Strandsiglingar hefjist næsta vor//á að fara með kjörseðlana sjóleiðis,ef ófært verður landleiðina??

StrandsiÖgmundur Jónasson, innanríkisráðherra.glingar hefjist næsta vor Innlent | mbl.is | 5.11.2012 | 17:32 Stjórnvöld stefna að því að strandsiglingar geti hafist við Ísland í mars eða apríl næsta vor. Þetta kom fram í svari Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, við fyrirspurn frá Ásmundi Einari Daðasyni, þingmanni Framsóknarflokksins, á Alþingi í dag.

Málið hefur verið í umsagnarferli hjá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) og tafist vegna þess að sögn Ögmundar en starfshópur á vegum ráðuneytis hans lagði til í byrjun ársins að sett yrði af stað tilraunaverkefni til nokkurra ára um strandsiglingar.

Þegar ESA hefði afgreitt málið fyrir sitt leyti yrðu siglingarnar boðnar út í „snarhasti“. Fram kom ennfremur hjá Ögmundi að gert væri ráð fyrir siglingu í kringum landið einu sinni í viku með fastri viðkomu á höfuðborgarsvæðinu, Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum og að um yrði að ræða að lágmarki 50 ferðir á ári.

Hins vegar yrði sá möguleiki fyrir hendi að fjölga ferðum ef á þyrfti að halda.//////////Það er orðið bara sagan endalausa þetta,og ekkert að marka,þetta það er svo að þessu átti aldrei að hætta,þó maður sé á móti doðum og bönnum,eru það auðvitað,að manni finnst kvaðir ætti að vera á skipafélögum sem eru fyrir,að þau sægju um þessu mál,af hverju ekki,og landa bara meir einnig út á lansbygðinni!!,þetta er einföld aðgerð og fylgið henni eftir!!og hættið þessum leik,sem engin trúir orðið!!/Halli gamli 


mbl.is Strandsiglingar hefjist næsta vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halli minn. Leikaraskapurinn er óþolandi. Eru lestarsamgöngur ekki rétta takmarkið? Þangað til þær verða að veruleika, þá hlýtur að mega nota bæði land og sjóflutninga eftir hagkvæmni og hentugleikum. Ögmundur ætti ekki að þurfa svona málalengingar, fyrst hann er ráðherrann sem "ræður"! Eða hvað?

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.11.2012 kl. 18:29

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Mikið sammála þessu vinkona!!!!

Haraldur Haraldsson, 5.11.2012 kl. 19:18

3 identicon

Jú Anna.ég held að lestarsamgöngur séu athugandi.T.d. einfalt lestarkerfi til allra landshluta .hægt að lesta vörur fólk og bíla.Þegar tekið er tillit til allra þátta,minni bensínkostnað,kostnað við vegakerfið,öryggi þá held ég að málið komi út í plús.en á meðan verða strandsiglingar að koma á aftur.hefi aldrei átt að hætta þeim.

josef asmundsson (IP-tala skráð) 5.11.2012 kl. 19:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 1045632

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband