Handtekinn grunaður um nauðgun/Við fordæmum nauðgun !!!!!!

Handtekinn grunaður um nauðgun Innlent | mbl.is | 5.8.2012 | 10:14 Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók í g ærkvöldi karlmann sem er grunaður um að hafa nauðgað konu á þjóðhátíðinni í Eyjum í fyrrinótt.

Maðurinn er nú í haldi lögreglunnar. Maðurinn, sem er 22 ára gamall, er grunaður um að hafa nauðgað konu í tjaldi aðfaranótt laugardags og var hann handtekinn í Herjólfsdal. Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Eyjum, segir í samtali við mbl.is að maðurinn hafi strax legið undir grun og var búið að dreifa myndum af honum til lögreglumanna og starfsmanna sem sinna gæslu á hátíðarsvæðinu. „Það stóð yfir leit að honum og hann fannst í gærkvöldi í Herjólfsdal,“ segir Jóhannes.

Hann segir að lögreglan á Selfossi hafi forræði yfir rannsókn á kynferðisbrotamálum í Vestmannaeyjum. Von sé á lögreglumönnum þaðan í dag og væntanlega verði maðurinn fluttur á Selfoss þar sem tekin verður af honum skýrsla. Aðspurður segir Jóhannes að nóttin sem leið hafi verið mun betri en nóttin á undan. „Það var einhvern veginn betra stand á fólkinu og það var einstaklega gott veður, hlýtt og milt,“ segir hann. Þá segir hann að tveir til viðbótar hafi gist fangaklefa lögreglunnar í nótt. Annar út af ölvunarbroti en hinn út af fíkniefnamáli. Alls hafa komið upp 40 fíkniefnamál á hátíðinni. Flest þeirra tengjast neysluskömmtum á kannabisefnum og hvítum efnum á borð við amfetamín og kókaín.////Þetta er alvarlegt að ekki skuli vera hægt að halda Þjóðhátíð án nauðgunar,það er eiginlega ekkert afsakanlegt við slíkan verknað,svo viðbjóðslegur og alvarlegur er sá verknaður hver sem hann fremur!!Annað sem gert er þarna er er bara það sem alltaf gerist að men pústrast og drekka um /og Dópa sem er ekki löglegt að gera!!!! það vita menn,en það virðist vera nóg til að þessum óþverra,og neitendur því miður nokkuð margir!!!En þetta er erfitt verk að passa á svona útihátiðum og verður það eylílega!!!ároðurin á að skila sér til flestra, en þvi miður ekki allra/Halli gamli

 


mbl.is Handtekinn grunaður um nauðgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halli minn. Já, við fordæmum nauðganir. Það er verst að rannsóknar-lögreglunni er oft fyrirskipað að láta nauðgunarmál falla niður, og einnig mál fólks sem deyr af völdum of stórra eiturlyfjaskammta. Það eru til mörg dæmi um slíka vanrækslu yfirvalda. Nýjasta þekkta dæmið um það, er mál Sissu, dóttur Jóhannesar Kr. Kristjánssonar.

Hvað réttlætir svona vanrækslu-brot hjá lögregluyfirvöldum?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.8.2012 kl. 12:16

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Satt Anna Sigríður vinkona mín!!!;lögregla hefur alltaf nógar afsakanir fyrir sínum mistökum,á færibandi!!!!!/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 5.8.2012 kl. 14:44

3 identicon

Ein nauðgun, eitt fíkniefnamál og eitt ölvunarmál, annars allt voða rólegt og fínt. Hvert er þessi heimur að fara???

Nína Björk (IP-tala skráð) 7.8.2012 kl. 04:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 1045807

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband