13.11.2012 | 13:23
Atvinnulausum fjölgar á Ísland///en ekki hvað ekkerrt um það hugsað,bara landsalan sem kemst að!!!!
Atvinnulausum fjölgar á Íslandi Innlent | mbl.is | 13.11.2012 | 12:22 Skráð atvinnuleysi í október 2012 var 5,2%, en að meðaltali voru 8.187 atvinnulausir í október og fjölgaði atvinnulausum um 305 að meðaltali frá september eða um 0,3 prósentustig. prósentustig.
Meðalatvinnuleysi tímabilið janúar til október á þessu ári var 5,8%, en 7,5% á sama tímabili 2011. Körlum á atvinnuleysisskrá fjölgaði um 199 að meðaltali og konum um 106. Atvinnulausum fjölgaði um 106 á höfuðborgarsvæðinu en um 199 á landsbyggðinni. Atvinnuleysið var 5,8% á höfuðborgarsvæðinu og fór úr 5,6% í september.
Á landsbyggðinni var atvinnuleysið 4,1% og fór úr 3,7% í september. Einungis 1,4% atvinnuleysi á Norðurlandi vestra Mest var atvinnuleysið á Suðurnesjum 8,9% og fór úr 7,8% í september. Minnst var atvinnuleysið á Norðurlandi vestra, 1,4%. Atvinnuleysið var 4,7% meðal karla og fór úr 4,4% í september og 5,8% meðal kvenna og fór úr 5,4% í september.
Alls voru 8.592 manns atvinnulausir í lok október. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu voru hins vegar 7.711. Fjölgun atvinnulausra í lok októbermánaðar frá lokum september nam 404. Um 267 fleiri karlar voru á skrá í lok október en 137 fleiri konur en í septemberlok.
Á landsbyggðinni fjölgaði um 266 en um 138 á höfuðborgarsvæðinu. 1.248 ungmenni atvinnulaus Fjöldi þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði samfellt er nú 4.793 og hefur fækkað um 90 frá lokum september og eru um 55,8% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá í október.
Fjöldi þeirra sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár var 3.222 í októberlok og fækkaði um 48 frá lokum september.
Alls voru 1.248 á aldrinum 16‐24 ára atvinnulausir í lok október eða um 14,5% allra atvinnulausra í október. Í lok október 2011 var fjöldi atvinnulausra ungmenna 1.884 og hefur því fækkað um 636 milli ára í þessum aldurshópi.
Búist við auknu atvinnuleysi í nóvember Alls voru 1.608 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok október, þar af 931 Pólverji eða um 58% þeirra útlendinga sem voru á skrá í lok mánaðarins. Flestir atvinnulausra erlendra ríkisborgara voru starfandi í gistingar- og veitingastarfsemi, 230.
Yfirleitt eykst atvinnuleysi í nóvember vegna minnkandi umsvifa á vinnumarkaði þegar kemur fram á haust og vetur. Í nóvember 2011 var atvinnuleysi 7,1% en 6,8% í október 2011. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að atvinnuleysi í nóvember aukist með svipuðum hætti í ár og verði á bilinu 5,2‐5,5%. ///////////////////Eigum við bara gleypa þetta hrátt!!af hverju er þetta,það veitt,þetta fólk,sem gerir ekki annað þessa daga að reyna að eyðileggja allt sem heitir atvinna,setja á rammaáættlun sem friðar allar auðlindir eyðileggja útgerðir og fiskveiðar,og svo buerðast við að bylta sjórnarskánni sér í hag við komst í ESB atvinneysið þar og auminjaskapinn!!! Nei þetta er leynt og ljóst verið að koma okkur í það lægsta plan sem hægt er,svo þeir sem eftir eru vinnufærir flígi landið,ekki spurning,svo vill þetta fólk fá góða kosningu!!!/Halli gamli
![]() |
Atvinnulausum fjölgar á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Júlíus Valsson,ritar um sannleika vegakrfis okkar,gott að myn...
- Gamla Moggagrílan iekin upp,samvinna ,engin bara tapa milljör...
- Þetta er skoðun Lögreglustjóra sem hefur fullan rétt á að fra...
- narsamning við B.N.A.Að fá Frakkland og Bandarikjamenn;við er...
- Í hvaða leik eru Framsólk og Sjalfstæðisflokkur,Eyða upp sjú...
Bloggvinir
-
skordalsbrynja
-
bjarnihardar
-
stebbifr
-
bassinn
-
trj
-
einarvill
-
kristbjorg
-
bofs
-
don
-
ingagm
-
einarbb
-
villibj
-
martagudjonsdottir
-
tilveran-i-esb
-
asthildurcesil
-
athena
-
ea
-
altice
-
karisol
-
kolbrunb
-
ksh
-
mariaannakristjansdottir
-
mosi
-
solir
-
minos
-
erna-h
-
sgisla
-
korntop
-
ibb
-
bjarnimax
-
seinars
-
skodunmin
-
hjolagarpur
-
summi
-
gelin
-
otti
-
ansigu
-
ingabesta
-
skinogskurir
-
tibsen
-
reynir
-
isleifur
-
helgigunnars
-
jakobk
-
morgunn
-
dramb
-
gudni-is
-
siggisig
-
jonsnae
-
gattin
-
jon-o-vilhjalmsson
-
1kaldi
-
magnusthor
-
lucas
-
gislisig
-
gummiarnar
-
gammon
-
himmalingur
-
gingvarsson
-
snjokall
-
vefritid
-
gudrunmagnea
-
sigurjonn
-
saethorhelgi
-
liljabolla
-
malacai
-
topplistinn
-
hordurhalldorsson
-
whaling
-
stjornlagathing
-
vestskafttenor
-
ester13
-
haukurn
-
partners
-
drum
-
kokkurinn
-
gumson
-
valdimarjohannesson
-
kristjan9
-
mathieu
-
hordurj
-
samstada-thjodar
-
snorribetel
-
godurdrengur
-
kij
-
krist
-
bjartsynisflokkurinn
-
jonsullenberger
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.4.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 1047529
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 17
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sem betur fer er þó fækkun milli ára. Á samatíma í fyrra var atvinnuleysi um 7,5% en er nú um 5,2%. Atvinnuleysi eykst alltaf frá september fram að áramótum. Fasta atvinnuleysi hefur alltaf verið hér um 2 til 3% nema í undantekinginartilfellum í gegnum árinn. Þannig að það er um 2 til 3% sem enn þarf að skaffa vinnu sem eru um 4 þúsund manns. Og um 1000 manns af því eru erlendir ríkisborgarar. Bendi á að Ísland er með þeim ósköpum að ef að atvinnuframboð eykst hér gríðarlega á næstunni sem líkur eru á t.d. á Húsavík verður sennilega að flytja hingað fólk til vinnu. T.d. er atvnnuleysi í Noregi um 3% og samt vantar þangað fólk. Í Svíþjóð er það um 7,8% minnir mig og samt fá allir sem þangað fara vinnu. Í Danmörku er það 8% og allir fá samt vinnu sem eftir því leita.
Hér á landi eru líka fullt af stöfum í boði ef fólk kíkir eftir því. Það þarf að vera hér kerfi sem ýtir fólki í að leita.
Magnús Helgi Björgvinsson, 13.11.2012 kl. 14:18
Það eru bara þú og þínir líkar!!! sem eruð að fara með þjóðfélaggið,áð er það sem þarf að gera, þarf að vara arðbært!!Ekki i verslum og Bönkum og ríkisapparatinu,það er bara alveg snar vittlkaust alveg sama hvenbig þú ve-rp það Maggi!!!Kveðja
Haraldur Haraldsson, 13.11.2012 kl. 14:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.