Glímdu harkalega um efnahagsmál//////Það er svo gott að vera á hliðarlínununi og segjast gera betur!!!!

Glímdu harkalega um efnahagsmál Erlent | mbl.is | 4.10.2012 | 5:03 Barack Obama forseti og forsetaefni Repúblikanaflokksins, Mitt Romney, tókust harkalega á í fyrsta sjónvarpseinvígi þeirra af þremur vegna forsetRomney og Obama í einvíginu í nótt. akosninganna í næsta mánuði. Fóru kappræðurnar fram í Denver í Coloradoríki og snerust fyrst og fremst um efnahagsmálBarack Obama forseti og forsetaefni Repúblikanaflokksins,

Mitt Romney, tókust harkalega á í fyrsta sjónvarpseinvígi þeirra af þremur vegna forsetakosninganna í næsta mánuði. Fóru kappræðurnar fram í Denver í Coloradoríki og snerust fyrst og fremst um efnahagsmál. Í rúma hálfa aðra klukkustund tókust forsetaframbjóðendurnir tveir á um skattamál, umbætur í heilbrigðiskerfinu og hlut hins opinbera í daglegu lífi. Obama hefur náð smávegis forskoti undanfarið samkvæmt skoðanakönnunum og var einvígið því mikilvægt fyrir Romney ætlaði hann sér að brúa bilið og ná undirtökum.

Því sótti hann stíft fram gegn forsetanum í einvíginu. Að mati fréttaskýranda breska útvarpsins, BBC, var Romney líflegri í ræðupúltinu, með gott vald á upplýsingum og gögnum, yfirtalaði umræðustjórnandann og greip oft fram í fyrir forsetanum. Að sama skapi hafi Obama virkað óstyrkur í byrjun og þótt hann hafi komist í gang og náð góðum takti hafi hann gripið til þess ráðs að tala lengi í fyrirlestrastíl í stað þess að rökræða og rífast beint við keppinaut sinn.

„Forsetinn er eiginlega sömu skoðunar og er hann var í framboði fyrir fjórum árum, að eyða meira, skattleggja meira, vera afskiptasamari væri ráðið, ríkisstjórn sem er með puttana í öllu. Það er ekki sú leið sem Bandaríkin þarf á að halda,“ sagði Romney. Hann hét því að lækka ekki skatta á auðmenn og sagði Obama hafa misskilið skattastefnu sína.

Hann gagnrýndi og Obama fyrir að hafa ekki lækkað fjárlagahallan um helming eins og hann hefði lofað 2008 og sagði Bandaríkin ekki geta leyft sér að feta sömu skuldastigu og Grikkland og Spánn hefðu fetað sig niður eftir.

Til að lækka hallan sagðist Romney myndu meðal annars uppræta lög Obama um umbætur í heilbrigðisþjónustunni frá 2010 og hætta fjárstuðningi við ríkissjónvarpið. Obama hristi af sér gagnrýni á fjármálastjórn sína og sneri vörn í sókn með því að halda því fram, að ekki væri neitt jafnvægi í hugmyndum Romney um að draga úr ríkishallanum. „Það verða að koma til tekjur til viðbótar niðurskurði,“ sagði Obama og sagðist vilja sjá endi á skattaafslætti olíufyrirtækja og vegna rekstur forstjóraþota.

Rauði þráðurinn í orðum Romney í kappræðunni var að stjórn Obama á efnahagsmálum hafi verið hrakför ein. Til marks um það væri 8,1% atvinnuleysi og lítill vöxtur í atvinnulífi. Kæmist hann aftur á móti til valda myndi reynsla sín duga til að koma atvinnu- og efnahagslífinu aftur í gang.

Obama sagði mótframbjóðanda sinn aftur á móti fátt fram að færa nema uppsoðnar misheppnaðar lausnir repúblikana sem orsakað hefðu hrunið 2008. Hann sagðist vilja skattleggja ríkustu Bandaríkjamennina til að minka fjárlagahallann og sagði hugmyndir Romney í þeim efnum fallnar til þess að bitna harkalega á millistéttinni.//////////Það er svo gott að vera á hliðarlinuni og rífa kjaft og seigast gera allt betur,það er svo annað að standa við það!!!auðvitað var talandi Romney mikið meiri og árásir skæðar og oft rökfastar,og jafnvel Obama komst í vörn!!en þetta lagaðist er á leið,og Obama kannski ekki ein skellegur og Romney,en hann vill tryggingar allra og skattleggja þá ríku,en það vill Romney ekki heldur ekki millistéttina sem er stór í Banaríkjunum!!verður að borga sitt!!! en hinir lægri mynna,það bar einnig mikið á milli í atvinnumálum!!!þar segist Romney ættla gera stóran skurk,en það er svo gott að segja,hann tók ekki eins og Obama við öllu tómu eftir stjórn republika síðustu 8 árin fyrir sína foretatöku,það var allt í rúst,stríðátök og heimsyfirráða stefna,sem hann á síðustu 4 árum hann hefur verið að glíma við!!!kannski vann Romney fyrsta einvígið,en þau næstu tvö mun Obama eflaust vinna!!!!//Halli gamli 


mbl.is Glímdu harkalega um efnahagsmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045708

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband