Umsóknin var andvana fædd/það segirðu satt Illugu!!!!

Umsóknin var andvana fædd Innlent | mbl | 13.8.2012 | 23:41 „Þessi atburðarás kemur mér ekkert á óvart. Það lá alltaf fyrir að vinstri-grænir gætu ekki farið í kosningabaráttu með þetta mál í óbreyttum farvegi. ÞIllugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.etta mál var þess utan alla tið andvana fætt þar sem ríkisstjórnin hefur verið gersamlega klofin í því,“ segir Illugi Gunnarsson, alþingismaður. Sjálfstæðisflokksins.

Engin skynsemi sé að halda áfram með umsóknina um inngöngu í Evrópusambandið í ljósi þess sem gerst hafi í tengslum við hana á undanförnum árum. „Enda sjá menn bara að framundan eru óhjákvæmilega slíkar breytingar hjá Evrópusambandinu að það er tómt mál að tala um það að halda málinu til streitu.

Jafnvel þó viðræðurnar yrðu kláraðar þá vita menn ekkert hvernig sambandið á eftir að þróast á komandi árum. Og um hvaða ESB væri þá verið að kjósa hér á Íslandi?“ segir Illugi.

Skynsamlegast væri að stöðva umsóknarferlið og hefja það ekki að nýju nema skýrt umboð lægi fyrir frá kjósendum í þjóðaratkvæði. „Þetta er augljóslega til komið vegna stöðu vinstri-grænna í skoðanakönnunum og stöðunnar innanflokks hjá þeim.

Allur aðdragandi málsins er svo augljós og allir flokkshagsmunir þeirra knýja fram þessa niðurstöðu,“ segir Illugi ennfremur aðspurður hvort honum þyki yfirlýsingar úr þingflokki Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs um að endurskoða þurfi umsóknina um inngöngu í Evrópusambandið trúverðugar. „Þeim má ljós vera að þetta er aðalmál Samfylkingarinnar þannig að þeir hljóta að gera sér það ljóst að það er ekkert aftur snúið með þetta.

Þeir munu ekki geta bakkað út úr þessari atburðarás. Og þá er spurningin hvort Samfylkingin er tilbúin að beygja sig til þess að halda ríkisstjórnarsamstarfinu gangandi eða það sem best væri fyrir þjóðina alla að þeir ákveddu bara að fara frá og boðað yrði sem fyrst til kosninga,“ segir Illugi spurður að því hvort hann eigi von á því að ríkisstjórnin fari frá vegna málsins./////Svo mörg voru þau orð Illuga ,og þarf ekki mikið við þau að bæta ,nema segja i einnlægni bara  það sama, og vonum bara um hægt ándlát þessarar umsóknar verði sem fyrst/Halli gamli


mbl.is Umsóknin var andvana fædd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þetta er búið að vera hrikalegur tími að sjá þetta lið vinna gegn almennum þegnum sínum,hlýða síðan regluverki ESB.

Helga Kristjánsdóttir, 14.8.2012 kl. 01:12

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já satt er það að þetta er búinn að vera erfiður tími fyrir Þjóðina sem í einlægni sínu treysti orðum þessara manna, orðum eins og skjaldborginni fyrir heimilin...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 14.8.2012 kl. 05:31

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vill að þetta lið allt verði dregið fyrir landsdóm, bæði fyrir esb málið og Icesave og ekki síst fyrir að tala niður gjaldmiðil okkar í yfir þrjú ár. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.8.2012 kl. 11:16

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þakka innilt ykkar vinkonur mínar!!!

,sé að við erum þarna sammála/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 14.8.2012 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband