Meta þarf áhrif stjórnarskrártillagna//Þetta er glapræði,og ekkert annað!!!

Meta þaNefndarmenn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd nú síðdegis.rf áhrif stjórnarskrártillagna Innlent | mbl.is | 12.11.2012 | 20:22 Sérfræðingahópur sem fór yfir tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá kom auga á fleiri atriði en lagatæknileg sem skoða þarf betur og þá væntanlega við meðferð frumvarpsins á Alþingi.

Í skilabréfi hópsins er að finna ýmis álitamál, þó aðeins þau sem hópurinn var sammála um. Meðal annars er spurt hvort tillögurnar samræmis alþjóðlegum viðmiðum og þróun á sviði stjórnskipunarréttar.

Í skilabréfinu segir að eðlilegt sé að litið sé til stjórnarskrá annarra ríkja við endurskoðun stjórnarskrár og metið hvort greina megi samnefnara eða þróun í tiltekna átt.

„Þau tímamörk og meginviðmið sem sérfræðingahópnum voru sett gera það hins vegar að verkum að ekki var gerð ítarleg rannsókn í þessu efni.“ Þá er spurt hvort tillögurnar séu nægilega vel rökstuddar og hvort áhrif þeirra hafi verið metin. Því hafi til dæmis verið slegið föstu að því þýðingarmeiri sem tillögur eru því meiri rækt eigi að leggja við mat á áhrifum.

„Að sumu leyti geymir stjórnarskrá reglur um samspil stofnana ríkisins sem hafa ekki bein áhrif á borgarana. Þær geta samt haft óbein áhrif, t.d. ef stöðugleiki stjórnkerfis eykst eða minnkar. Aðrar tillögur hafa bein áhrif eins og ákvæði um mannréttindi, kosningarétt, ríkisborgararétt og rétt til að kalla fram þjóðaratkvæðagreiðslu.+

Ljóst er að hér er um að ræða afar þýðingarmikil atriði sem fyrir vikið þarf að meta vandlega áður en breytingar eru gerðar.“

Hópurinn segir að ekki hafi farið fram heildstætt og skipulagt mat á áhrifum tillagnanna í heild og gerir ráð fyrir að slíkt mat muni fara fram á vettvangi Alþingis. Þá bendir hópurinn á tiltekin atriði sem kalla einkum á nánari skoðun.///////////////Það á að koma þessu í gegn,hvað sem tautar og raular,maður orðið hálf hissa hvað þessi manneskja sem öllu virðist ráða þarna Valgerður Bjarnadóttir veður fram og stjórnar öllu með harðri hendi og kjafti og klóm,er þetta í lagi,finnst fólki þetta sniðugt? ,eða hvað hvílik frekja og yfirgangur,í þessu fólki þarna,í samfylkingu og V.G. að það hálfa væri nóg,þetta er ekkert lífs spurst mál,það bíða mörg mál sem geta varðað líf,ekki spurning,við vorum að lesa um að á Spáni væri verið að frysta lán í 2 ár,t.d. vegna sjálfsmorða fólks sem átti að bera út úr íbuðum sínum,sama verður ábyggilega hér og sennilega búið að ske,það skiptir þessu fólki ,kannski ekki máli,það er framsalið á landinu sem er þarna í nýju stjórnarskánni sem skiptir mestu máli,þessu landsölufólki!!!við mótmælum svona vinnubrögðum!!!Halli gamli 


mbl.is Meta þarf áhrif stjórnarskrártillagna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045797

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband