Snögg en skynsamleg u-beygja//Er þetta byrjun á samtarfi eftir kosningar???

„Snögg en skynsamleg u-beygja“ Innlent | mbl.is | 13.8.2012 | 7:10 „Það eru (því miður) nokkur nýmæli að talsmennSigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. stjórnarflokkanna geri hugmyndir framsóknarmanna að sínum [...] Því ber að fagna að Stefán skuli gera þessa tillögu mína að sinni og vonandi nær hann að snúa fleirum á okkar band í þessu efni,“ skrifar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, á heimasíðu sinni um nýjasta bloggpistil prófessorsins Stefáns Ólafssonar.

Sigmundur Davíð segir Stefán taka „snögga en skynsamlega u-beygju frá Evrópusambands-einstefnu Samfylkingarinnar“ þegar hann setji fram þá „nýstárlegu“ hugmynd að líklega sé best í stöðunni að setja ESB umsóknina á ís, fresta viðræðum og jafnvel halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda skuli þeim áfram. „Nú hentar það Stefáni e.t.v. ekki að viðurkenna að hann hafi tekið upp tillögu framsóknarmanns, en staðreyndin er sú að þessa hugmynd um frestun ESB viðræðna og þjóðaratkvæðagreiðslu um framhaldið setti ég fyrst fram í grein í Morgunblaðinu fyrir ári síðan, í ágúst 2011.“ Sigmundur Davíð segir Stefán tæpast hafa gleymt þessari grein enda hafi hún valdið talsverðu fjaðrafoki á meðal stuðningsmanna Evrópusambandsviðræðnanna og var henni m.a. kennt um að fjórir áhugamenn um ESB-aðild hefðu sagt sig úr Framsóknarflokknum skömmu síðar.

„En hafi Stefán misst af þessu má benda honum á að þetta ár sem liðið er hef ég (ásamt fleiri framsóknarmönnum) margoft ítrekað þessa skoðun mína, að réttast sé að fresta Evrópusambandsviðræðunum og leyfa þjóðinni að ákveða framhaldið, bæði í þingræðum, viðtölum og greinum. Þess er einnig skammt að minnast að á síðasta landsfundi sínum gerði Sjálfstæðisflokkurinn þessa hugmynd að yfirlýstri stefnu sinni í Evrópumálum.

Myndi Samfylkingin undir forystu Stefáns Ólafssonar fara sömu leið, fresta ESB viðræðunum, stöðva aðlögunarferlið og leyfa þjóðinni að taka ákvörðun um framhaldið í þjóðaratkvæðagreiðslu? Hver veit. Hugsanlega komumst við Stefán að því hvort þingmenn Samfylkingarinnar eru tilbúnir að fylgja skynseminni ef greidd verða atkvæði um frestun viðræðna þegar Alþingi hefur störf í haust,“ skrifar Sigmundur Davíð að lokum.//////Það vara oft sagt hér áður að Framsókn væri opinn í baða enda!!! og er það kannski að koma þarna fram,að Sigmundur Davíð sem við höfum margir verið að hæla,sé það einnig?? hann var um daginn hjá Ingva Hrafni á inn stöðuni og sagði að sin flokkur væri miðjuflokkur og ef eitthvað munda hann halla til vinstri,Sjáflstæðisflokkur væri hægri flokkur og mjög ólíkur Framsókn!! en þarna bókstaflega kemur hann með það sem manni núverandi,ein og hann gerði 2008 setti á þessa stjórn sem nú er búin að setja landið okkar aftur i aldir,en lengi skal mannin reyna maður hefiði átta að hæla honum meira!!!!/Halli gamli


mbl.is „Snögg en skynsamleg u-beygja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 1045705

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband