Lifnar yfir fólki í góðu veðri/Blessuð blíðan hefur áhrif á fletsta sem geta notið hennar!!

LifTörnin byrjar fyrr þegar veðrið er gott og sólin skín.nar yfir fólki í góðu veðri Innlent | Morgunblaðið | 28.7.2012 | 10:30 Gott veður á stóran þátt í aðsókn gesta á veitingastaði borgarinnar, en veðurguðirnir hafa verið einstaklega góðir við Íslendinga í sumar.

Elstu menn landsins þurfa að fara langt aftur í tímann til að muna annað eins góðviðri, en sólin hefur skinið flestalla daga og lítið hefur verið um rigningu. Andri Björnsson er eigandi Vegamóta í miðbæ Reykjavíkur, en hann er mjög ánægður með gang mála þessa dagana. „Þetta er náttúrlega búið að vera æðislegt sumar.

Á meðan við erum með aðstöðu fyrir útiborð er þetta allt annað. Þegar við fáum gott veður og sólin skín lifnar yfir fólki og það kíkir út,“ segir Andri, en þéttsetið var á útisvæði Vegamóta þegar blaðamaður kom við á staðnum. Aukinn fjöldi ferðamanna Mikill fjöldi ferðamanna hefur lagt leið sína á Vegamót í sumar, en þeim hefur farið fjölgandi jafnt og þétt á Íslandi undanfarin ár. „Ég hef aldrei séð jafnmikið af útlendingum hjá mér. Við erum reyndar aðeins til hliðar við Laugaveginn en bærinn iðar allur af ferðamönnum og við fáum mikið af þeim til okkar,“ segir Andri.

Að sögn Andra er töluverður munur á aðsókn sumar og vetur en hann verður var við aukna aðsókn strax í byrjun maí. „Um leið og það fer að vora og sólin er aðeins farin að láta sjá sig fer allt af stað. Stundum þarf ekki nema 5-10 gráða hita. Það er sólin sem fólk leitar eftir,“ segir Andri, en hann segir hlutina róast töluvert um leið og menningarnótt er lokið. Kex hostel stendur við Skúlagötu í miðborg Reykjavíkur, en þar er rekið bæði hótel og veitingastaður. „Við erum með erlenda gesti á efri hæðinni og þeir koma mikið niður og fá sér sæti úti á palli.

Meirihluti gesta okkar er þó Íslendingar,“ segir Geir Þorvaldsson, vaktstjóri á bar Kex hostels. Geir segir veðrið eiga einhvern þátt í aðsókn í mat og drykk, en hann segir staðinn þó ekki finna fyrir miklum mun. „Törnin byrjar fyrr þegar veðrið er gott. Ef veðrið er slæmt færir fólk sig bara inn,“ segir Geir.//////Það er svo að þetta veður er mjög gott fyrir  okkur Íslendina ekki síst!!Ferðamenn eru þessu mikiið meira vanir og láta sér ekki alt veður fyrir brjósti brenna,koma jafnvel í rammt Íslenskt veður rok og rigningu og bara nefndu það kannski 3-4 veður á dag!!! en þessu ber að fagna að hafa þessa blíðu svona lengi það eykur sölu og líf í Borginni okkar og landinu öllu!!!Kaupmenn fagna og ferðaþjónustan gerir það og reyndar við öll sem getum notið þessa/Halli gamli


mbl.is Lifnar yfir fólki í góðu veðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 13
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 61
  • Frá upphafi: 1045790

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband