Innlent | mbl.is | 5.7.2012 | 10:02
Dánartíðni í umferðarslysum á Íslandi er frekar lág miðað við Evrópu. Í athugun sem Umferðarstofa hefur gert á fjölda þeirra sem látast í umferðinni hér á landi borið saman við 28 önnur Evrópulönd kemur í ljós að Ísland raðar sér í efstu sæti hvað lága dánartíðni varðar í umferðinni.
Þegar bornar eru saman tölur um meðaltalsfjölda látinna í umferðarslysum í 29 Evrópulöndum, öllum löndum Evrópusambandsins ásamt Íslandi og Noregi, kemur í ljós að Ísland er fimmta landið í röð þeirra sem eru með lægstu dánartíðni í umferðinni samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu
Hér á landi létust árlega að jafnaði 40,6 einstaklingar í umferðinni á hverja milljón íbúa á tímabilinu. Holland sýnir bestan árangur með 37,6 einstaklinga en á eftir þeim kemur Bretland með 38,8, Svíþjóð með 39, Malta með 39,8 og síðan Ísland með 40,6 eins og fyrr sagði. Í Litháen létust 131,8 einstaklingar á hverja milljón íbúa en þar er fjöldi fórnarlamba mestur. Athugað var meðaltal fimm ára tímabils, 2007-2011.
Þegar þessar tölur eru skoðaðar nánar kemur í ljós mikill árangur á undanförnum 5 árum í fækkun banaslysa í flestum Evrópulöndum. Ef skoðuð eru 5 ár á undan fyrrnefndum samanburðartíma kemur í ljós að á tímabilinu 2002 til 2006 au rlétust að meðaltali 84,4 einstaklingar á hverja milljón íbúa hér á landi eða rúmlega helmingi fleiri en fimm ára tímabil þar á eftir, frá 2007 til 2011.
Þótt sjá megi lækkun dánartíðni í flestum öðrum Evrópulöndum þá er árangurinn mun meiri hér á landi en hjá flestum öðrum Evrópulöndum þar sem Ísland hefur færst úr níunda sæti upp í það fimmta eins og fyrr sagði.
Innan Evrópusambandsins lést að jafnaði 71,4 á hverja milljón íbúa. Það er því ljóst að árangurinn í umferðaröryggismálum er umtalsverður hvað banaslys varðar hér á landi. Þær Evrópuþjóðir þar sem fæstir látast í umferðinni eru öllu jöfnu með lægstu tíðni banaslysa á heimsvísu og því má leiða getum að því að dánartíðnin hér á landi sé með því allra lægsta sem þekkist.
Þrátt fyrir þennan árangur eru dauðsföll hér á landi af völdum umferðarslysa ein algengasta dánarorsök ungs fólks á aldrinum 16 - 24 ára segir í tilkynningu Umferðarstofu.////////Um að gera að setja sér mark og reyna að fara eftir því,þetta er og raunhæfur möguleiki ,ekki spurning, það þarf átak okkar allra og þetta ætlum við að framkvæma og láta þetta ganga eftir!!!!!Halli gamli
Lág dánartíðni af völdum umferðarslysa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
- skordalsbrynja
- bjarnihardar
- stebbifr
- bassinn
- trj
- einarvill
- kristbjorg
- bofs
- don
- ingagm
- einarbb
- villibj
- martagudjonsdottir
- tilveran-i-esb
- asthildurcesil
- athena
- ea
- altice
- karisol
- kolbrunb
- ksh
- mariaannakristjansdottir
- mosi
- solir
- minos
- erna-h
- sgisla
- korntop
- ibb
- bjarnimax
- seinars
- skodunmin
- hjolagarpur
- summi
- gelin
- otti
- ansigu
- ingabesta
- skinogskurir
- tibsen
- reynir
- isleifur
- helgigunnars
- jakobk
- morgunn
- dramb
- gudni-is
- siggisig
- jonsnae
- gattin
- jon-o-vilhjalmsson
- 1kaldi
- magnusthor
- lucas
- gislisig
- gummiarnar
- gammon
- himmalingur
- gingvarsson
- snjokall
- vefritid
- gudrunmagnea
- sigurjonn
- saethorhelgi
- liljabolla
- malacai
- topplistinn
- hordurhalldorsson
- whaling
- stjornlagathing
- vestskafttenor
- ester13
- haukurn
- partners
- drum
- kokkurinn
- gumson
- valdimarjohannesson
- kristjan9
- mathieu
- hordurj
- samstada-thjodar
- snorribetel
- godurdrengur
- kij
- krist
- bjartsynisflokkurinn
- jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.