Evran samþykkt fyrirvaralaust/þarna sjá menn það svart í hvítu!!!!!!

Evran samþykkt fyrirvaralaust Innlent | mbl | 18.8.2012 | 14:41 „Fyrir nokkrum vikum samþykktu ráðherrÞorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra.ar VG, þar sem þeir sátu við ríkisstjórnarborðið í Stjórnarráðshúsinu, samningsmarkmið Íslands í peningamálum fyrir viðræðurnar við Evrópusambandið,“ segir Þorsteinn Pálsson, fulltrúi í samninganefnd Íslands vegna umsóknar um inngöngu í Evrópusambandið. í föstum pistli sínum í Fréttablaðinu í dag.

Eins og fram kemur í pistli Þorsteins er því lýst yfir í umræddum samningsafstöðu í efnahags- og peningamálum að Ísland stefni að því að tala upp evru sem gjaldmiðil í stað íslensku krónunnar eins fljótt og mögulegt er. Morgunblaðið greindi frá efni samningsafstöðunnar 11. ágúst síðastliðinn en hún hefur ekki enn verið gerð opinber.

Eins og fram kom í frétt blaðsins er ekki farið fram á neinar undanþágur í afstöðunni aðrar en þá að fá venjubundið svigrúm til þess að uppfylla efnahagsleg skilyrði þess að taka upp evruna. Í samningsafstöðunni segir meðal annars orðrétt: „Ísland fellst á regluverkið sem varðar 17. kafla um efnahags- og peningamál eins og það stóð 1. janúar 2012.“ Og ennfremur að Ísland verði þátttakandi í Efnahags- og myntbandalaginu og hyggist „uppfylla allar viðmiðanir varðandi samleitni og taka upp evruna eins skjótt og aðstæður leyfa.“ Þorsteinn segir ennfremur að um málið hafi verið „fyrirvaralaus eining í ríkisstjórn“.

Þá bendir hann á að samkvæmt þingræðisreglunni beri „allir þingmenn stjórnarflokkanna pólitíska ábyrgð á þessari ákvörðun.“ Hann segir þessa samþykkt í ríkisstjórn hins vegar koma illa heim og saman við yfirlýsingar nokkurra ráðherra Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs undanfarið um að taka þurfi umsókn Íslands um inngöngu í Evrópusambandið til endurskoðunar./////////Þetta hefur okkur sem erum á móti þessu ferli alltaf verið ljóst,það þíðir ekki fyrir V.G. að segjast ekki vita þetta!!! en þarna kemur þetta svart á hvítu að við eigum ekkert erinda þarna inn alls ekki/Halli gamli


mbl.is Evran samþykkt fyrirvaralaust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halli. Svona eru allir flokks-formenn og eigendur flokkanna. Ljúga allir í kross, og ætlast svo til að einhver trúi þeim. Ég veit ekki betur en að stjórnarandstaðan hafi staðið á því, fastar en fótunum, að styðja þessi bellibrögð og lygar. Það hafa atkvæðagreiðslur í þinginu sýnt.

Hér er smá upprifjun á Spaugstofu háði, sem segir allt sem segja þarf, og er gott að rifja upp núna: You-tube Stjórnarmyndun Samfylkingar og VG.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 18.8.2012 kl. 19:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1045660

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband