Allt óvíst um lengd þingfundar//Það var talað um að þinga bara um það nauðsinnlega???

Allt óvíst um lengd þingfundar Innlent | mbl | 1.6.2012 | 19:59 Tekist var um lengd þingfundar á Alþingi eftir matarhlé þingmanna kl. 19.30. Þingmenn Sjálfstæðisflokks fóru mikinn og bentu meðal annars á að af þeim sem greiddu atkvæði með kvöldfundi séu fimm þingmenn í húsi. Utanríkisráðherra fór fram á að fundurFrá Alþingi.  standi fram til klukkan fimm á morgun. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, sagði með ólíkindum að heyra þingmenn Sjálfstæðisflokksins væla eins og stungna grísi yfir því að vinna fyrir laununum sínum. Hann sagði varla komið kvöld og að fundurinn ætti minnst að standa fram á morgun. Hann benti á að þingmenn Sjálfstæðisflokks hafi sagst þurfa tala mikið og hann skuli sitja undir því, eins lengi og það tekur. Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, sagði utanríkisráðherra geta komið upp í ræðustól með kjánalæti og fíflalæti eins og hann lysti. En það sé gamaldags að halda því fram að þingmenn vilji ekki vinna vinnuna sína. Hún spurði forseta hvar fulltrúar stjórnarflokkanna úr atvinnuveganefnd væru, því þeir væru ekki að taka þátt í umræðunni. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, kom svo upp í ræðustól og bar um þó ekki væri nema vísbendingu um það hvenær fundi ljúki. Leyst úr ágreiningi með atkvæðagreiðslu Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, sagði það lágmarkskröfu að þingmenn virði fundarsköp og leikreglur lýðræðisins. Ágreiningur hafi staðið um hvort halda ætti kvöldfund og úr honum hafi verið leyst með atkvæðagreiðslu. Það að taka dýrmætan tíma frá umræðunni til að mótmæla þeirri niðurstöðu sé ekki boðlegt. Össur kom aftur upp í ræðustól og endurtók að sjálfstæðismenn nenni ekki að vinna vinnuna sína. Þeir nenni ekki að sitja undir eigin málþófi. Hann sagðist hafa tekið þátt í umræðunni í dag og heyrt þá nánast sprengja sig á því að reyna fylla upp í tímann. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, kom síðust upp og sagði rétt að farið hafi fram atkvæðagreiðsla um kvöldfund. Staðan sé hins vegar sú að aðeins séu fimm þingmenn sem greiddu atkvæði með kvöldfundi í húsinu. Þrír frá Vinstri grænum og tveir frá Samfylkingunni. Það sýndi raunverulegan vilja þingmanna stjórnarflokkanna til að ræða málið. Hún benti á að varlega þyrfti að fara með lýðræðið. Að svo búnu hélt umræðan um veiðigjöld áfram og eru átján þingmenn á mælendaskrá.//////NÚ er mælirin fullur og þar við situr,og mun gera það!!! sama kvað það kostar!!það var talað um að taka bara mál fyrir síðustu dagana sem þarf að klára,og eru nærri búin að umskrifa,en þá kemur þetta ein og fjandinn ur sauðalæknum,og sett á oddinn,þetta er svo Kríminalt að það hálfa væri nóg,ég mundi sem stjórnaranstaða bara labba út,og ekki mæta fyrr en þetta yrði tekið til baka fram á Haustið malið er ekki tibúið og arfavitlaust,það að auki/Halli gamli
mbl.is Allt óvíst um lengd þingfundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 1045648

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband