Vill afnema neitunarvald innan ESB/Það hvarnast af þyrunum þarna í ESB!!

Vill aViviane Reding, yfirmaður dómsmála í framkvæmdastjórn ESB,...fnema neitunarvald innan ESB Erlent | mbl.is | 14.11.2012 | 14:15 Ríki Evrópusambandsins ættu að taka allar ákvarðanir með atkvæðagreiðslum þar sem meirihlutinn ræður niðurstöðunni, þar með talið í viðkvæmum málaflokkum líkt og skattamálum,

í stað þess að hafa neitunarvald og geta þannig stöðvað tilraunir til þess að samræma reglur innan sambandsinsÞetta kom fram í máli Viviane Reding, yfirmanns dómsmála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, á fundi í Berlín um síðustu helgi samkvæmt fréttavefnum Euobserver.com.

„Neitunarvaldið í ráðherraráðinu verður að heyra sögunni til. Atkvæðagreiðsla byggð á auknum meirihluta ætti að ná til fleiri málaflokka, eins og til að mynda skattamála,“ sagði Reding á fundinum en neitunarvald ríkja sambandsins, eða einróma samþykki, nær í dag til tiltölulega fárra málaflokka og hefur þeim málaflokkum fækkað mjög á undanförnum árum.

Hún viðurkenndi hins vegar fyrir blaðamönnum eftir fundinn að þessi hugmynd sín, sem myndi kalla á breytingar á sáttmálum Evrópusambandsins, væri mjög umdeild hjá ríkjum eins og Bretlandi og Írlandi og sömuleiðis heimalandi hennar Lúxemborg.

„En neitunarvaldið snýst um grundvallaratriði. Ég tel að stór fjölskylda geti aðeins haldið áfram að vera til ef hún stendur saman og leitar sameiginlegra ákvarðana. Ef 26 vilja eitthvað og eitt stöðvar það þá er það ekki eðlilegt,“ sagði hún.///////////////Allt er í heiminum hverfullt.þetta einnig,það hlaut að koma að þessu að einræðið yrði þarna ofaná? Eða svo verður að teljast þegar Þýskaland er þarna með allar klær og ræður því sem þeir vilja!!er þetta það sem við eigum að fara í ??vilja virkilega 35% okkar manna það???//Halli gamli


mbl.is Vill afnema neitunarvald innan ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ekki ég svo mikið er víst. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.11.2012 kl. 17:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Okt. 2024
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.10.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 1046529

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband