Erfitt að vera leiðinlegi maðurin////EN HVER ER HANN,ER ÞAÐ EKKI R-LISTIN????

ErfittStjórn Orkuveitu Reykjavíkur, eins og hún var skipuð fyrir... að vera leiðinlegi maðurinn Innlent | mbl.is | 10.10.2012 | 18:31 Lýsingar stjórnarmanna í Orkuveitu Reykjavíkur á því hvernig það hafi verið að sitja í stjórninni benda til að stjórnin hafi ekki starfað eins og hefðbundnar stjórnir í stórum fyrirtækjum. Úttektarnefnd OR leggur til að stjórnin verði í framtíðinni ekki skipuð stjórnmálamönnum

. Í skýrslu úttektarnefndarinnar er vitnað beint í nokkra af viðmælendum nefndarinnar með svipuðum hætti og gert var í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Haft er eftirfarandi eftir Guðlaug Þór Þórðarsyni sem sat í stjórn OR og var um tíma stjórnarformaður fyrirtækisins:

„Það er erfitt að vera alltaf leiðinlegi maðurinn. Það er svolítið barnalegt þegar talað er um samvinnustjórnun. Það er ekki vandinn. Vandinn er sá að menn hafi það í rauninni of kósý.

Segjum það að við værum saman í stjórninni og við þrjú hér í meirihluta og okkur kemur ágætlega saman. Klókur formaður tryggir góðan móral og að hópurinn geri eitthvað skemmtilegt saman og kannski þá mökunum.

En síðan koma einhverjir úr minnihlutanum og eyðileggja móralinn með því að ráðast á okkur og eru að bóka í sífellu, eru partíspillar. Kósýheitin – þau geta verið slæm. Kósý-bandalagið er líka hættulegt fyrir kjósendur. Ég hafði reglulega samskipti við fjölmiðla af því að ég var mjög ósáttur hvert Orkuveitan stefndi.

Ég bara hafði mjög sterka sannfæringu fyrir því að menn hafi verið algjörlega úti á túni. Það var ástæðan fyrir því að ég bókaði mikið.

Ég vildi að Orkuveitan héldi sig frá samkeppnisstarfsemi. Menn eru að átta sig á því núna að ég hafði rétt fyrir mér og það mörgum milljörðum seinna.“

Úttektarnefndin vekur einmitt athygli á að oft og tíðum hafi stjórnarmenn sent frá sér mjög langar bókanir. Slíkt sé óvenjulegt í hefðbundnum stjórnum fyrirtækja.

Fundargerðir stjórnar eru núna opinberar Kjartan Magnússon sagði þetta um stjórnarfundina: „Stjórnarmönnum ber að gera athugasemdir við vinnubrögð, telji þeir að ekki sé rétt að verki staðið. Þessar athugasemdir geta verið munnlegar eða skriflegar eftir atvikum hverju sinni.

Í stjórn Orkuveitunnar er bókanahefð í fundargerðum líkari því sem tíðkast í nefndum og ráðum á sveitarstjórnarstiginu, en í fundargerðum stjórna einkafyrirtækja þar sem upplýsingar eru oft afar takmarkaðar.

Þetta er eðlilegt enda er Orkuveitan opinbert fyrirtæki og því rétt að almenningur fái upplýsingar um ákvarðanir stjórnar og hvernig þær eru teknar. Ekki síst þess vegna var mjög óheppilegt að fundargerðir Orkuveitunnar voru árum saman lokaðar almenningi og fjölmiðlamönnum en fyrsta verk mitt í meirihluta stjórnar var að leggja fram og fá samþykkta tillögu um að þær yrðu allar birtar á heimasíðu fyrirtækisins. Nú hafa fundargerðirnar verið opinberar í fjögur ár og hefur slíkt gagnsæi tvímælalaust verið til bóta.

Enginn heldur því lengur fram að slíkt gagnsæi hái starfsemi fyrirtækisins en á meðan fundargerðirnar voru leynilegar var því oft haldið fram og jafnvel í sölum borgarstjórnar.“ „Skrautlegir“ stjórnarfundir Guðmundur Þóroddsson var forstjóri Orkuveitunnar en hann segir þetta um stjórnarfundina: „Stjórnarfundir OR voru oft mjög skrautlegir og þar var oft enn verið að útkljá þau mál sem deilt var um í borgarráði og oft var megnið af stjórn OR í því.

Það var verið að skjóta pólitískar keilur. Í restina var þetta orðið mjög erfitt þar sem stjórnarmenn sátu með tölvur sínar á stjórnarfundum og láku fréttum í fjölmiðla og fóru misjafnlega rétt með. Á hinn bóginn var sæmileg sátt um flest mál og voru eflaust um 90% mála afgreidd án ágreinings enda flest málefni stjórnar OR ekki pólitísk.“ Sigrúnu Elsa Smáradóttir sat í stjórn OR fyrir hönd R-listans:

„Ég hef setið í stjórnum annarra fyrirtækja sem tengjast ekki Reykjavíkurborg og mín reynsla þaðan er að stjórnendur leggi sig fram um að hlusta á sjónarmið allra stjórnarmanna og ná sameiginlegri niðurstöðu í mál. Þetta átti ekki við um Orkuveituna.“ Helga Jónsdóttir sat einnig í stjórn OR um tíma:

„Ég hef aldrei verið í stjórn sem mér finnst hafa verið jafnfjarri því og stjórn Orkuveitu Reykjavíkur að skynja grundvallarleikreglur í stjórnun fyrirtækis, og skilin milli stjórnmála og fyrirtækjareksturs, með sama hætti og ég geri.

“ Vill losna við stjórnmálamenn úr stjórn OR Úttektarnefndin segir að nauðsynlegt sé að spyrja hvort eðlilegt sé að sveitarstjórnarmenn sitji í stjórn Orkuveitunnar

. „Ávinningur er að takmarka hlutverk þeirra við að tryggja hagsmuni íbúa sveitarfélagsins og í umboði þeirra skilgreina hlutverk þessara opinberu fyrirtækja.

Ókostur við að sveitarstjórnarmenn sitji í stjórnum fyrirtækja eins og Orkuveitu Reykjavíkur, er að með því er ekki tryggt að í stjórn sé að finna nægjanlega faglega þekkingu og reynslu sem skiptir sérstaklega miklu máli þegar um er að ræða fyrirtæki eins og Orkuveitu Reykjavíkur.

Með því að sveitarstjórnarmenn sitji ekki í stjórn er líka girt að mestu fyrir möguleika á að pólitísk átök og óeining einkenni starf stjórnarinnar og verkefni stjórnar séu vanrækt samhliða eins og var á tímabilum í tilviki Orkuveitunnar.“

Tengdar fréttir — Úttekt á Orkuveitu Reykjavíkur Löngu tímabærar aðgerðir í OR 19:05 Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, telur að skýrsla úttektarnefndar um Orkuveitu Reykjavíkur (OR) staðfesti að aðgerðir sem núverandi meirihluti borgarstjórnar greip til varðandi rekstur OR hafi verið löngu tímabærar. Meira Forstjórinn átti að sinna stefnumótun Hjörleifur svaraði nefndinni ekki Fjárfesting stóð ekki undir vöxtum Leynd um fjármögnun Gagnaveitunnar//////EKKI BÆTIR ÞAÐ ÚR MÁLUM AÐ TALA VIÐ JÓNN GNARR,eða hvað!!!,nei það er sem betur fer!!! ef vel á að fara nóg er af mistökum komið!!og mikið meira en það!!!en ég er ekki að kenna neinum umfram aðra þetta svínarí allt,samt er byrjunin eins og allt fyrir kreppu að R- listin og don Alfreð eru stór orsök og engin getur fyrir það þrætt!!!síðan hefur þetta fylgt þessu of stór höll bygð og rækuæfintýri og alskona vitleysa framkvæmt!!!En er ekki alltaf verið að tala um að þessu verði breytt??er þá ekki hægt að treysta pólitíkusum eins og öðrum fyrir þessu ,ef við treystum þeim til að stjórna Borginni og hún á þetta,því ekki að hafa ábyrga???þetta er fyrirslátturcað geti ekki gengi,er betra að gera þetta ríki í borginni,eins og Seðlabánkan sem er að setja okkur á hausinn,eins og ríkisstjórn okkar einnig ,þetta var löngu allt vitað,og við bara tökum í þessu öll saman og gerum þetta okkar besta fyrirtæki,ekki selja nema höllina og bruðlið allt,þar af Perluna einnig sem á að skila arði,en gerir ekki því miður!!!//Halli gamli 


mbl.is Erfitt að vera leiðinlegi maðurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað sem segja má um Gnarrin þá tók hann vel á málum OR.

Raunsær (IP-tala skráð) 10.10.2012 kl. 21:58

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Eins og han svar von og vísa það kom þá svar sem ´tti við meinar þú!!!!!Kveðja RAUNSÆR!!!!!

Haraldur Haraldsson, 11.10.2012 kl. 08:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband