Aldrei fleiri fasteignir á uppboð//og með sama framhaldi,er þetta að aukast mikið,og hvers vegna???


Frá uppboði á fasteign á vegum sýslumanns. Aldrei fleiri fasteignir á uppboð Innlent | mbl | 6.2.2013 | 20:40 Á síðasta ári voru 505 fasteignir seldar nauðungarsölu hjá sýslumanninum í Reykjavík, en árið 2011 voru 384 eignir seldar á nauðungaruppboði.

Aldrei hafa fleiri fasteignir verið seldar á nauðungaruppboði hjá sýslumanninum í Reykjavík en í fyrra. Árið 2010 voru 453 fasteignir seldar, 207 árið 2009, 161 árið 2008 og 137 árið 2007.

Þrjár íbúðir seldar á dag í desember Af einstökum mánuðum á síðasta ári voru tölurnar hæstar í desember, en þá voru 80 fasteignir seldar á nauðungaruppboði. Það lætur nærri að i þeim mánuði hafi þrjár íbúðir verið boðnar upp á dag.

Ástæðan fyrir því að svo margar fasteignir voru seldar á nauðungaruppboði í fyrra er m.a. sú að mörg mál hafa tafist í uppboðsferli síðustu ár vegna óvissu um lagalega stöðu lánanna, en mörg þessara mála lauk með uppboði á síðasta ári þegar lagaleg staða skuldara var orðin skýrari.

Skráðar nauðungarsölubeiðnir hjá sýslumanninum í Reykjavík voru 1.805 frá jan.-okt. á síðasta ári, en voru 2.251 allt árið 2011. Miðað við þessar tölur bendir flest til að nauðungarsölubeiðnum hafi fjölgað á síðasta ári./////////////////eru þetta framfarirnar sem Jóhanna var að guma af á landsfundinum,og Steingrímur V.G. er einnig að guma yfir!!!maður bara spyr er þessu blessuðu fólki sjáfrátt að tala svona og gera ekkert fyrir þetta fólk sem er að missa allt sitt,og sór hluti landsmanna mun gera ef ekkert er gert,og bankarnir eignast þetta allt fyrir lítið og selja svo á fullu,og hvert fer gróðinn til vogunarsjóða eiganda tveggja bankana!!!svo biður þetta fólk þess aað verða kosið aftur á Alþingi!!!!við skulum ekki gefa þeim annað tækifæri,komið mikið meira en nóg!!!!!/Halli gamli


mbl.is Aldrei fleiri fasteignir á uppboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband