Starfsmenn ráðuneyta ræddu samruna/Og Steingrímur brosir !!!!!!!

Starfsmenn ráðuneyta ræddu samruna Innlent | mbl | 7.8.2012 | 22:01 Haldinn var starfsmannafundur í hádeSteingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og...ginu í dag með starfsmönnum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, iðnaðarráðuneytisins og efnahags- og viðskiptaráðuneytisins til að ræða samruna þessara ráðuneyta inn í nýtt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. þann 4. september næstkomandi.

Á vegum ráðuneytisins er starfandi stýrihópur ráðuneytisstjóranna þriggja, Kristjáns Skarphéðinssonar, ráðuneytisstjóra í iðnaðarráðuneytinu, Sigurgeirs Þorgeirssonar, ráðuneytisstjóra í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu og Helgu Jónsdóttur, ráðuneytisstjóra í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu.

Kristján er formaður hópsins. Vinnuhópar starfsmanna funda til 15. ágúst „Það var starfsmannafundur í hádeginu og síðan vorum við að vinna í 6-7 vinnuhópum. Þeir verða að vinna fram til 15. ágúst og síðan verður það sem kemur út úr þeirri vinnu nýtt til að setja nýtt skipulag fyrir ráðuneytið. Í framhaldinu hefst vinna við gerð skipurits fyrir ráðuneytið,“ sagði Kristján um það sem fram fór á fundinum í dag. Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri iðnaðarráðuneytisins.

Á fundinum kom fram, líkt og kveðið var raunar á um í þingsályktunartillögu um málið, að öllum starfsmönnum ráðuneytanna yrði boðin vinna áfram. Þetta staðfestir Kristján og segir: „En svo náttúrulega er ekki þar með sagt að það verði allir sem fái nákvæmlega eins störf og þeir eru í í dag, en það var það sem að var gengið út frá að allir fái starf.“ Öll starfsemi verði á sama stað 20. september

Það er búið að ákveða að nýtt ráðuneyti taki til starfa 4. september næstkomandi. Kristján segir talað um að 20. september verði allir starfsmenn fluttir í sama húsnæðið að Skúlagötu 4, þar sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið er í dag.

Eins og áður hefur verið fjallað um standa yfir breytingar á skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Þegar nýtt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti verður sett á fót verða auk þess til tvö önnur ný ráðuneyti.

Breytingar verða á tveimur ráðuneytum til viðbótar Annarsvegar umhverfis- og auðlindaráðuneyti, sem að stofninum til er núverandi umhverfisráðuneyti. Hinsvegar fjármála- og efnahagsráðuneyti, en hluti af efnahags- og viðskiptaráðuneytinu færast yfir til þess. Það verður því nokkur flutningur verkefna sem mun eiga sér stað þegar þessi stóra breyting á skipan stjórnarráðsins mun eiga sér stað í haust.//////Þetta verður svo segir Broskarlinn Steingrímur hin nýji sewm ættlar semsagt einn að stjórna landinu ,jú Jóhanna verðu með sem yfirráðherra,en þetta er bratt og við eigum eftir að sja´ef af verðu hvernig þessi einræðistjórn vinnur: tveggja eiræðisherra??? É segi og stend við að þetta er ekki það sem við viljum og sparnaður þegar upp er stðið engin/Halli gamli


mbl.is Starfsmenn ráðuneyta ræddu samruna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband