Ásta Kristín vill 3. sæti í NA-kjördæmi/Flott að fá konur í famboð,áfram sjálfstæðismenn kjósið þessa endilega!!!

ÁÁsta Kristín Sigurjónsdóttir sækist eftir 3. sæti hjá...sta Kristín vill 3. sæti í NA-kjördæmi Innlent | mbl.is | 13.10.2012 | 20:28 Ásta Kristín Sigurjónsdóttir býður sig fram í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi vegna þingkosninganna á næsta ári.

Hún er viðskipta- og markaðsfræðingur að mennt og hefur starfað náið með fyrirtækjum á Austurlandi síðustu átta ár. samkvæmt framboðstilkynningu. Ásta starfar nú sem verkefnastjóri hjá Austurbrú og bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð.

„Ég tel mikilvægt að styðja betur við lítil og meðalstór fyrirtæki og að vöxtur atvinnulífsins sé forsenda þess að byggja upp nýtt og betra Ísland. Í mínum huga er fjölbreytni í atvinnulífi mikilvæg og að styðja verði betur við frumkvæði einstaklinga til að byggja upp starfsemi sína.

Finna verði leiðir til aukinnar sjálfbærni skapandi greina á Íslandi og að rekstarskilyrði fyrirtækja verði bætt auk þess að gæta að jafnræði þegar kemur að endurskipulagningu fyrirtækja

. Mikilvægt er að leggja fram raunhæfa áætlun í efnahagsmálum sem stuðlar að skattalækkun til frambúðar, hlúa þarf að grunnstoðum atvinnulífsins og gera þeim kleift að stunda arðbæran rekstur. Jafna þarf menntunarmöguleika fólks á landsbyggðinni og gefa fólki kost á að sækja sér háskólamenntun á því svæði sem það hefur búsetu, í gegnum fjarnám.

Til að byggja upp sterkt og öflugt samfélag þarf að vera gott samspil milli menntunar og atvinnulífs. Styrkja þarf tiltrú almennings á Alþingi og brúa það bil og vantraust sem myndast hefur á síðustu árum, nauðsynlegt er að breyta ýmsum starfsháttum og vinna heilshugar að málefnum sem snerta alla íbúa landsins.

Mikil gjá og almennt skilningarleysi ríkir oft á mismunandi aðstæðum fólks eftir því hvort það býr á landsbyggðinni eða höfuðborgarsvæðinu, þessa gjá þarf að fylla uppí með auknu upplýsingaflæði og gagnkvæmri virðingu fyrir mismunandi áherslum milli svæða og mikilvægi þess að halda uppi sterku þjónustustigi allra landshluta,“ segir ennfremur í tilkynningunni./////////Þrátt fyrir að vera R.víkingur í húð og hár ekki ég mikil landsbygðarmaður,var mikið i sveit hér áður á yngri árum,í Eyjafirði og Dölunum og Árnesþingi  og Rangárþingi, og Strandasýslu ,hefi alltaf hafi miklar taugar á lansbygðina,og þessa vegna vil ég að við kjósum einnig konur þar sem eru auðvitað ekkert verri !!!en  Borgarbörnin þegar upp er staðið als ekki,ef ekki bara betri en þetta var nú djók!! en samt endilega sjálfstæðismenn fleiri konur sem eru jafngóðar köllum,,sumir segja betri,en ég segi jafnt!!!!!!/Halli gamli


mbl.is Ásta Kristín vill 3. sæti í NA-kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045798

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband