Wenger: Þeir elska að refsa mér///Maðurin lagður í einelti!!!!!!

WSóknarmaðurinn Gervinho og Arsene Wenger á fréttamannafundi...enger: Þeir elska að refsa mér Íþróttir | mbl.is | 18.9.2012 | 8:00 Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, byrjar í kvöld að taka út þriggja leikja bann í Meistaradeild Evrópu þegar lið hans sækir frönsku meistarana Montpellier heim en bannið fékk hann eftir að enska liðið var slegið út af AC Milan í 16-liða úrslitum keppninnar síðasta vetur

Hann sendi þá dómaranum tóninn í leikslok og fékk þar með sitt þriðja bann á einu ári. „Þetta er martröð. Þeir elska að refsa mér en samt vita þeir hjá UEFA ekki hvað má og hvað ekki. Og þegar ég spyr þá um hvað málið snýst geta þeir ekki svarað mér.

Gleymum því ekki að í fyrra var mér refsað fyrir að gera það sem þeir sögðu mér að ég mætti gera," sagði Wenger við fréttamenn í Frakklandi í gær og átti þar við atvik í leik gegn Udinese síðasta haust þegar hann var í banni og hafði samband við aðstoðarstjórann Pat Rice í síma.

„Þegar ég spurðist fyrir um hvers vegna þeir vildu refsa mér svöruðu þeir að ég hefði verið í sambandi við varamannabekkinn. Ég svaraði að þeir hefðu sagt mér að ég mætti það og þá sögðust þeir hafa gert mistök og myndu refsa mér," sagði Wenger og vill frekar fá háa sekt en að vera bannað að sitja á varamannabekknum.

„Margir hjá UEFA, meira að segja Michel Platini, hafa sagt að við eigum að leyfa fólki að vinna vinnuna sína þó því sé refsað. Þetta hindrar menn í vinnunni. Þeir sekta mann og setja mann líka í bann. En ég geri ekki meira úr því, ég mun ræða við mitt lið á hótelinu fyrir leikinn," sagði Arsene Wenger.///////Manni finnst þetta ekki einleikið als ekki,þett er bara íska og öfund!! og ber að taka í geng,það er ekki hægt að lofa ekki mönum eða leistjórum að tala svona bara til skíringar!!Dómara eru orðir einum of viðkvæmir,þetta verður að stoppa!!!!///Halli gamli


mbl.is Wenger: Þeir elska að refsa mér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1045657

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband