Vilja breyta framtíðarsýninni/Auðvitað mega menn hafa sýnar skoðanir,en þeir verða að þola minnihluta!!!

Vilja b Benedikt Jóhannesson reyta framtíðarsýninni Innlent | mbl.is | 2.10.2012 | 20:02 Fyrrverandi ráðherrar og framámenn í viðskiptalífi og hreyfingum launafólks komu saman í dag til að ræða þróun mála í þjóðfélaginu

. Hópurinn segir framtíð með lægri launum, dýrara lánsfé og minna athafnafrelsi blasa við ungu fólki á Íslandi og þessu þurfi að breyta. Fólkið mun eiga það sameiginlegt að hafa áhyggjur af ástandinu í þjóðfélaginu og hvernig umræður þróast. Í kjölfar fundarins sendi hópurinn frá sér sameiginlega ályktun.

„Með þessu viljum við hvetja stjórnmálamenn til að ræða um mikilvægustu verkefni stjórnmálanna. Að tryggja sambærileg lífsgæði hér á landi og í grannlöndunum,“ segir Benedikt Jóhannesson stærðfræðingur sem er einn þeirra sem stóðu að fundinum. Á fundinum fluttu fimm einstaklingar erindi.

Það voru Kristrún Heimisdóttir þingmaður, Vilmundur Jósefsson, formaður SA, Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi ráðherra, Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. Ályktunina má finna hér: SAMSTAÐA UM ÞJÓÐARHAGSMUNI „Mikilvægasta verkefni íslenskra stjórnmála er að tryggja sambærileg lífskjör og í grannlöndum.

Við ungu fólki á Íslandi blasir hins vegar framtíð með lægri launum, dýrara lánsfé, minna athafnafrelsi og veikara velferðarkerfi. Þessari framtíðarsýn þarf að breyta. Fyrirsjáanlegt er að Ísland muni búa við takmarkanir á viðskiptafrelsi um langa framtíð verði ekkert að gert.

Þær hugmyndir sem uppi eru um nýtt form gjaldeyrishafta sýna – svo að ekki verður um villst – að óbreytt staða er óhugsandi og endurskoðun samningsins um Evrópska efnahagssvæðið er óhjákvæmileg. Stöðu Íslands á innri markaðnum verður að styrkja og jafna samkeppnisstöðu við nágrannalönd.

Því er nauðsynlegt að ná breiðri samstöðu um þessi brýnustu markmið: Agaða hagstjórn sem samræmi stefnuna í ríkisfjármálum og málefnum atvinnuveganna markmiðinu um fjármálastöðugleika og upptöku nothæfs gjaldmiðils. Traustan pólitískan stuðning við efnahagsmarkmiðin og aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Einungis þannig næst fram eins hagstæður samningur og mögulegt er, sem þjóðin tekur síðar afstöðu til. Nýja raunhæfa áætlun um aðildarviðræðurnar með hliðsjón af aðstæðum hér heima og í Evrópu, sem gefur rýmri tíma til að ná samstöðu sem tryggi hagsmuni þjóðarinnar. Sú breyting á stjórnarskránni taki gildi sem tryggir að þjóðin geti tekið þessar brýnu ákvarðanir um stöðu Íslands í Evrópu á næsta kjörtímabili.

Ekki er rökrétt að veikja stöðu Íslands með því að loka á einstaka kosti meðan ekki er vitað að aðrir séu færir. Við skorum því á fólkið í landinu að taka höndum saman um öfgalaus viðhorf, að beita áhrifum sínum til að þrýsta á stjórnmálaflokkana og treysta samstöðu um þjóðarhagsmuni, festu í alþjóðasamskiptum og eflingu hagstjórnar á Íslandi.

Þannig verða samkeppnishæfni og ásættanleg lífskjör þjóðarinnar tryggð til framtíðar.“ Reykjavík, 2. október 2012, Eftirfarandi skrifuðu undir yfirlýsinguna. Starfsheiti aðeins til glöggvunar, en allir mættu til fundar sem einstaklingar en ekki fulltrúar annarra.

Ari K. Jónsson, rektor HR Andrés Magnússon, frkvstj. Samt. verslunar og þjónustu Andrés Pétursson, Alþjóðastofnun HÍ Árni Gunnarsson, fv. alþm. Árni Oddur Þórðarson, Eyri Baldur Þórhallsson, HÍ Benedikt Jóhannesson, frkvstj. Talnakönnunar Björn Sigurbjörnsson, fv. ráðuneytisstj. Bolli Valgarðsson, ráðgjafi Einar Stefánsson, læknir Erna Bryndís Halldórsdóttir, lögg. end. Finnbjörn A. Hermannsson, form. Samiðnar Finnur Oddsson, frkvstj. Viðskiptaráðs Friðrik Pálsson, forstj. Hótels Rangár G.Valdimar Valdimarsson, kerfisfr. Gísli Hjálmtýsson, frkvstj. Thule Grímur Sæmundsen, forstj. Bláa lónsins Guðmundur Gunnarsson, verkalýðsforingi Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ Gylfi Sigfússon, forstj. Eimskips Halldór Einarsson, Henson Halldór Halldórsson, form. Samb. ísl. sveitarfél. Hanna Katrín Friðriksson, frkvstj. hjá Icepharma Hannes G. Sigurðsson, aðstfrkvstj. SA Haraldur Flosi Tryggvason, form. stj. Orkuveitunnar Helgi Magnússon, iðnrekandi Hilmar B. Janusson, deildarforseti, HÍ Hilmar P. Valgarðsson, Eimskipafél. Hjörleifur Pálsson, Össuri Jóhann R. Benediktsson, HBT International Jón Ásbergsson, Íslandsstofu Jón Ingvarsson, lögfr. Jón Kristjánsson, fv. alþm. Jón Sigurðsson, fv. form. Framsóknarfl. Jón Sigurðsson, Össuri Karl Steinar Guðnason, fv. alþm. Kolbeinn Kolbeinsson, Ístaki Kolbrún Hrund Víðisdóttir, frkvstj. 19. hæðar og Turnsins Kristín Pétursdóttir, Auði Capital Kristján Þorsteinsson, Marel Kristrún Heimisdóttir, lektor Loftur Árnason, Ístaki Magnús Geir Þórðarson, LR Margrét Guðmundsdóttir, Icepharma Margrét Kristmannsdóttir, Pfaff Páll Rafnar Þorsteinsson, stjórnmálafr. KOM Pétur J. Eiríksson, form. Hörpu Ragnheiður Kolsoe, þróunarfulltr. Rannveig Guðmundsdóttir, fv. alþm. Sigsteinn Grétarsson, Marel Sigurður Harðarson, Centra Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, frkvstj. Já Íslands Stefán Jón Hafstein, Þróunarsamvinnust. Stefán Thors, Skipulagsstofnun Svana Helen Björnsdóttir, form. SI Ellisif Tinna Víðisdóttir, Thule Thomas Möller, Rými Valgerður Sverrisdóttir, fv. utanríkisráðh. Vésteinn Ólason, próf. Vilhjálmur Egilsson, frkvstj. SA Vilhjálmur Þorsteinsson, fjárfestir Vilmundur Jósefsson, form. SA Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, alþm. Þorkell Sigurlaugsson, form. Framtakssjóðsins Þorsteinn Pálsson, fv. forsætisráðh. Þórður Magnússon, Eyri Þórður Sverrisson, forstj. Nýherja Þórunn Sveinbjarnardóttir, fv. ráðh. Þráinn Þorvaldsson, Saga Medica. Þröstur Ólafsson, fv. frkvstj. Sinfóníunnar Örn Gústafsson, Okkar líf

//////ÉG gat nú ekki séð allt þetta fólk á fundinum í sjónvarpinu ,en það er ekki málið!!! það er aftur af hverju eru menn að rísa upp núna!!! en ekki bara þola að vera í minnihluta!!! eða er þetta bara stofnun á einum flokki ennþá!!!!,eða geta bara menn þá ekki verið í samfylkingu sem bara trúir á ESB eins og þetta fólk virðist gera,þrátt fyrir mjög slæmt gengi þess undanfarið!!! og  mun fara versnandi mjög,svo taka þessi menn fram sem eru fyrir verkalýðnum sumir að þeir komi sem sjalfstæðir!!!þeir ættu þá bókstaflega að segja af sér þeim stöðum sem þeir gegna,ég segi bara sjálfur uppá mitt einsdæmi ,far vel Frans!!!!!Ef þeir þola ekki að t.d. kjósa um hvort við eigum að halda þessu áfram þá hvað er það ekki lyðræðið!!!/Halli gamli


mbl.is Vilja breyta framtíðarsýninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 1045663

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband