Fékk verðlaun fyrir íslenskan reðurstækkara//fólk má ekki taka þetta sem klám!!!!

Fékk verðÁgúst Smári Beaumont er lengst til hægri á myndinni við...laun fyrir íslenskan reðurstækkara Viðskipti | mbl | 20.10.2012 | 13:22 Íslenskt hugvit í reðurstækkunum fékk 1. verðlaun í samkeppni í Þýskalandi á dögunum fyrir Penomet reðurstækkarann. Verðlaunin nefnast Venus „Best Male Enhancement Product 2012“ og eru veitt árlega í fyrir hjálpartæki í þessum flokki. og tók Ágúst Smári Beaumont framkvæmdastjóri UPL Distribution GmbH í Sviss við verðlaununum. „Við fórum í samstarf við bandarískt fyrirtæki í Kaliforníu sem heitir Penomet.

Við vorum síðan tilnefnd til þessara verðlauna. Vorum reyndar tilnefnd til tvennra verðlauna og unnum. Þetta er auðvitað svakalega mikil viðurkenning fyrir okkur og allt okkar starfsfólk. Við erum ofboðslega stolt af þessu.

Með 16 manns í vinnu og hafa ekki undan Þetta er mikil viðurkenning sérstaklega þar sem við erum nýbyrjuð. Við höfum ekki undan að framleiða þar sem þetta er allt sett saman í höndunum og gert mjög smekklega. Við erum með 16 manns í vinnu og keyrt allan sólarhringinn og náum ekki að setja saman nema 150 stykki á dag. Það þarf að ráða meira starfsfólk og stækka,“ sagði Ágúst. Hann segir Bandaríkin vera þeirra aðal markaðssvæði en að varan sé einnig seld nú í Kóreu, Singapúr, Ástralíu og í Bretlandi.

„Við höfum gert þetta áður með aðra vöru sem hét Bathmate (Baðfélaginn),“ segir Ágúst en Penomet pumpan á að vera fullkomnari. „Á Íslandi eru tvær græjur sem fólk með risvandamál getur fengið. Þetta hjálpar mun betur heldur en aðrar græjur sem eru leyfðar af Tryggingastofnun í dag.

Við erum að skoða það í samstarfi við AVK á Íslandi að koma þessu inn í kerfið heima. Þetta er auðvitað ekkert rosalega ódýr vara,“ segir Ágúst.

Hann segir Íslendinga mega búast við því á næstu dögum að geta keypt vöruna og er vefsíðan penomet.is nú í þýðingu. 1 af hverju 28 íslenskum karlmönnum keypt fyrri pumpuna „Varðandi fyrri vöruna sem við vorum að selja á Íslandi, Bathmate, þá voru 1 af hverjum 28 íslenskum karlmönnum frá aldrinum 18 til 65 ára sem höfðu keypt sér pumpuna. Þetta var orðið eins og fótanuddtækið. En munurinn er sá að þetta er ekki í geymslunni. Þetta er notað 

dagsdaglega. Svo er skemmtilegt að segja frá því að við höfum alltaf boðið endurgreiðslu, mánaðartryggingu, ef þú ert ekki ánægður með þetta og finnst þetta ekki vera að virka fyrir þig þá getur þú bara hringt og sagt að þú viljir senda þetta til baka.

Miðað við síðustu tölur sem ég fékk frá AVK þá er búið að skila síðan 2008 tíu stykkjum af fleiri þúsundum. Það er vart hægt að mæla þetta í prósentum og þetta er ekki bara á Íslandi heldur í öllum þeim löndum sem við störfum í,“ segir Ágúst. Hjálpartæki ástarlífsins en ekki klám Ágúst leggur áherslu á að þessi vara tengist ekki klámi.

„Það eru voða margir sem vilja taka hjálpartæki ástarlífisins og blanda því saman við dvd-klám. En við höfum alveg fastar reglur og seljum ekkert svoleiðis.

Erum bara með hjálpartæki ástarlífsins,“ segir Ágúst. Hann segir Penomet pumpuna hafa komið til eftir gríðarlega margar ábendingar frá notendum Bathmate og að þeir hafi því sett verkfræðinga sína í að þróa nýja vöru. „Bathmate og Penomet er sambærilega vara, en ekki eins. Munurinn er sá að þú getur skipt um múffuna neðan á.

Ef þú kaupir stærsta pakkann þá getur þú keypt fimm pumpur í einni en hjá aðal samkeppnisaðilanum okkar þá ertu fastur í einni stærð og styrkleika,“ segir Ágúst. Stefna á læknisfræðilega rannsókn á næsta ári „Við ætlum síðan að fara í læknisfræðilega rannsókn á næsta ári og það verður að öllum líkindum gert í Sviss. Við erum að semja við tvo spítala um að taka þetta að sér.

Gersamlega óháð rannsókn og við þurfum að borga brúsann, en ráðum náttúrulega ekki útkomunni,“ segir Ágúst að lokum.///////////Maður verður að segja að í fyrstu virðist þetta klámfengið,en er bara lífsins gangur og unaður,að hafa þetta í lagi!!og það er ekki öllum gefið!!og reynist mörgum þúngt í skauti!!en maður gleðst með glöðum ,og þvi telur maður þessa umræðu og lausn mjög svo góða og hjálpsama við gang lífsins og vænntigar þess!!!þetta er og hefur verið feimnismál mikið,en á ekki að vera það!!!við skulum öll vera þarna jákvæð,og gera þessu góð skil í heilsugæslu okkar!!!!/Halli gamli


mbl.is Fékk verðlaun fyrir íslenskan reðurstækkara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hi I like to use penomet :)

 I just bought the Penomet one week ago and immediately after my first use, my penis looked a lot bigger. The gains receded somewhat afterwards but after repeated use I see those small differences adding up. I really look forward to how it will be in a few months time.

Johan

Henry (IP-tala skráð) 30.10.2012 kl. 18:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045797

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband