Færri en 100 eldri þorskar í Norðursjó///Uppörfandi að ganga í þetta bandalag!!!!

Færri en 100 eldri þorskar í Norðursjó Erlent | mbl.is | 17.9.2012 | 16:03 Rannsókn á veiðifeng í evrópskum höfnum hefur sýnt að enginn af þeim þorskum sem veiddist í Norðursjó var eldri en 13 ára gamall.

Þessar niðurstöður valda vísindamönnum áhyggjum af framtíð þorskstofnsins þar. Callum Roberts, prófessor í sjávarlíffræði við Háskólann í York, sagði að ofveiði þýddi að fæstir fiskar næðu meira en fjögurra ára aldri, en þá verÞessi þorskur var ekki í Norðursjó.ður þorskurinn kynþroska.

„Það þýðir að það eru færri hrogn og lirfur til þess að viðhalda stofninum.“ Segir í fréttinni að í Norðursjó séu nú um 65.300 tonn af þorski yfir þriggja ára aldri, en að árið 1971 hafi þorskmagnið verið um 276.000 tonn.

Chris Darby, yfirmaður einnar rannsóknarstofunnar, sagði: „Nýjustu áætlanir okkar gefa til kynna að árið 2011 hafi verið um 600 þorskar á aldrinum 12 til 13 ára í Norðursjó, og að um 200 þeirra hafi verið veiddir.“ Bætti Darby við að enginn þeirra þorska sem veiddist hefði verið eldri en 13 ára

. Greining á þeim gögnum benti því til þess að færri en 100 eldri þorskar væru í öllum Norðursjó. Vísindamennirnir hafa því beðið um að þorskkvótinn í Norðursjó verði lækkaður úr 32.000 tonnum niður í 25.600 tonn./////////Við eru ekki spennt í það að ganga í svona bandalag,eða hvað??Nei það má als ekki koma til greina,og við stöndum fast á því///Halli gamli


mbl.is Færri en 100 eldri þorskar í Norðursjó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1045655

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband