Skuldavandinn///Hann er mál málanna,eða eitt af þeim helstu!!!


Guðlaugur Þór Þórðarson. Skuldavandinn Innlent | Morgunblaðið - greinar | 1.11.2012 | 10:49 „Stór hópur fólks stendur nú frammi fyrir alvarlegum vanda vegna þess að það skuldar of mikið í húsnæði sínu“, segir Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður í grein í Morgunblaðinu í dag.

Segir Guðlaugur þennan vanda ekki einungis tilkominn vegna bankahrunsins heldur erum við að súpa seyðið af áherslum ríkisvaldsins í húsnæðismálum undanfarna áratugi og vanhugsaðri innkoma bankanna á húsnæðislánamarkaðinn.

Þingmaðurinn segir stöðuna afleita og sé í sinni einföldustu mynd þessi: „Kaupmáttur fólks hefur lækkað mikið, raunvirði og jafnvel nafnvirði eigna á mörgum stöðum sömuleiðis, en raunvirði lána staðið í stað og nafnvirði þeirra hækkað. Þeir sem hafa fengið lækkun á sínum lánum eru þeir sem tóku lán sem hafa verið dæmd ólögleg.

Ekki sér þó enn fyrir endann á þeim málum m.a. vegna aðgerða og aðgerðaleysis ríkisstjórnarinnar“. Þeir sem fengu lán á árinu 2008 hafa farið langverst út úr hruninu, segir Guðlaugur Þór.

„Eini aðilinn sem lánaði til íbúðarhúsnæðis á því ári var Íbúðalánasjóður. Sjóðurinn var á ábyrgð þáverandi félagsmálaráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur“

.///////////////Þetta eru orð í tíma töluð hjá vini mínum og samflokksmanni og Alþingismanni ofurduglegum að taka málstað skuldar sem eru mjög margir sem ekki geta staðið við þetta áfall sem kreppan og Bankarnir ollu,það er svo að þetta varðar nokkur þúsund heimili,og ef ekkert er gert missa þau flest sitt húsnæði og skuld jafnvel eftir það!!aðgerðleisi ríkisstjórnar er algjört!!og á bara að þeirra mati að styrkja Bankana og fjármálaveldi!!er ekki komin tími til að fólk fari að hætta þvi að trúa ennþá að þetta sé allt Sjálfsæðisflokk að kenna!!og sjá að þetta er bara gríla sem engin á að trúa!!fólkið sem á í þessu getur allavega séð þetta,og loforð okkar manna að lækkna þetta á að taka alvarlega!!!!Halli gamli


mbl.is Skuldavandinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"... en raunvirði lána staðið í stað ..." Þar stendur hnífurinn í kúnni. Ætli ríkið að "leiðrétta" lánin þarf ríkið (þú og ég) að borga mismuninn. Það er auðvelt að vera góði gæinn þegar ekki þarf annað en að tala fallega og benda á vondu ríkisstjórnina sem ekki vill gefa skuldurum milljarða af okkar peningum með tilheyrandi skattahækkunum. 

sigkja (IP-tala skráð) 1.11.2012 kl. 12:15

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

sigkja hvaða skilning leggur þú í hugtakið "raunvirði?

Það er nú þegar búið að fella niður um 500 milljarða af lánum heimilanna í bókhaldi bankanna. Þannig er eignarréttarvarið "raunvirði" þessara lána ekki nema um það bil helmingur af nafnverði hverrar kröfu.

Hinsvegar hafa aðeins 200 af þeim milljörðum skilað sér í leiðréttingar á skuldastöðu heimila eins og hún er gefin upp á innheimtuseðlum.

Til að leiðrétta þetta þarf enginn að borga nokkurn skapaðan hlut. Það er nefninlega búið að gera það, með innri niðurfærslunni sem var gerð 2008.

Ef eitthvað þarnfast útskýringar er það hvers vegna heimilin ættu eiginlega að borga þessa 300 miljarða sem eru umfram raunvirði skuldanna þeirra?

Guðmundur Ásgeirsson, 1.11.2012 kl. 23:02

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þarna erum við sammála Guðmundur Ásgeirsson!!/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 1.11.2012 kl. 23:32

4 identicon

Gallinn er hinsvegar sá að megnið af þessum lánum er hjá lífeyrissjóðum og Íbúðarlánasjóði en ekki bönkunum (okkar peningar). Íbúðalánasjóður er fjármagnaður með lánum sem ríkið, við, erum ábyrg fyrir. Við þurfum að borga þau lán að fullu þó sá sem við (Íbúðalánasjóður) lánuðum fái niðurfellingu. Lán lífeyrissjóðanna er bara spurning um hve mikið lægri lífeyri fólk vill sætta sig við til að greiða niður annarra lán.

Og þau lán sem eru hjá bönkunum eru að fullu eignarréttarvarin. Ríkið á enga kröfu á að bankarnir gefi krónu eftir. Lánin voru seld bönkunum án kvaða og með þeim rétti að innheimta allan höfuðstól, verðbætur og vexti, - hæstu mögulegu endurheimtur.

Raunvirði lánanna miðast ekki við hver er eigandi þeirra eða á hvað hann keypti lánið eða hvað hann reiknar með að fá greitt af láninu. Raunvirði eru eftirstöðvar með verðbótum. Það er vel hægt að búa til einhverja útúrsnúninga og bull sem kemur málinu ekkert við en áfram verður samt raunvirðið = fullar eftirstöðvar með fullum verðbótum.

Kaupir þú fínan bíl á slikk þá átt þú samt rétt á fullu markaðsverði ætli ríkið að taka hann af þér og ríkið getur ekki sagt þér að selja hann með afslætti þó hann hafi kostað þig mikið minna. Sama gildir um lánin sem bankarnir eiga, 100% eignarréttarvörn, engir afslættir.

Vilji ríkið fikta í lánunum bankanna þá borgar ríkið mismuninn á endurheimtum og hæstu mögulegu endurheimtum.

sigkja (IP-tala skráð) 3.11.2012 kl. 00:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045699

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband