Kínverskt fyrirtæki stefnir Obama/Sammála kínverjum þarna,afdrifarík ákvörðun Obama???

Kínverskt fyVindmylla. Myndin tengist fréttinni ekki beint. rirtæki stefnir Obama Erlent | AFP | 3.10.2012 | 17:04 Kínverska vindmyllufyrirtækið Ralls Corp hefur stefnt Barack Obama Bandaríkjaforseta fyrir að hafa skrifað undir tilskipun til þess að stöðva kaup þess á fjórum vindmylluverkefnum í Oregon.

Þetta er í fyrsta skipti í 22 ár sem erlent fjárfestingaverkefni er stöðvað af bandarískum yfirvöldum. Obama bar fyrir sig þjóðaröryggishagsmunum, í ljósi þess að vindmyllurnar standa nærri starfsstöðvum bandaríska sjóhersins Kínverjarnir saka hins vegar forsetann um að fara út fyrir valdssvið sitt með ólögmætum hætti.

Engar sannanir hafi verið lagðar fram sem styðji þá fullyrðingu að starfsemi Ralls Corp gæti ógnað þjóðaröryggi Bandaríkjanna.

Kínverska fréttastofan Xinhua segir í fréttum sínum af málinu að það byggist á hatursáróðri gagnvart Kína og markmið Obama sé að heilla kjósendur úr röðum verkamanna. Mitt Romney, mótframbjóðandi Obama, hefur gagnrýnt hann fyrir of mikla linkind gagnvart Kínverjum.

BBC bendir á nýlega skoðanakönnun sem áhugavert að hafa í huga í ljósi ákvörðunar Obama. Niðurstöður hennar voru m.a. þær að bandarískur almenningur lítur fremur á Kínverja sem keppinauta en sem óvin eða bandamann.

Á sama tíma sögðust 52% aðspurðra telja að uppgangur Kína væri helsta ógnin við Bandaríkin. Mánuður er til forsetakosninga í Bandaríkjunum.////////Það er mín skoðun að Obama hafi leikið af sér þarna!!það eru að koma forsetakosningar og einvígi þeirra frambjóðanda núna í kvöld,þetta er ekki gott að fá Kínverja mikið upp á móti sér eins og aðstæður eru núna,skuldir Bandaríkjana við þá er svo gígantíkst að það ber að fara varlega áað stykkja þá,láta bara  Romney um það,það væri skinsamlegra að mínu áliti,en Það er ekki spurning að Obama slær Romney við í kappræðum um utanríkismál,hann er að verða þjálfaður þar mjög,en þetta segi ég bara til framdráttar Obama þvi ekki vil ég Romney sem Forseta Bandaríkjana!!!/Halli gamli


mbl.is Kínverskt fyrirtæki stefnir Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045708

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband