Endurgreiðsla hækkuð umtalsvert//////Er þetta kostnigarbragð eða hvað???

Endurgreiðsla hækkuð umtalsvert
Innlent | mbl.is | 3.7.2012 | 15:06
Karíus og Baktus Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að hækka gjaldskrá vegna almennra tannlækninga barna yngri en 18 ára tímabundið um 50%. Áætlað er að með þessu hækki hlutfall endurgreiðslu raunkostnaðar úr tæpum 42% í að meðaltali í 62,5%.

Áætlað er að með þessu hækki hlutfall endurgreiðslu raunkostnaðar úr tæpum 42% í að meðaltali í 62,5% og hefur það ekki verið hærra í tæpan áratug. Ákvörðun velferðarráðherra er í samræmi við tillögu starfshóps sem hann skipaði um miðjan maí síðastliðinn, samkvæmt tilkynnignu frá ráðuneytinu

Síðastliðinn áratug hefur á hverju ári orðið afgangur af þeim fjármunum sem Alþingi hefur ákveðið að verja til tannlækninga sjúkratryggðra hér á landi. Meginástæðan er sú að enginn samningur hefur verið í gildi milli ríkisins og tannlækna um margra ára skeið og hlutfall endurgreiðslu raunkostnaðar vegna tannlækninga barna hefur lækkað verulega.

Í fyrra var sá afgangur sem varð af fjárlagalið tannlækninga nýttur í sérstakt átaksverkefni þar sem börnum tekjulágra foreldra var boðin tannlæknisþjónusta án endurgjalds og nýttu tæplega 800 börn þessa þjónustu.

Vonast til þess að fleiri börn fari til tannlæknis

Áætlað hefur verið að afgangur af fjárlagalið tannlækninga á þessu ári myndi að óbreyttu nema um 174 milljónum króna. Með gjaldskrárhækkuninni frá 1. júlí til 31. desember 2012 munu þessir fjármunir nýtast að fullu. Meginmarkmiðið er að fleiri börn leiti til tannlæknis en ella og er áætlað að þeim fjölgi um að minnsta kosti 10% með þessari breytingu.

Í starfshópi velferðarráðherra sem lagði til þessa breytingu um tímabundna hækkun gjaldskrár Sjúkratrygginga Íslands sátu fulltrúar velferðarráðuneytisins, Sjúkratrygginga Íslands, Tannlæknafélags Íslands, Háskóla Íslands, Embættis landlæknis og heilsugæslunnar og var hópurinn einhuga um tillöguna. Velferðarráðherra hefur veitt starfshópnum umboð til að vinna að tillögum um framtíðarfyrirkomulag tannlækninga barna. Stefnt er að því að ná samningum við tannlækna og að nýtt fyrirkomulag taki gildi í áföngum með bættri þjónustu við börn og barnafjölskyldur.//////Guðbjartur lætur gott á vita og það bara flott!!vonandi er þetta bara ekki kosningarbragð?? það er okkur nauðsins að koma þessu í lag hjá ungviðinu ekki spurning!!!Það er kannski ekki alveg rétt oft hjá manni að segja að þessir Samfylkingarmenn séu allir alslæmir sennilega er það ekki ,en þessi Ráðherra er auðvitað ekki í andstöðu við Jóhönnu og Össur landsölufólkið og það segir okkur margt/Halli gamli 


mbl.is Endurgreiðsla hækkuð umtalsvert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er nú lykt af þessu !

En gott mál, bara allt of seint í rassin grinpið !

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 3.7.2012 kl. 15:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045703

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband