Makríldeilan enn í hnút/Vonandi semjum við ekki af okkur???

Makríldeilan Makríllinn er farinn a skipta miklu fyrir þjóðarbú Íslendinga. enn í hnút Innlent | mbl.is | 3.9.2012 | 18:51 Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra fór fyrir sendinefnd Íslands í viðræðum í London um makríldeiluna í dag.

Maria Damanaki, sjávarútvegssstjóri ESB, var fulltrúi sambandsins. Ekkert þokaðist í deilunni, að sögn Steingríms en málið verður tekið upp á ný á fundi strandríkja í október.

Heildarveiði hefur verið umfram ráðgjöf vísindamanna en makríll er nú farinn að ganga í miklum mæli í íslenska lögsögu og jafnvel hrygna hér við land. Íslendingar krefjast þess að fá að halda hlutdeild sinni síðustu ár í heildaraflanum, hún hefur verið um 16%. „Við erum tilbúnir til að sýna ákveðinn sveigjanleika gegn ríflegum aðgangi að lögsögu annarra þjóða á móti í þágu þess að ná utan um þetta mál," segir Steingrímur.

„Það er viðurkennt að fyrir okkur væri ákveðið verðmæti fólgið í því að hafa möguleika á að sækja eitthvað af makrílnum seinna á sumrinu eða haustinu inn í lögsögu hinna ríkjanna. Visst öryggi væri í slíkum aðgangi og auk þess er fiskurinn þá verðmætari.

Og auðvitað er það verðmætt í sjálfu sér að ná utan um sjálfbæra fiskveiðistjórnun á tegundinni. Við ætlum okkur myndarlegan framtíðarhlut í þessum veiðum og því er það áhyggjuefni fyrir okkur að ekki skuli takast að færa heildarveiðina í átt að ráðgjöf. En þá yrðu allir að draga úr veiðum." Steingrímur sagðist skilja vel að hiti væri í mönnum á byggðarlögum í Skotlandi og á Írlandi þar sem makríllinn skipti miklu máli

. En gagnrökin væru að fyrir Ísland og Færeyjar snerist málið ekki um örfáar byggðir heldur allt hagkerfið

Viðræður um kvótaskiptingu makríls í London í dag leiddu ekki niðurstöðu en enn ber of mikið á milli viðræðuaðila. Þetta kemur fram á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

Í dag fóru fram í London viðræður milli Íslands, Færeyja, Noregs og Evrópusambandsins um makríl. Fundurinn var að hluta sameiginlegur með aðild allra fjögurra en að hluta í formi þríhliða viðræðna Íslands, Noregs og Evrópusambandsins og hins vegar Færeyja, Noregs og Evrópusambandsins. Í lok fundarins komu viðræðuaðilar sér saman um eftirfarandi yfirlýsingu: 1) Viðræður um kvótaskiptingu leiddu ekki til niðurstöðu.

Of mikið ber enn á milli viðræðuaðila. 2) Aðilar eru sammála um að samningsumleitanir haldi áfram á reglubundnum haustfundi strandríkjanna. 3) Viðræðuaðilarnir eru sammála um mikilvægi þess að virða vísindalega ráðgjöf.//////Það vitum við öll að samningar eru ekki bara á annan vegin og okkur ber að semja á forsendum beggja!!, og þær hafa breyst mikið og verður að sokka upp hlutina!!! Við auðvitað eigum að veiða þetta ekki mynna en 16-20% að mínu viti ,en það breytir kannski svolitlu,ef við fáum að veiða í þeirra lögsögu meira!!!En bara svona til hliðar treytum við evrópusambandinu,það er stór spurning?? og þessar hóttanir hafa farið ílla í okkur öll ,frá þeim í ESB--!!!//Halli gamli


mbl.is Makríldeilan enn í hnút
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045684

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband