Móta þarf skýra stefnu um dvalarheimili /svo vittlaus er maður hélt að þetta væri löngu til!!!!!

Móta Mynd 645654þarf skýra stefnu um dvalarheimili Innlent | mbl.is | 27.11.2012 | 13:19 Ríkisendurskoðun telur að stjórnvöld þurfi að móta skýra stefnu um framtíð dvalarheimila.

Þá telur stofnunin að fjárframlög ríkisins til heimilanna eigi að einhverju leyti að ráðast af þjónustuþörf íbúanna til að tryggja að fé renni þangað sem þörfin er mest. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar er fjallað um rekstur og starfsemi dvalarheimila fyrir aldraða.

Fram kemur að á síðustu sex árum hafi rýmum á dvalarheimilum (dvalarrýmum) fækkað um nálega helming. Á sama tíma hafi öldruðum hér á landi (67 ára og eldri) fjölgað um 10%. Markmið stjórnvalda er að þessi

hópur geti með viðeigandi stuðningi búið við eðlilegt heimilislíf sem lengst. Gamalt fólk eigi ekki að dvelja á stofnun nema það sé ófært um að búa heima þrátt fyrir stuðning.

Lögð hefur verið áhersla á uppbyggingu hjúkrunarheimila fyrir þá sem ekki geta búið heima. Um leið hefur markmiðið verið að fækka rýmum á dvalarheimilum fyrir aldraða.

Á undanförnum árum hefur eftirspurn eftir dvalarrýmum almennt dregist saman sem kann að benda bendir til þess að stefna stjórnvalda hafi að einhverju leyti gengið fram. Breyttar reglur um færni- og heilsumat hafa þó líka haft nokkur áhrif.

Á sama tíma býðst öldruðum sem búa heima nú meiri þjónusta en áður, t.d. hefur svokölluðum dagdvalarrýmum fjölgað töluvert og aukin áhersla hefur verið lögð á heimahjúkrun.

Um slíka þjónustu vantar þó fullnægjandi upplýsingar. Hins vegar hefur hjúkrunarrýmum fækkað um 3% síðustu sex ár, þvert á stefnu stjórnvalda. Þótt biðlistar eftir dvalarrýmum hafi styst á síðustu árum eru þeir enn fyrir hendi.

Að mati Ríkisendurskoðunar þurfa stjórnvöld því að móta skýra stefnu um framtíð dvalarheimila. Meðal annars þarf að ákveða hvort fækka eigi dvalarrýmum frekar en orðið er og þá með hvaða hætti

. Í því sambandi ber að hafa í huga að þörf fyrir slík heimili er mismikil eftir landshlutum. Tekjur dvalarheimila eru að stærstum hluta svokölluð daggjöld úr ríkissjóði.

Um er að ræða fasta fjárhæð á hvert dvalarrými sem tekur hvorki mið af heilsu íbúa og þjónustuþörf né stærð heimila og staðsetningu.

Taxti daggjaldsins hefur hækkað umfram verðlag undanfarin ár en engu að síður eiga mörg dvalarheimili erfitt með að ná endum saman.

Að mati Ríkisendurskoðunar ættu daggjöld, a.m.k. að hluta, að miðast við mat á þjónustuþörf til að tryggja að fjármunir renni þangað sem þörfin er mest.

Ekki liggja fyrir nákvæmar reglur um umfang og gæði þjónustu á dvalarheimilum fyrir aldraða. Samkvæmt könnun Ríkisendurskoðunar hefur hjúkrunarþjónusta almennt aukist undanfarin ár enda eru íbúar nú að jafnaði eldri og veikari en áður.

Loks má geta þess að úttekt Ríkisendurskoðunar leiddi í ljós að körlum gengur almennt betur að fá úthlutað dvalarrými en konum.

Margt bendir til þess að þar hafi félagslegar aðstæður einhver áhrif.

Konur eru þó í meirihluta íbúa heimilanna enda eru þær í miklum meirihluta þeirra sem bíða eftir rýmum.

Þá dveljast þær almennt lengur á heimilunum en karlar vegna þess að þær ná hærri aldri.///////////////Þetta vandamál er búið að vara það lengi að engin afsökun er fyrir því að ekki er komin framtíðarlausn á þessu,þannig hefði maður haldið að þetta væri!! en svo er ekki og samt vita menn um að fleiri hundruð manna komst á aldur árlega ,það er að vísu átti að hjálpa okkur að ver svo lengi heima sem við gætum með því að fá hjálp en það hefur því miður mikið brugðist!!Svo er verið að breyta heimilum fyrir aldraða í einbýli á Grund og DAS og víðar,og við það fækkar fólkinu sem inn kemst,en við erum samt ennþá í þeirri trú að menn vissu þetta allt en vinna bara ekki fyrir peningum sínum sem það eiga að gera<!!!!ÉG segði það bara hiklaust að þessi mál eru i ólestri og verður að taka i gegn ekki spurning og það strax!!að vera búnir að tala um þetta ára aftir ár og ekkert gengur er ekki hægt lengur,við verðum bara að segja því mega ekki lífeyrissjóðirnir byggja þetta og leigja til afnota þetta eru peningar sem við eigum,og eru þeir betur notaðir,það segir Vinur okkar Helgi í Góu og K.fray í mörg ár hefur hann talað um þetta,og þetta er auðvitað auðveldasta leiðin,ar eru til peningar sem geta rentað sig þarna!!svo er nóg pláss til að redda hlutunum Vífilstaðir svo sjúkarhús í Hafnafirði og Landakostspítali!!Og fleira húsnæði!!þessi afsökun er ekki tekin gild,að ekki sé hægt að bylta þessu og það hratt!!!!/Halli gamli


mbl.is Móta þarf skýra stefnu um dvalarheimili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045800

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband