Lilja gefur ekki kost á sér/Mjög slæmt fyrur samtökin að mínu mati!!!

Lilja gefur Lilja Mósesdóttir.ekki kost á sér Innlent | mbl.is | 23.8.2012 | 6:51 Lilja Mósesdóttir gefur ekki kost á sér í embætti formanns Samstöðu, flokks lýðræðis og velferðar, á landsfundi flokksins sem haldinn verður í byrjun október.

Þannig segist hún axla ábyrgð á fylgistapi flokksins undanfarna mánuðiFram að kosningum segist hún munu einbeita sér að störfum sínum á þingi. Lilja nefnir margar ástæður sem liggi baki þeirri ákvörðun að sækjast ekki eftir kjöri.

Þyngst vegi mikill aðstöðumunur milli stjórnmálaflokka hvað varðar fjárframlög úr ríkissjóði og aðgengi að fjölmiðlum. Nýjum stjórnmálasamtökum sé gert að fjármagna kosningabaráttu sína með styrkjum á meðan stóru flokkarnir njóti 22-90 milljóna króna ríkisstyrkja.

Nánast ógerningur sé að koma á framfæri upplýsingum um stefnu og fulltrúa nýrra flokka til almennings því fjölmiðlar haldi ríkisstyrktu flokkunum á lofti en hafi lítinn áhuga á nýjum framboðum.Auk þess séu ný stjórnmálasamtök áhrifalaus á Alþingi.

„Það var aldrei ætlun mín að gerast stjórnmálamaður en mikill meðbyr með málflutningi mínum um fjármálakreppuna varð til þess að ég tók ákvörðun um að bjóða fram krafta mína í síðustu alþingiskosningum,“ segir í yfirlýsingu sem Lilja sendi frá sér í morgun.

„Með framboði mínu vonaðist ég til að geta lagt mitt af mörkum til að endurreisn efnahagslífsins grundvallaðist á hagsmunum almennings.“ Nýtur ekki lengur sama stuðnings Hún segir málefnastarfið og samstarfið við félaga Samstöðu hafa verið gefandi en nú þegar Samstaða njóti ekki lengur sama stuðnings í samfélaginu eins og við stofnun samtakanna sé „nauðsynlegt að staldra við og íhuga framhaldið.“

„Niðurstaða mín er sú að farsælast sé að gefa ekki kost á mér í embætti formanns Samstöðu á landsfundi samtakanna í byrjun október og axla þannig ábyrgð á fylgistapinu. Sem þingmaður mun ég halda áfram að leggja mig fram um að bregðast ekki trausti kjósenda og verja vinnutíma mínum og starfsorku í baráttu fyrir réttlátu samfélagi þar sem meiri jöfnuður, velferð og lýðræði ríkir.“ Landsfundur Samstöðu verður haldinn 6. október n.k. Þar verður kosin stjórn og formaður flokksins.///////Þetta mundi ég segja að væri vont fyrir samstöðu ,flokk sem hefði getað, og kannski gerir sig í kosningum?? en þetta er hennar ákvörun og skarð fyrir skydi að áliti margra,en hún hefur stungið á mörgum kýlum sem þörf er á að leysa ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Lilja gefur ekki kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég man ekki eftir neinu góðu eftir þessa konu.. núll

DoctorE (IP-tala skráð) 23.8.2012 kl. 07:34

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sæll Halli minn. Ég lít á þessa ákvörðun Lilju sem jákvæða ájvörðun. Hún hefur verk að vinna á þingi, og tekur ábyrgð á þeirri vinnu. Það er full vinna að sinna þingstörfum af samviskusemi. Þetta sýnir heilindi hennar í verki.

Það er líka rétt hjá henni að nýjum framboðum með jákvæðar breytingar á stefnuskrá, er haldið niðri með mismunun í fjárstyrkjum frá ríkinu. Það er mjög siðlaust og óréttlátt að ríghalda í gömlu spilltu flokkseigendurna með ofurstyrkjum frá ríkinu, og svelta ný framboð. Það er þessi blinda tryggð margra við gömlu flokkseigenda-klíkurnar, sem standa í vegi fyrir breytingum og réttlæti á Íslandi.

Lilja verður áfram í Samstöðu, þótt hún verði ekki formaður, eftir því sem fréttin segir. Það er gott mál.

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 23.8.2012 kl. 07:42

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

afsakið villuna...jákvæða ákvörðun, átti þetta að vera.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 23.8.2012 kl. 07:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045815

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband