Ekki skemmtilegt fyrir Jóhönnu//um það fer tvennum sögum,ég segi það auðsýnt,og verðugt!!!

Ekki sStefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur.kemmtilegt fyrir Jóhönnu Innlent | mbl.is | 1.2.2013 | 23:07 „Það er vitanlega ekki skemmtilegt fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, að fá slíkar kannanir á síðasta degi hennar sem formaður Samfylkingarinnar sem sýna lítið fylgi við hennar flokk og óvinsældir ríkisstjórnar hennar og það fjórum árum upp á dag frá því að hún tók við sem forsætisráðherra.

“ Þetta segir Stefanía Óskarsdóttir, lektor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, í samtali við mbl.is um niðurstöður tveggja skoðanakannana sem birtar voru í dag.

Samkvæmt þjóðarpúlsi Capacent er Samfylkingin nú með 16% en könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins 12%. Samkvæmt því hefur Samfylkingin tapað allavega um helmingi fylgis síns frá síðustu þingkosningum en þá fékk flokkurinn um 30% fylgi.

Björt framtíð bætir mjög við sig í báðum könnunum og mælist annars vegar með 19% og hins vegar 16%. Mest af því fylgi kemur væntanlega frá Samfylkingunni að sögn Stefaníu en telur líklegast að það muni skila sér að einhverju leyti aftur til flokksins.

Það fari þó eftir því hvort Samfylkingunni takist að ná vopnum sínum fram að kosningum sem sé verkefni nýs formanns.

„Fólk kann vel að meta Framsóknarflokkinn eftir Icesave-dóminn og það kann að vera að hann nái sér á strik núna þó ég telji persónulega að hann fari ekki hærra en svona 17%.

En það á eftir að koma í ljós,“ segir hún en Framsóknarflokkurinn bætir við sig fylgi í báðum könnunum.

Einu prósenti hjá Capacent, sem væntanlega er gerð að mestu eða öllu leyti fyrir dóm EFTA-dómstólsins í Icesave-málinu, og fer í 14% en fer í 21% í könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins sem gerð var eftir dóminn.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð tapar einnig fylgi líkt og Samfylkingin og mælist með 8% samkvæmt þjóðarpúlsinum en 7% í könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins.

Stefanía segist ekki eiga von á að VG fari lægra en það og að flokkurinn sé kominn niður í kjarnafylgi sitt. Það eigi þó eftir að koma í ljós hvort samkeppni verði um það fylgi sem er mest til vinstri.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist sem fyrr stærsti flokkur landsins með 36% samkvæmt Capasent og 32% samkvæmt könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins sem er á sama róli og í fyrri könnunum

. „Það er ótrúleg seigla í þessu flokkakerfi. Þó fólk sé ekki ánægt með sína menn þá hefur það samt tilhneigingu til að kjósa þá og gefa þeim tækifæri. En það á auðvitað ekki við um alla og þá skapast einhver tímabundin tækifæri fyrir ný framboð,“ segir Stefanía.//////////////////sitt segir hver fræðingurinn um þessa blessaða pólitík,en þessu kona Stefanía er oft mjög svo sannfærandi og gefur manni góð ráð og tilefni til að skoða  það sem hún segir,og ég er sammála henni að mestu,og bara harðari í að þetta með  skoðanir eru kannski ekki alveg marktækar að sinni,þetta fylgi B.F.er ótrúlegt og sýnir okkur óánægju margra og svo auðvitað tengslin við samfylkinguna,en það dugir ekki til,þetta bara eykur óvissuna á hvað tekur við,það er bara spá eins og er,en ekki augsjáanlegt!!en við eigum eftir 2 landsfundi, Framsókn og Sjálfsæðisflokks,og þar verður fylgst mjög vel með,og vonandi eitthvað sem skírir málinn,ég held að það verði ofaná að fólk skoði þetta betur,þá og ekki síst hvað fer fram á Alþingi núna í restina,ekkert sem á liggur,bara stjórnarskráin og Fiskveiðarnar,en ekki bjarga skuldum heimilanna/Halli gamli

 


mbl.is Ekki skemmtilegt fyrir Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Ætli ýms mál vefjist ekki fyrir ýmsum sem fælktir eru í spillingarmál þegar kemu að landsfundum frammarra og sjalla?

Guðjón Sigþór Jensson, 2.2.2013 kl. 23:19

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Sökk bítur sekan segir máltækið ,það er best að allur séu meðvitaðir um það!!!!/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 3.2.2013 kl. 00:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 1045632

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband