Lág dánartíðni af völdum umferðarslysa////Vonandi að þetta haldist og eyðist!!

Lág dánartíðni af völdum umferðarslysa
Innlent | mbl.is | 5.7.2012 | 10:02

Dánartíðni í umferðarslysum er tiltölulega lág á Íslandi... Dánartíðni í umferðarslysum á Íslandi er frekar lág miðað við Evrópu. Í athugun sem Umferðarstofa hefur gert á fjölda þeirra sem látast í umferðinni hér á landi borið saman við 28 önnur Evrópulönd kemur í ljós að Ísland raðar sér í efstu sæti hvað lága dánartíðni varðar í umferðinni.

Þegar bornar eru saman tölur um meðaltalsfjölda látinna í umferðarslysum í 29 Evrópulöndum, öllum löndum Evrópusambandsins ásamt Íslandi og Noregi, kemur í ljós að Ísland er fimmta landið í röð þeirra sem eru með lægstu dánartíðni í umferðinni samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu

Hér á landi létust árlega að jafnaði 40,6 einstaklingar í umferðinni á hverja milljón íbúa á tímabilinu. Holland sýnir bestan árangur með 37,6 einstaklinga en á eftir þeim kemur Bretland með 38,8, Svíþjóð með 39, Malta með 39,8 og síðan Ísland með 40,6 eins og fyrr sagði.  Í Litháen létust 131,8 einstaklingar á hverja milljón íbúa en þar er fjöldi fórnarlamba mestur. Athugað var meðaltal fimm ára tímabils, 2007-2011.

Þegar þessar tölur eru skoðaðar nánar kemur í ljós mikill árangur á undanförnum 5 árum í fækkun banaslysa í flestum Evrópulöndum. Ef skoðuð eru 5 ár á undan fyrrnefndum samanburðartíma kemur í ljós að á tímabilinu 2002 til 2006 au rlétust að meðaltali 84,4 einstaklingar á hverja milljón íbúa hér á landi eða rúmlega helmingi fleiri en fimm ára tímabil þar á eftir, frá 2007 til 2011.

Þótt sjá megi lækkun dánartíðni í flestum öðrum Evrópulöndum þá er árangurinn mun meiri hér á landi en hjá flestum öðrum Evrópulöndum þar sem Ísland hefur færst úr níunda sæti upp í það fimmta eins og fyrr sagði.

Innan Evrópusambandsins lést að jafnaði 71,4 á hverja milljón íbúa. Það er því ljóst að árangurinn í umferðaröryggismálum er umtalsverður hvað banaslys varðar hér á landi. Þær Evrópuþjóðir þar sem fæstir látast í umferðinni eru öllu jöfnu með lægstu tíðni banaslysa á heimsvísu og því má leiða getum að því að dánartíðnin hér á landi sé með því allra lægsta sem þekkist.

Þrátt fyrir þennan árangur eru dauðsföll hér á landi af völdum umferðarslysa ein algengasta dánarorsök ungs fólks á aldrinum 16 - 24 ára segir í tilkynningu Umferðarstofu.////////Um að gera að setja sér mark og reyna að fara eftir því,þetta er  og raunhæfur möguleiki ,ekki spurning, það þarf átak okkar allra og þetta ætlum við að framkvæma og láta þetta ganga eftir!!!!!Halli gamli


mbl.is Lág dánartíðni af völdum umferðarslysa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 1045704

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband