Matthías Máni laus úr einangrun///það gott engin hefur neitt gott af henni????

MatthMynd 651393ías Máni laus úr einangrun Innlent | mbl | 9.1.2013 | 11:53 Matthías Máni Erlingsson, sem strauk af Litla-Hrauni í síðasta mánuði, er laus úr einangrun í fangelsinu, en honum var gert að sæta einangrunarvist í 15 daga í tengslum við strokið. Samkvæmt upplýsingum mbl.is losnaði Matthías í gær.

„Hann var sína 15 daga eins og reglurnar segja til um þegar um strok er að ræða,“ segir Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður fangelsisins Litla-Hrauns, í samtali við mbl.is. Matthías Máni strauk úr fangelsinu 17. desember sl. og hófst umfangsmikil leit að honum í framhaldinu.

Sú leit skilaði engum árangri og var það ekki fyrr en á aðfangadag sem Matthías Máni gaf sig fram á bænum Ásólfsstöðum í Þjórsárdal.

Matthías Máni Erlingsson hefur nú lokið einangrunarsvistinni á Litla-Hrauni. Margrét segir að rannsókn málsins sé í höndum lögreglunnar.

Hún geti ekki tjáð sig um það sem snúi að sjálfu strokinu og hvað hann gerði utan veggja fangelsisins. „Agaviðurlögum vegna stroks hjá okkur er lokið; það er þessi einangrun. Þannig að hann tekur bara þátt í daglegu lífi innan fangelsisins eins og aðrir,“ segir hún.

Færri fangar fara nú út í einu á álagstíma Matthías Máni var að fara til vinnu innan fangelsisins þegar honum tókst að strjúka. Margrét segir að þetta hafi verið á álagstíma þegar allir fara til vinnu eða í skóla og tókst Matthíasi Mána að komast út fyrir innri öryggisgirðingu fangelsins. „Því miður þá er það þannig að skynjarinn á myndavélinni - myndavélin sjálf er í lagi - en skynjarinn sem nemur hreyfingu bilar þarna um morguninn,“ segir Margrét og bætir við að upptaka fari ekki í gang nema að skynjarinn nemi hreyfingu. Í framhaldinu tókst Matthíasi Mána að komast út í gegnum ytri girðinguna.

Margrét Frímannsdóttir er forstöðurmaður Litla-Hrauns. mbl.is/Golli Aðspurð segir Margrét að starfsmenn Litla-Hrauns hafi farið yfir alla verkferla í kjölfar stroksins. „Auðvitað má alltaf finna einhver einföld atriði sem við getum lagað í okkar verkferlum.

En fyrst og síðast þá þurfa þessi öryggistæki okkar að vera í lagi, þ.e. myndavélakerfið og girðingin.“ Að hennar sögn er nauðsynlegt að fjölga útiverkstjórum á álagstímum, þ.e. þegar fangar eru að fara til vinnu, í skóla eða útivist.

Á tímum niðurskurðar sé það hins vegar ekki hægt. „Það sem við gerum einfaldlega til að mæta því er að við breytum aðeins tímaröðuninni þannig að það koma færri út í einu,“ segir Margrét og bætir við að þetta fyrirkomulag hafi nú þegar tekið gildi.

„Svona atburðir verða til þess að við horfum mjög gagnrýnum augum á allt sem við erum að gera.“ Öryggisgirðingin stærsta vandamálið Öryggisgirðingin er stærsta vandamál fangelsisins að Litla-Hrauni að sögn Margrétar.

„Það er í raun meira mál heldur en myndavélakerfið, því það hefur þó verið endurnýjaðar hér myndavélar og búnaður, þó það vanti töluvert upp á að það sé fullkomið.“ Í ár, líkt og í fyrra, fær Litla-Hraun 50 milljóna króna fjárveitingu á fjárlögum. Fjárhæðin verður m.a. notuð til þess að setja upp svokallaðar „anti-climb“ girðingar, eða girðingar sem menn eiga ekki að geta klifrað yfir, í kringum útivistarsvæði. Vonir standa til að framkvæmdir geti hafist í vor

. „Þessar [girðingar] sem við erum með eiga að vera mannheldar. En það hefur náttúrulega sýnt sig, og verið bent á það í nokkur ár að þær eru það ekki.

Menn hafa komist hér yfir girðingu en náðst hinumegin við girðinguna,“ segir Margrét og bætir við að árið 2008 hafi verið skrifuð skýrsla um málið. Það var þó ekki fyrr en á síðasta ári sem skriður komst á málið, þ.e. þegar fjárlaganefnd Alþingis ákvað að setja 50 milljónir í fyrra og aftur í ár til að bæta öryggismál fangelsisins.

„Til að ljúka þessu þannig að við séum komin með sæmilega tryggt öryggi, þá þurfum við svona 60 til 100 milljónir í viðbót,“ segir Margét og bætir við að á fjárlögum 2014 verði farið fram á það. Nauðsynlegt að sinna viðhaldi Margrét segir að svo virðist sem að menn séu að opna augun fyrir nauðsyn þess að viðhalda fangelsisbyggingum.

Það sé ekki nóg að menn tali um öryggisfangelsi heldur verði menn að horfast í augu við þá annamarka sem séu fyrir hendi varðandi öryggisútbúnað og gera úrbætur.

Margrét svarar því neitandi þegar hún er spurð að hvort þörf sé á atburði eins og strok Matthíasar Mána í síðasta mánuði til að fólk átti sig á stöðu mála. „Strokið hlýtur samt að verða til þess að menn sjái alvarleika málsins.“ Litla-Hraun. mbl.is/Árni Sæberg/////////////////þetta er orðið þarft að tala um þessi mál alveg í hreinskilni,en kenna ekki bara föngunum um!!það er ekki rétt,það er svo að úti er víða sagt að fangelsin séu mannheld og engin geti strokið,og hér ætti það einnig að vera!!!allt öryggi í lagi en það var ekki!!!við erum eyland og hægt að loka ollum flótta frá landinu,svo það er ekki algengt að menn geri þetta nema að fá sér í nös eða glas,eða bara heimsækja sína!!!og flestir hafa gefið sif fram,og það gerði þessi,við látum bara ekki segja okkur hvað sem er,menn eru með sálir og þurfa rétta meðferð,það hefði þessi þurft,að mínu mati,það var vitað um fjölskylduerjur og þær svæsnar,við erum ekki búin að fá það alt á hreint,en hann hafi hótað þessari konu lífláti mun koma í ljós og það vel kannað,ef marka má það sem sagt var,er hann mjög svo stiltur maður en reiðist illa það eru margir,en hann mun afplána sinn dóm og vonandi verða góður þegn í framhaldinu,en þarna á Hrauninu þarf að taka til hendi og gera mönnum sem þar vinna, að hafa allt í lagi bæði háum og lágum,ég hefði haldið að hittna færi undir þeim,einnig eða finnst ykkur það ekki/Halli gamli


mbl.is Matthías Máni laus úr einangrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jú sammála, stundum eru gerðir glæpamenn úr fólki með því að sýna þeim hroka og lítilsvirðingu, ég veit ekki með þennan unga mann, en aðgát skal höfð í nærveru sálar. Sér í lagi ef menn eru sviptir frelsi sínu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.1.2013 kl. 13:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045688

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband