Tekist að hefta útbreiðslu eldsins/það er aðlað málið að gera ekki spurning!!!

Tekist að hefta útbreiðslu eldsins
Innlent | mbl.is | 10.7.2012 | 0:00

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF er að ljúka slökkvistörfum. Um 30 manns vinna nú við að slökkva sinueldana sem loga á Snæfellsnesi. Slökkvistörf ganga ekki nógu vel að sögn manna á staðnum en þó hefur tekist að hefta útbreiðsluna að mestu leyti.
Enn logar þó glatt í túnum.

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, hefur verið notuð við slökkvistörf en hún er nú í sinni síðustu ferð í kvöld en endsneytið mun vera að klárast í þyrlunni.

Eldurinn kviknaði í túnum við bæinn Rauðkollsstaði á suðaustanverðu Snæfellsnesi fyrr í kvöld.

„Þetta gengur ekki alveg nógu vel en við erum að reyna að hefta frekari útbreiðslu,“ sagði slökkviliðsmaður á vakt sem mbl.is náði tali af. Hann sagðist búast við því að þeir yrðu að störfum eitthvað fram á nótt.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur boðist til að aðstoða. Þess er þó ekki talin þörf. Hins vegar hefur Landhelgisgæslan staðið í ströngu við slökkvistörfin og beitt til þess þyrlunni TF-LÍF, sem fyrr segir.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni felst slökkvibúnaður þyrlunnar í slökkvifötu sem hengd er neðan í þyrluna, henni er svo dýft í vatn eða sjó og þannig fyllt. Fatan er síðan tæmd með því að rafknúinn loki í botni hennar er opnaður og vatnið gusast út. Hámarksburðargeta skjólunnar er um 2.100 lítrar en hægt er að minnka og auka vatnsmagnið í fjórum þrepum frá tæplega 1.500 lítrum upp í fyrrnefnda 2.100 lítra.///////Þetta er lífspurts mál að gera ,því annars tekur þetta mörg ár að, jafna sig!!Snarræði og þyrlan hafa sitt að segja og það skiptir sköpum!!!! slökkvilið og Gæslan eiga  heiður skilið!!!!Halli gamli


mbl.is Tekist að hefta útbreiðslu eldsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 1045745

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband