Varað við ísingu///Þetta ættu allir að skoða akandi og gangandi!!!

Varað viðMynd 638927 ísingu Innlent | mbl.is | 24.10.2012 | 15:53 Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við ísingu á vegum mjög víða í nótt og í fyrramálið.

Það blotnar á vegum með rigningu eða slyddu víða á láglendi í kvöld vestan- og norðvestantil, en krapi eða snjór hærra uppi. Í nótt og snemma í fyrramálið léttir til og kólnar.

Þá er hætt við að það myndist ísing á vegum mjög víða, einkum frá Suðurnesjum, vestur á firði og allt norður í Eyjafjörð.

Á Vesturlandi eru hálkublettir á Holtavörðuheiði og Laxárdalsheiði.

Á Vestfjörðum er hálka á Kleifaheiði, Mikladal, Hálfdáni og Steingrímsfjarðarheiði. Snjóþekja er á Klettshálsi og Hrafnseyrarheiði en einnig eru sumstaðar hálkublettir.

Hálka er á Þverárfjalli og Öxnadalsheiði en hálkublettir á Vatnsskarði og víðar á Norðurlandi vestra. Hálka eða hálkublettir eru á flestum vegum á Norðausturlandi.

Éljagangur og hálka er á Hófaskarði, Hálsum, í Þistilfirði og á Brekknaheiði.

Á Austurlandi er hálka á Fjarðarheiði, Vatnsskarði eystra en snjóþekja á Öxi. Hálkublettir eru allvíða á öðrum fjallvegum og sumstaðar á láglendi./////////////Það er svo að við eigum íslendingar,að þekkja þetta vel,þessi snöggu veðrabrygði,og samt ber að reka þarna mikinn áróður!!ekki spurning!"maður tryggir ekki eftirá" segjum  við og meinum það!!þegar þessi tími er komin,er þetta alltaf fyrir hendi að við þurfum að takast á við þetta,við skulum öll reka áróður!!!/Halli gamli


mbl.is Varað við ísingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045801

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband