Sé ekki í samkeppni við þingið//Nei það er ekki Alþingi hefur sett svo mikið niður að við þurfum meiri völd Forseta !!!!

Sé ekki í samkeppni við þingið Innlent | mbl.is | 28.5.2012 | 18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetafraÞóra Arnórsdóttir og eiginmaður hennar, Svavar Halldórsson,... mbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem er að vera sameiningarafl. Þetta kom fram í ræðu hennar þegar hún opnaði kosningaskrifstofu sína í dag. „Valkostirnir eru tveir. Sú sem hér stendur og að veita núverandi forseta áframhaldandi umboð til þess að sitja í 20 ár. 20 ár,“ endurtók Þóra og bætti við „Er það nema von að fólk sé hissa,“ segir Þóra. „Forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing. Hann getur ekki fullkomlega ræktað sitt meginhlutverk sem er að vera sameiningarafl inn á við. Að vera forseti allrar þjóðarinnar. Ekki bara þeirra sem deila pólitískri sýn á viss deilumál,“segir Þóra. Þóra hyggst taka á ný upp fundi með stjórnmálaleiðtogum landsins. Þar stefni hún að því að hlusta á öll sjónarmið. „Forsetinn á ekki að vera þátttakandi í hinum pólitíska leik. Það þýðir að hann lætur stjórnmálaflokkana um hina daglegu pólitísku umræðu. En þegar til kastanna kemur þá lætur hann alla njóta sannmælis sama hvar í flokki sem þeir standa,“ sagði Þóra í framboðsræðu sinni. Hún telur núverandi forseta „mistúlka embætti sitt“. „Þegar Ísland fékk sjálfstæði frá Dönum árið 1944 var alveg skýrt að í hinu lýðveldi yrði þingræði með forseta, ekki forsetaræði.“ Hún segir að völdin sem felist í 26. greininni séu umtalsverð. En í þingræðisríki sé það vald sem verður ekki beitt nema í ýtrustu nauð. Hún hvetur þingið til bættra vinnubragða. „Ef málum er þröngvað í gegn með minnsta mögulegum meirihluta þá aukast líkur á því að kjósendur taki sig saman og hafni lögum sem þannig eru samþykkt.“ Að lokum stillti hún málunum upp þannig að hér tækist á fortíð og framtíð. „Þessar forsetakosningar eru mikilvægar. Hvort ætlum að við að horfa til baka eða ætlum við að fara horfa fram á við og byggja upp. Ég skynja þessa undirliggjandi þörf til þess að fara að byggja upp. Þar sem við vinnum saman að hagsmunum lands og þjóðar. Við eigum að hafna átakastjórnmálum og gömlum kreddum,“ segir Þóra.///Það er gott að frambjóðendur opni sig og segi sína meiningu um embættið!! en það er svo að þetta sem hún segir,bara stenst ekki als ekki !!Alþingi er að setja svo niður að engin hefur trú á því eða um 18% er það ekki þá komið tími til að hafa Forsetan  í þeirri stöðu að hann getir verið okkar meirihluta þjóðarinnar vörður svo ekki verði vaðið yfir okkar eins og nú er gert þratt fyrir mikill meirihluta þjóðar vorar sé þvi mótfallin nei þetta tal umþjóðarathvæði um allt og undurskrifasöfnun er ekki það besta en má vera með,en að Forsetin sé bara tákn og Brúða er ekki það sem þarf,allt annað bara hvað mikið!!!svo má auðvitað setja hámark á setu hans,og síðan setja lagabálk um hversu langt hann getir gengið í að hjálpa þjóðinni ,frá misvitum Alþingismönnum,en það er gott að Þóra skuli opna sig þarna,fólk veit þó hvað það mun kjósa!!/Halli gamli
mbl.is Sé ekki í samkeppni við þingið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 1045633

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband