Þýska stjórnin missir áhuga á rafbílum/Flítum okkur hægt þarna!!!!!

Þýska stjórnin missir áhuga á rafbílum Bílar | Morgunblaðið | 2.10.2012 | 9:30 Þýska stjórnin hefur fallið frá þeim markmiðum sínum, að á götum Þýskalands verði að minnsta kosti ein milljón rafbíla þegar árið 2020 rennur upp. „Bólan er sprungin,“ segir í sunnudagsblaði Frankfurter Allgemeine.

Það kveðst hafa undir höndum skýrslu frá mennta- og rannsóknarmálaráðuneytinu um að ríkisstjórn Angelu Merkel hafi ýtt áformum sínum um rafbílavæðingu til hliðar.

Miklar vonir sem bundnar voru við mengunarlausa rafbíla hafi snúist upp í gríðarleg vonbrigði, segir blaðið.

Umhverfisráðherrann Peter Altmaier segir þar, að hindranir séu í vegi rafbílavæðingarinnar og efnahagsráðherrann Philipp Rösler hefur hafnað öllum tillögum um að hvetja til kaupa á rafbílum með ívilnunum á kostnað ríkissjóðs.

Sérfræðingar segja, að með stefnubreytingunni sé ríkisstjórnin að játa það sem bílaframleiðendur hafi lengi gert sér grein fyrir, að markmiðin hafi verið óraunhæf.

Í gær, mánudag, var ráðgerður fundur um rafbílavæðingu sem Merkel kanslari boðaði leiðtoga í bílaiðnaði til. Herma heimildir Frankfurter Allgemeine, að áhugi ríkisstjórnarinnar á rafbílum hafi dvínað. Þýskir bílsmiðir segja, að án frekari ríkisstuðnings muni þeir í besta falli geta selt 600.000 rafbíla fram til 2020.

Fyrrnefnt blað segir að boðskapur stjórnarinnar sé nú: „Hvað er svo slæmt við það þótt rafbílavæðingin gangi ekki hratt fyrir sig?“ Rannsóknar- og menntamálaráðherrann Annette Schavan segir að mun meiri tíma þurfi til að þróa rafbílinn til að hann nái fótfestu.

Eigi það ekki síst við um að bæta rafgeyma þeirra. „Sá vandi verður ekki leystur á allra næstu árum,“ segir hún í umsögn sem hún skrifaði fyrir fund Merkel með þýsku bílaframleiðendunum.

Leiðtogi þýsku bílgreinasamtakanna (VDA) sagði í fréttatilkynningu fyrir helgi, að aukinn og vaxandi slagkraftur væri í þróun rafvæddra samgangna í landinu. Fyrstu rafbílarnir væru þegar komnir í notkun og fram til ársloka 2014 myndu þýskir bílsmiðir koma með 15 nýja rafbíla á markað. agas@mbl.is///////þetta eru fréttir sem maður tekur nokkuð mark á!! því bifreiðaframleiðendur hafa tekið við sér og framleiða bifreiðar sem eiða mjög litlu,og það gott svo og metan og metanól í boði,metan er hægt að framleiða úr lífrænu sorpi og þarft að gera mjög!!!og ætti að vera skylda bara að nýta það,bara stóru svínabúin gætu það!!! en þessi frétt kemur manni ekki á óvart,þessi langdrægni rafbíla er áfátt og víða ekki bara miða við á Íslandi!! er rafmagn dýrt!í heiminum!!!en þetta mun þróast og það tekur bara tíma og á köldum stöðum ekki kannski hagkvæmt,jafnvel ekki heldur á mjög heitum stöðum!!þar þarf kælingu!!!en Þjóðverjar vita þetta allt,ekki spurning,og við skulum bara skoða þetta einnig!!!Halli gamli


mbl.is Þýska stjórnin missir áhuga á rafbílum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045798

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband