Hálfkláruð hverfi og opnir grunnar/////Þetta byggist allt fyrir rest,þessi þétting byggðar er ekki allra,als ekki!!!

Hálfkláruð hverfi og opnir grunnar
Innlent | Morgunblaðið | 7.7.2012 | 17:30

Mynd 619994 Á höfuðborgarsvæðinu hafa seinustu ár orðið til einskonar„draugahverfi“ þar sem búið er að leggja götur, holræsi, rafmagn, síma og úthluta lóðum en húsin vantar.
Það er sáralítil hreyfing á nýjum húsum. Einu framkvæmdirnar eru við húseignir sem byrjað var á fyrir hrun,“ segir Ásbjörn Þorvarðarson, byggingarfulltrúi Mosfellsbæjar.

Nýtt hverfi í Leirvogstungu var skipulagt í góðærinu en þar stöðvaðist allt í hruninu og hverfið stendur óklárað.

„Það er verið að klára þessar eignir smám saman, eftir því sem einstaklingar og fjármálastofnanir selja þetta frá sér,“ segir Ásbjörn. Eftir hrun hefur ekki verið sótt um leyfi til að byggja á lóðum sem standa auðar í Leirvogstungu.

Öryggi ábótavant

Víða finnast ókláraðir grunnar í Leirvogstungu og hafa íbúar áhyggjur af frágangi á byggingarsvæðum í hverfinu. Þar er engin girðing umhverfis svæðin, steypustyrktarjárn standa upp úr veggjum og byggingarefni liggja á víð og dreif.

„Á síðasta ári hófum við mikið átak og gerðum úrbætur. Við teljum að í flestum tilfellum hafi náðst árangur og slysahætta í Leirvogstungu sé lítil,“ segir Ásbjörn. Átakið var gert síðastliðið haust og fór þá seinast fram skoðun á svæðinu.

Samgöngur ekki góðar

„Það ríkir óvissa um vegina í Leirvogstungu og við værum til í að sjá fleiri vegi malbikaða,“ segir Rúnar Þór Guðbrandsson, formaður íbúasamtaka Leirvogstungu. Rúnar vill að Mosfellsbær byrji á Tunguvegi og segir það vera nauðsynlega samgöngubót fyrir hverfið.

Tunguvegur mun tengja saman nýtt hverfi í Leirvogstungu, íþróttasvæðið á Tungubökkum og gatnakerfið í Mosfellsbæ. Áætlað er að um 1.500 bílar muni fara um veginn á sólarhring en gert er ráð fyrir að um 2.500 bílar fari um gatnamót Vesturlandsvegar við Leirvogstungu.

Vegurinn hefur verið á aðalskipulagi um árabil og er hann mikilvægur til að tryggja öryggi íbúa í Leirvogstungu og þeirra sem leið eiga á Tungubakka. Vegurinn mun nýtast nýjum íbúum í Leirvogstungu til að tengjast miðbæ Mosfellsbæjar.

„Það er helst óvissuástandið hjá framkvæmdaraðila og Mosfellsbæ sem hefur stoppað það verkefni,“ segir Rúnar.

Stór byggð í Garðabæ

„Ókláruðu hverfin í Garðabæ standa ágætlega og það er nú verið að vinna í nýjum grunnum,“ segir Agnar Ástráðsson, byggingarfulltrúi Garðabæjar.

Um 1000 íbúa byggð í Urriðaholti var ráðgerð á árunum fyrir hrun en framkvæmdir voru rétt hafnar þegar hrunið skall á og allt stöðvaðist.

„Boltinn er farinn að rúlla aftur og við erum að samþykkja ný hús. Svo er vinnan aftur byrjuð í þeim húsum sem voru farin af stað,“ segir Agnar, en í Urriðaholti er m.a. gert ráð fyrir nýjum grunnskóla og leikskóla.

Fullt af óbyggðum lóðum

Um 400 manns búa í Úlfarsárdal við Úlfarsfell. Hverfið er hluti af Reykjavík, en var skilið eftir hálfklárað eftir að efnahagskreppan skall á árið 2008 og lítið hefur verið byggt og bætt þar síðan.

„Hér er fullt af óbyggðum lóðum. Flestir þeirra sem hafa byggt sér einbýli hafa þó náð að flytja inn í húsin,“ segir Kristinn Steinn Traustason, formaður íbúasamtaka í Úlfarsársdal. Hann telur stöðuna þó almennt slæma.

Eins og víða annars staðar í hálfkláruðum hverfum höfuðborgarsvæðisins er margt sem má laga að mati íbúa. „Allar götur eru malbikaðar en frágangur gangstétta er t.a.m. ekki góður,“ segir Kristinn. Hann segir ástandið skána hægt og frágangur lóða og grunna alls ekki vera til fyrirmyndar.

Ættum að stoppa núna

Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi í Reykjavík, hefur verið í fararbroddi þeirra manna sem tala gegn stækkun borgarinnar austur, en hann telur að frekar ætti að þétta byggðina.

„Menn hafa smám saman áttað sig á því að það er ekki sniðugt að hafa stóra byggð í Úlfarsárdal,“ segir Gísli, en upprunalega átti að rísa þar um 25.000 manna byggð.

Gísli telur að gott hverfi geti risið í Úlfarsárdal og telur hæfilegt að byggðin telji um 4000-5000 manns.

„Ég sé fyrir mér að þetta yrði eitt gott skólahverfi, svipað að stærð og Fossvogur,“ segir Gísli, en hann telur frekari stækkun í austur það versta sem gæti komið fyrir þá sem þegar hafa flust í Úlfarsárdalinn.

„Reykjavík er mjög rík af úthverfum og ég tel þau vera ein af þeim bestu í heiminum. Hins vegar er núverandi stefna hættuleg,“ segir Gísli.///////Um þetta er búið að deila mikið.ekki það að æskilegt er að hafa byggð sem víðast og úthverfin heilla einnig,ekki bara 101-5 eða svo!!Borgin er kannski orðin of mikið austur !!en þetta er best hvað með öðru,auðvitað dýrara að byggja svona dreift en fólki líður flestu betur að hafa um sig rúmt!!Það er búið að tala um þetta í áraraðir en ekki komið alveg í skipulag,þetta með flugvöllinn okkar í Vatnsmýrinni,er og verður bitbein,en á ekki að vera það,við getum vel lagað þarna til og byggt meira að þessu,án þess að skemma flugbrautir!!!Við Gísli Marteinn erum ekki alveg sammála þarna,en hann er nú uppalin í Breiðholtinu en ég í 101 og sagði oft hér áður í Gólanhæðir flyt ég aldey en það gerði ég 1976 og hefi átt  þar heims síðan,og líkar bara vel,en Gísli Marteinn flutti aftur í 101 og hjólar allar sínar ferðir,þar er ég honum sammála ,það er heilbrigt,en byggja verður göngu og hjólabrautir um alla Borgina eða stór R.vik,sem einhverntíman verður!!!Svo erum við mörg mjög á móti Landspítala þarna við Hringbrautina,um þetta ætti að kjósa næst ekki bara láta hagsmunaaðila ráða þarna ferð als ekki,við sjúklingar höfum þarna engan rétt ,bara þeir  frekustu Háskólin og læknarnir flestir,þó als ekki allir!!!!En það sem máli  skiptir er að við sem búum í Borginni séum ánægð,það kemur að kosningum eftir eitt og hálft ár,skoðum þá hvað verður//Halli gamli


mbl.is Hálfkláruð hverfi og opnir grunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 1045652

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband