Var að lesa þetta á Vísir.is og maður er dolfafallin alveg,er nema von að spilling líðist!!!

17 ára.jÞorbjörn Þórðarson skrifar „Miðað við umfang þrotabúsins er þetta mjög sambærilegt við tímagjald sem aðrar slitastjórnir á landinu hafa verið með," segir Steinunn Guðbjartsdóttir í slitastjórn Glitnis um laun sín, en hún og samstarfsmaður hennar, Páll Eiríksson, hafa greitt sér 842 milljónir króna samtals í þóknun úr þrotabúinu frá maí 2009.

Fimm lífeyrissjóðir sem eru kröfuhafar Glitnis telja að slitastjórn Glitnis með þau Steinunni Pál Eiríksson í fararbroddi hafi ofrukkað kröfuhafa og greitt sér of mikið í laun.

Telja þeir að slitastjórnin hafi oftekið 400 milljónir króna. Um er að ræða Lífeyrissjóð verzlunarmanna, Gildi lífeyrissjóð, Sameinaða lífeyrissjóðinn, Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda og Festa lífeyrissjóð, en Fréttablaðið greindi frá þessu í dag. Lífeyrissjóðirnir hafa sent Héraðsdómi Reykjavíkur bréf þar sem lagðar eru þær forsendur sem sjóðirnir telja eðlilegt að stuðst sé við þegar slitastjórnin reikni sér laun og krefjast þess að þau Páll og Steinunn endurgreiði þrotabúinu mismuninn.

Í fyrstu neitaði slitastjórnin að afhenda lífeyrissjóðunum upplýsingar um kostnað en eftir að þeir hótuðu að fara með málið fyrir dómstóla gaf slitastjórnin eftir og lét þá hafa sundurliðun í september 2012. Þar kom fram að sameiginlegar greiðslur til þeirra tveggja, með útseldri vinnu fulltrúa á þeirra vegum, hafi numið 842 milljónum króna frá maí 2009 og þar til um mitt ár í fyrra, að því er fram kemur í Fréttablaðinu.

Sjóðirnir telja þetta ekki eðlilega þóknun fyrir opinbera sýslunarmenn og telja að þau Steinunn og Páll hafi oftekið sér 383 milljónir króna í þóknanir.

Ofan á þetta bætist vaxtakostnaður og þóknanir síðan þá en samanlagt ætla sjóðirnir að þau hafi oftekið sér yfir 400 milljónir króna. Í bréfi lífeyrissjóðanna fara þeir fram á að dómarinn láti slitastjórnina endurgreiða þrotabúinu hinar ætluðu ofteknu þóknanir.

Er þetta ekki frekar mikill kostnaður, 842 milljónir króna? „Ég held það þurfi að horfa á þetta í samhengi við umfang starfsins og vinnuna sem liggur að baki þessu.

Það sem ég hef séð frá kollegum er talsvert hærra en 39 þúsund á tímann (fyrir vsk.) Tímagjaldið hjá slitastjórn Glitnis er í kringum 33 þúsund á tímann fyrir virðisaukaskatt," segir Steinunn Guðbjartsdóttir í samtali við fréttastofu en það eru 41.085 kr. á tímann með VSK. Núna eru þessir lífeyrissjóðir að saka ykkur um að greiða ykkur allt of mikið í þóknun. Hvernig svararð

u þessum ásökunum? „Ég tel það alrangt hjá þeim. Ég veit ekki hvernig héraðsdómur mun leysa úr þessu, en dómurinn verður bara að taka á því.

Miðað við umfang búsins er þetta mjög sambærilegt við tímagjald sem aðrar slitastjórnir á landinu hafa verið með." Steinunn segir að réttur vettvangur til að koma athugasemdum á framfæri sé á kröfuhafafundum.

Engar slíkar athugasemdir hafi borist á fundum til þessa. Þá segist hún eiginlega aldrei fara í frí. „Vinnuframlagið hefur verið mikið og sumar- og helgarfrí fátíð," segir hún.///////////////////þetta er í einu orði sagt "Spilling" og ekkert annað,við látum ekki fæða okkur í slíku meira!!!ef þetta er það ekki þá hvað??við bara segjum að við tölum um að spilling hafi verið er hún ekki þarna í allri sinni mynd,við mótmælum öll/Halli gamli


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045800

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband