Munur á ást og losta//Þetta er og var svona í mynni bók,það hlaut að kama að þessu!!

Munur á ást og losta Erlent | mbl.is | 26.6.2012 | 17:13 Svissnesk-bandarísk rannsókn hefur sýnt fram á það að mismunandi en þó tengd svæði heilans virkjast þegar manneskja upplifir losta annars vegar og ást hins vegar. Þetta kemur fram í frétt thelocal.ch um málið. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að kynfeÁst og losti virkja mismunandi svæði í heilanum. rðisleg löngun virkjaði sömu stöðvar í heilanum sem virkjast þegar hugsað er um hluti sem fela í sér ánægju, s.s. mat eða kynlíf, á meðan ástin virkjaði stöðvar sem er talin tengjast verðmætamati og mati á ánægju. „Ástin er í raun vani sem myndast þegar kynferðisleg löngun er verðlaunuð“ sagði Jim Pfaus, einn af aðstandendum rannsóknarinnar. „Hún virkar á sama hátt á heilann og þegar fólk ánetjast fíkniefnum.“ Í rannsókninni voru bornar saman niðurstöður úr 20 mismunandi rannsóknum þar sem fólk átti að horfa á ljósmyndir af mökum sínum til skiptis við kynörvandi ljósmyndir. Þetta er í fyrsta sinn þar sem heilastarfsemin í þessum ólíku en skyldu tilfinningum er borin saman. „Við vissum ekkert á hverju við máttum eiga von, það hefðu getað reynst vera engin tengsl. Hins vegar kom í ljós að þessar tilfinningar virkja tvö mismunandi, en þó tengd svæði heilans,“ sagði Pfaus.//////Þetta hefur manni alltaf fundist!! og er ég hissa að þetta skuli fyrst staðfest núna með þessum ransóknum,er maður þó engin spesíalisti þarna!! en það hafa allir skoðanir og reynslu, er það ekki eða flestir allavega!!!/Halli gamli
mbl.is Munur á ást og losta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála þér kæri bloggeigandi.

Ég hélt að þetta væri fyrir löngu sannað.

Það er alveg magnað hvað hægt er að "vísindalega rannsaka." (Til að fá styrki.)Kona í Svíþjóð sem fékk einn af stærri styrkjum svía. Hún varði doktorsritgerð um það að hænur í hænsnabúi, þeim leið betur að hani væri í hænsnabúinu heldur en ekki.

Síðan ég hef ég aldrei tekið mark á vísindamönnum. Því um þetta var ég meðvituð um frá því ég var í sveitinni fyrir 63 árum síðan. Kveðja.

Jóhanna (IP-tala skráð) 26.6.2012 kl. 17:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045770

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband