Obama kallar eftir rétta Romney///Semsagt umskiftingur??????

ObamaRomney og Obama í einvíginu í gærnótt.  kallar eftir rétta Romney Erlent | mbl.is | 4.10.2012 | 20:43 Barack Obama, Bandaríkjaforseti, ætlar ekki að að leggjast í kör þrátt fyrir að það sé mál manna að andstæðingur hans í bandarísku forsetakosningunum,

Mitt Romney, hafi haft betur í fyrstu umferð kappræðna frambjóðendanna. Obama kallaði eftir því, á kosningafundi með stuðningsmönnum sínum í Denver, að „hinn raunverulegi Mitt Romney“ stigi fram. Sagði hann að sá Romney sem hefði mætt í fyrstu kappræðurnar væri ekki sá sami og hefði lofað umtalsverðum skattalækkunum áður.

Hann hefði sveigt sér undan óþægilegum spurningum. „Ég hitti þennan kankvísa mann sem segist vera Mitt Romney,“ sagði Obama. „En þetta getur ekki hafa verið Mitt Romney því hinn raunverulegi Mitt Romney hefur undanfarið ár farið um landið og lofað 5 trilljónum dollara skattalækkunum.“ „Sá sem var á sviðinu í gærkvöldi þóttist ekkert kannast við það.

Hinn raunverulegi Mitt Romney sagði að við þyrftum ekki fleiri kennara í skólana. Sá sem var á sviðinu í gær, hann elskar kennara, getur hreinlega ekki fengið nóg af þeim,“ sagði Obama í háðstón.

„Ef þú vilt verða forseti, þá skuldar þú Bandaríkjamönnum sannleikann,“ sagði Obama Pólitískir skríbentar í Bandaríkjunum telja að með orðum sínum sé Obama að reyna að beina umræðunni frá því að hann hafi staðið sig illa í fyrstu kappræðunum.

Um 40 milljónir manna horfðu á kappræðurnar í sjónvarpi. Romney mætti hins vegar óvænt á fund íhaldsmanna á ráðstefnu í Colorado.

Þar sagði hann að þrátt fyrir að honum hafi gengið vel í kappræðunum sé enn langt í land. „Þetta verður jöfn barátta til enda,“ segir Romney. „Við þurfum að vinna í Colorado. Þið vitið að ef við gerum það þá vinnum Hvíta húsið til baka,“ segir hann.////////Maður verður nú að vera mikið sammála Obama þarna,Romney kom allt annar maður en verið hefur,og það var ábyggilega planaðtil að reyna að kom Forsetanum í opna sjöldu,sem honum tókst að hluta,en það verður ekki endurtekið,Forsetin mun sjá við því,ekki spurning,svona má öllum gera að snúa öllu við fyrri sagnir!!!en það munum við sjá næst!!!!Halli gamli


mbl.is Obama kallar eftir rétta Romney
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045720

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband