Þetta rífur allt samfélagið á hol//Gerið þá eitthvað í þessu V.G.!!!!

„Þetta r

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra.

Þetta rífur allt samfélagið á hol“ Innlent | mbl | 14.8.2012 | 17:09 „Ég er í rauninni að ítreka afstöðu sem ég hef lýst lengi, hve mikilvægt það er að fá lyktir í þetta mál.

Ég hefði haldið að það hlyti að vera orðið öllum ljóst að tímaglasið er að verða útrunnið í þessum efnum,“ segir Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra. í samtali við mbl.is um stöðu mála varðandi umsókn Íslands um inngöngu í Evrópusambandið.

Þá segist hann hafa rökstuddan grun um að sambandið sjálft vilji draga málið á langinn enda vilji það alls ekki að innganga í það verði felld hér á landi. „Þannig yrðum við að velkjast í þessu árum saman þangað til niðurstaða fengist og það er eitthvað sem við getum ekki látið bjóða okkur.

Ég tel reyndar að það sé komið á daginn hvernig þessi samskipti öll líta út og að það sé ekki eftir neinu að bíða að spyrja þjóðina álits,“ segir Ögmundur og bætir við að þegar fulltrúar þjóðarinnar deili um málið á Alþingi og geti ekki komið sér saman um það sé hægur vandi að skjóta því til hennar og láta hana kveða upp úr hvað hún vilji gera. Fá mál verið skoðuð eins ítarlega „

Ég vil láta spyrja einfaldrar spurningar og hún er þessi: Á grundvelli þess sem þegar liggur fyrir, og með hliðsjón af því sem er að gerast innan Evrópusambandsins, vilt þú að Ísland fái aðild að sambandinu? Einhver staðar heyrði ég stjórnmálamann segja að menn mættu ekki vera svona hræddir við fólk. Það á hins vegar við um þá sem ekki þora að skjóta þessu máli til þjóðarinnar en enga aðra.

Stundaglasið er einfaldlega að renna út og það hljóta allir að gera sér grein fyrir því. Við förum ekki með þetta mál óútkljáð inn í nýtt kjörtímabil.“ Þá gefur Ögmundur lítið fyrir ummæli þess efnis að ekki liggi nægar upplýsingar fyrir um það hvað innganga í Evrópusambandið hefði í för með fyrir Ísland svo hægt sé að taka afstöðu til málsins.

„Við erum búin að lifa með þessu Evrópusambandi og öllu þessu aðlögunar- og aðildarferli núna í nokkur ár og að gefa sér það að það viti enginn neitt um það hvað hann er að tala þegar hann tekur afstöðu í skoðanakönnunum eða á opinberum vettvangi. Það er hrokafull afstaða. Það eru fá mál sem hafa verið skoðuð eins ítarlega ofan í kjölinn.“ Horfast verði í augu við veruleikann Spurður um framhaldið í kjölfar ummæla Katrínar Jakobsdóttur, varaformanns Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og mennta- og menningarmálaráðherra, og Svandísar Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, um að endurskoða þurfi umsóknina og hvort vinstri-grænir muni láta brjóta á málinu í ríkisstjórnarsamstarfinu ef á þurfi að halda segist Ögmundur ekki endilega vilja gefa sér neitt um það hvernig tekið verði á því máli. Hins vegar verði að horfast í augu við veruleikann í málinu.

„VG var alltaf með fyrirvara vegna málsins eins og hægt er að fletta upp í þingumræðum þegar umsóknin var samþykkt. Og nú ætti ekki að hafa farið framhjá nokkrum einasta manni að aðstæður allar innan Evrópusambandsins hafa gerbreyst. Þar loga vandræðabálin og þeim fækkar sem vilja ganga inn í það eldhaf.

Þannig að það er svo margt sem veldur því að margir vilja endurskoða afstöðu sína,“ segir Ögmundur en ítrekar að það hafi alltaf verið hans skoðun að hraða ætti því eins og kostur væri að fá einhverjar niðurstöður í málinu og bera þær undir þjóðina. „En nú er hins vegar að koma á daginn að menn vilja þæfa málið og draga það á langinn og það er nokkuð sem við getum ekki látið bjóða okkur.

Þess utan er þetta svo eyðileggjandi fyrir allt þjóðlífið, hvort sem það er hinn pólitíski angi eða sá efnahagslegi, að hafa þetta hangandi yfir okkur. Þetta rífur allt samfélagið á hol og deilir því í fylkingar og hefur staðið ýmsum öðrum hagsmunamálum okkar fyrir þrifum auk þess sem þetta er náttúrulega gríðarlega kostnaðarsamt," segir Ögmundur ennfremur./////"Skipað gæti ég væri mér hlýtt" segir máltækið ,en svona afsakannir eru komnar í þrot fyrir löngu!!En þetta Kannski verður til þessa ,að málið verður látið taka afstöðu til stjórnaslita,en foringinn  er í fríi í Frakklandi,og vill ekki tjá sig !!!! sem er kannski best fyrir hann að segja sem mynnst,nóg er hann búin að verja þetta ferli,og kostnað sem er að drepa okkur,dettur einhverjum í hug að þetta kosti ekki neitt?? það er svo að eins og málin standa, þarna í ESB er þetta bara frágangssök ,að vera lengur að ræða þetta ,bara slíta þessu það er það eina i stöðunni!!!/Halli gamli


mbl.is „Þetta rífur allt samfélagið á hol“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála og þó fyrr hefði verið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.8.2012 kl. 22:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 1045669

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband