Engin beiðni um alvarlegt ástand búfjár barst///þetta er skrítið mál!!!!!


Björgunarsveitarmenn leita lamba.

Engin beiðni um alvarlegt ástand búfjár barst Innlent | mbl.is | 15.10.2012 | 18:25 Engin beiðni um aðstoð eða önnur tilkynning barst lögreglunni á Blönduósi um alvarlegt ástand búfjár eða önnur atvik þegar hausthretið gekk yfir 10. og 11. september né heldur næstu daga á eftir.

Þetta segir sýslumaðurinn á Blönduósi sem segir að greið leið hafi verið til að upplýsingum um neyðarástand til lögreglu.

Sýslumaðurinn sá ástæðu til að senda frá sér yfirlýsingu vegna frétta um búfjárskaða sökum hausthretsins sem gekk yfir Norðurland þann 10. – 11. sept. sl.

Hann segir að 24. sept. sl. voru lögreglustjórar á Norðurlandi boðaðir á fund daginn eftir með almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Á fundinum hafi komið fram að fyrirhugað væri að halda umfangsmikla leit að búfé á öllu Norðurlandi helgina 28. - 30. sept. sl. og gert var ráð fyrir að ríkisstjórnin myndi leggja út ákveðna upphæð til verksins.

„Fram kom á fundinum að þrír matsmenn höfðu farið um Norðurland á vegum almannavarnanefndar ríkislögreglustjóra til að meta ástandið. Þeir höfðu hitt fyrir svæðisstjóra björgunarsveita, búnaðarráðunauta, bændur, fjallskilastjóra og sveitarstjórnarfólk í umdæmum almannavarna á öllu Norðurlandi.

 Gert var ráð fyrir skipulagi almannavarna við leitina en verkstjórn myndi verða í höndum svæðisstjórna björgunarsveita og búnaðarráðunauta á hverju svæði. Þann 27. sept. sl. kom tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra um að fyrirhuguð leit og björgun sauðfjár á Norðurlandi ætti að fara fram framangreinda helgi og voru leitarsvæðin tilgreind: Skagafjörður og Þingeyjarsýslur.

Þar sem Húnavatnssýslur voru ekki tilgreindar sem leitarsvæði þá hafði undirritaður þegar samband við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og fékk þau svör að það væri niðurstaða „heimamanna“ að aðstoðar væri ekki þörf í þessu leitarátaki og því hefðu Húnavatnssýslurnar verið felldar út.

“ Sýslumaðurinn segir að með vísan til þess hafi ekki þótt ástæða til þess að lýsa yfir almannavarnaástandi í Húnavatnssýslum en hins vegar hafi björgunarsveitarmenn aðstoðað bændur dyggilega við leit að búfé í umdæminu.

„Til upplýsingar vill undirritaður geta þess að í almannavarnanefnd Húnavatnssýslna sitja allir sveitarstjórar umdæmisins ásamt undirrituðum og þvi greið leið að koma upplýsingum um neyðarástand til þeirra eða lögreglunnar á Blönduósi. Undirritaður hefur ákveðið að kalla fljótlega saman almannavarnanefnd Húnavatnssýslna og helstu aðila sem að þessu ástandi komu.“///////////////Ennþá er verið að fjalla um þetta áhlaup sem var að mínu mati spáð,ég las um það strax þann 8/9 og þá var spáð krappri lægð og úrkomu mikilli og hitstigið ekki víst en það var talið um +1-2´C en auðvitað gat það orðið frost??og þá auðvitað snjókoma!!en það er engin að kenna neinum um neitt,en allur er varin góður til að læra af,og um að gera að ræða málinn,og aðvitað bæta þetta úr ofanflóðasjóði,engin að tala um annað!!! leiðinlegt ef það er dregið,ef peningur er til,svona getur auðvitað komið upp aftur,og þá er betra að hafa varan á ef hægt er og flíta leitum ef hægt er,hjálparsveitir eru sem betur fer fljótar að bregðat við,eins og sýndi eftirá,en við lærum svo lengi sem við lifum,það sýnir þetta !!¨en samt betra að kalla úlfur úlfur en ekki!!!///Halli gamli


mbl.is Engin beiðni um alvarlegt ástand búfjár barst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband