en þessi Stefan Fule og c/o vilja það einnig!! að við látum af hendi fullveldi okkar/Halli gamli

mbl.is Fagnar stofnun vinnuhóps um afnám gjaldeyrishafta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband