Olíufélögin komast upp með allt og Ríkisstjórn einnig!! í allir vilja sitt og vel það!!

ÁlagningMynd 616201in sögð aldrei meiri Bílar | Morgunblaðið | 4.12.2012 | 8:55 Olíufélögin hafa lækkað verð á bensíni og dísilolíu nokkuð skart síðustu daga. Bensínlítrinn hefur frá í sl. viku lækkað í verði um 4,40 kr.

Eftir lækkunina eralgengt lítraverð í sjálfsafgreiðslu kr. 247,20. Dísel hefur sömuleiðis lækkað í verði og algengasta lítraverð olíunnar í gærmorgun var 259,30 kr.

Félag íslenskra bifreiðaeigenda fylgist daglega með þróun eldsneytisverðs, bæði á veraldarvísu og hér heima. Að því er fram kemur í frétt á vefsetri félagsins er verðlækkun síðustu daga minni en vænta hefði mátt. Álagning olíufélaganna á bensínið hafi náð nýjum hæðum sl. nóvember.

Sé nú per lítra tæpum sex krónum yfir meðalálagningu ársins. Meðalálagning og flutningskostnaður á bensín var, skv. útreikningum félagsins, ríflega 38 krónur á hvern lítra, sem er eins og áður er sagt rúmum 6 krónum yfir meðalálagningu ársins. Meðalálagningin í ár hefur verið 32,3 kr. Til samanburðar er nefnt að skv. áðurnefndri breytu hafi álagningin í fyrra verið 32 kr. á hvern lítra og krónunni lægri árið 2010.

Félögin eru samtaka Kostnaður neytenda vegna álagningar og flutningskostnaðar á hvern lítra af dísilolíu er nú 37,60 kr. en meðalálagning ársins er rúmlega 36 krónur, segir FÍB. „Þessi hækkun álagningar er óásættanleg.

Félögin eru samtaka um hækkunina en á eðlilegum samkeppnismarkaði væru þessar aðstæður tækifæri fyrir framsækið fyrirtæki til að bjóða betra verð með það að markmiði að auka við markaðshlutdeild. Tækifæri olíufélaganna liggja í því að draga úr kostnaði, t.d. með fækkun bensínstöðva.

Við erum með flestar bensínstöðvar á mann miðað við höfðatölu í hinum iðnvædda heimi og fyrir það eru íslenskir neytendur að borga,“ sagði Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, í samtali við Morgunblaðið. Hugsanlega réttlæta félögin hækkun álagningar nú með tilvísun í samdrátt í eldsneytissölu, að mati Runólfs sem bendir á að umferð hafi dregist saman frá hruni og nýir bílar eru eyðslugrennri en eldri árgerðir.

Fram kemur hjá FÍB að almenna reglan sé að nýir bílar eyði allt að fjórðungi minna eldsneyti en bílar sem voru framleiddir fyrir 2007. „Síðan bætist við að stjórnvöld hafa verið að stórauka skatta á eldsneyti á liðnum árum og fram undan er skattahækkun um áramót,“ segir Runólfur.

Minni umferð réttlætir ekki hækkun Runólfur undirstrikar það mat sitt að minni umferð réttlæti alls ekki hækkun álagningar. Það megi jafnvel sjá ákveðin batamerki.

Í október sl. var akstur 1,4% meiri en á sama tímabili í fyrra skv. tölum Vegagerðarinnar. Það þarf að fara aftur til ársins 2008 til að finna aukningu á sama tímabili. „Samkeppni olíufélaganna í dag er aðallega í tengslum við afslætti.

Stóru olíufélögin þrjú hafa fengið miklar afskriftir skulda sem stofnað var til vegna sjálftöku og lélegs rekstrar fyrri eigenda. Álagningin hér á landi er mjög há. Strangt aðhald samtaka eins og FÍB með verðlagningu á olíumarkaðnum er mikilvægt þar sem samkeppnisaðhaldið er ófullnægjandi á íslenska fákeppnismarkaðnum,“ segir Runólfur./////////Þetta eru staðreyndir og við látum bjóða okkur þetta ,við Íslendingar eru ekki i lagi að gera ekki uppsteytt þarna,þetta er orðin það stór póstur fyrir fjölskyldur og okkar reyndar öll því þetta hækkar allt annað að við verum að fá á þessu skoðun og það strax og engin er það undaslegin að við viljum geta keyrt bílinn okkar sem þurfum!!Ríkisstjórin græðir á þessu öllu,en það fer ekki i vegakerfið okkar//Halli gamli


mbl.is Álagningin sögð aldrei meiri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband