Nú er tækifærið//Þessar hamfarir linna ekki þrátt fyrir að þetta frestist,vegna ósakomulags!!!!


Mynd 638243Nú er tækifærið“ Innlent | mbl.is | 21.12.2012 | 17:24 Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, og Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG, skora á þingmenn og forystu beggja stjórnarflokka til að sameinast og leggja fram frumvarp um fiskveiðistjórnun fram hið fyrsta.

Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu frá þeim. Þær segja að frumvarpið sem nú bíði sé vissulega málamiðlun, en það sé stórt skref í rétta átt.

Yfirlýsingin er svohljóðandi: „Nú þegar nýtt frumvarp um fiskveiðistjórnun, sem verið hefur eitt stærsta deilumál þjóðarinnar, bíður framlagningar í þinginu er brýnt að niðurstaða náist sem fullnægi grundvallarsjónarmiðum um þjóðareign auðlindarinnar, jafnræði, nýliðunarmöguleika og bætt búsetuskilyrði í landinu

. Undan hótunum og hræðsluáróðri sem dunið hefur á þjóðinni frá hagsmunasamtökum útvegsmanna geta rétt kjörin stjórnvöld ekki látið. Þau mega heldur ekki missa kjarkinn, nú þegar stundin er runnin upp til þess að gera varanlegar breytingar til bóta, í átt til frekari opnunar á óréttlátu kerfi.

Með frumvarpinu eru stigin skref til þess að opna það lokaða kvótakerfi sem nú er við lýði með því að taka upp tímabundin nýtingarleyfi í anda tillagna að nýju auðlindaákvæði stjórnarskrár.

Með opnum og vaxandi leigumarkaði með aflaheimildir, sem óháður er núverandi kvótahöfum, losna kvótalitlar og kvótalausar útgerðir undan því leiguliðakerfi sem verið hefur við lýði og eiga þess kost að leigja til sín aflaheimildir á grundvelli frjálsra, opinna tilboða.

Er þar með komið til móts við sjálfsagða kröfu um jafnræði, atvinnufrelsi og aukna nýliðun. Frumvarpið sem nú bíður er vissulega málamiðlun, en það er stórt skref í rétta átt – skref sem við teljum rétt að stíga, fremur en una við óbreytt ástand.

Eftir þriggja ára samráð með aðilum í sjávarútvegi, launþegahreyfingunni og öðrum þeim sem að greininni koma, er það skylda Alþingis og ríkisstjórnar að leiða málið nú til lykta á grundvelli fyrirheita sem stjórnarflokkarnir hafa fengið lýðræðislegt umboð til að hrinda í framkvæmd.

Því skorum við á þingmenn og forystu beggja stjórnarflokka að sameinast um færar leiðir til lausnar á þessu langvarandi deilumáli og leggja frumvarpið fram hið fyrsta.

Afkoma sjávarútvegs er nú með besta móti, hún hækkaði um 26% milli áranna 2010/2011 og hreinn hagnaður var um 60 milljarðar króna á síðasta ári.

Mikið er í húfi fyrir byggðir landsins og þær tugþúsundir Íslendinga sem hafa beina og óbeina lífsafkomu af sjávarútvegi. Nú er tækifærið – óvíst er að það gefist síðar.“////////////////Það er svo að þær 2  hörðustu,konur í stjórnarflokkunum eru alveg á fullu að koma þessu í framkvæmd,kvað sem það kostar!!!það er svo að fara að bylta þessu korteri fyrir kosningar á samkomulags ,sem væri viðunandi fram yfir næstu kosningar í Apríl,þessar konur og auðvitað stór hluti meirihluti Alþingis vill þetta en sennilega eða als ekki meirihluti!!!annars skera þessar blessaðar tvær konur sig úr,með þessar fiskveiðar að eyðileggja þær alveg!!!ekki spurning að það mundi ske,ef þessu öllu yrði framfylgt,manni dettur oft í hug að þessu fólki sé ekki sjáfrátt,als ekki allvega er þær haldnar ofsæki á háu stigi!!!/Halli gamli


mbl.is „Nú er tækifærið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045689

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband