Wenger: Við vorum lélegir//Sammála Wenger mjög!!!!!

Wenger: ViðGrant Holt skorar sigurmark Norwich gegn Arsenal. vorum lélegir Íþróttir | mbl.is | 21.10.2012 | 9:06 Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, dró enga dul á það eftir óvæntan ósigur liðsins gegn Norwich í ensku úrvalsdeildinni síðdegis í gær að frammistaða hans manna hefði verið léleg.

Grant Holt skoraði sigurmarkið strax á 20. mínútu og Arsenal komst lítið áleiðis eftir það. „Við getum engum um þetta kennt nema okkur sjálfum og við gerðum fjölda mistaka í þessum leik.

Við verðum að hrista þennan leik af okkur, átta okkur á því að þetta var engan veginn nógu gott, og sýna aðra og betri frammistöðu á miðvikudaginn," sagði Wenger á vef Arsenal en lið hans mætir næst Schalke í Meistaradeild Evrópu.

„Hugarfar liðsins hefur verið frábært til þessa en núna var þetta ekki í þeim gæðaflokki sem liðið hefur sýnt fram að þessu.

Nú vorum við í fyrsta skipti á tímabilinu nokkuð frá okkar besta. Og við vorum langt frá því að þessu sinni. Norwich lék sterkan varnarleik, af einbeitingu og krafti. Við vorum mikið með boltann en gerðum ekki margt við hann.

Yfirburðir okkar á því sviði voru blekkjandi og frammistaða okkar olli miklum vonbrigðum," sagði Arsene Wenger en lið hans situr nú í níunda sæti deildarinnar, tíu stigum á eftir toppliði Chelsea.////////Nú erum við sárir aðdáendur Arsenal mjög liðið er bara heillum horfið og þarna er maður sammála Wenger að þetta er það versta sem maður sér í liðum að vera með boltann og ekkert annað,Áfram Arsenal og komið til baka!!!!Halli gamli


mbl.is Wenger: Við vorum lélegir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045797

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband