Þetta snýst bara um pólitík/Kommarnir taka völdin þarna!!!!!

„Þetta snýst baVigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.ra um pólitík“ Innlent | mbl.is | 6.2.2013 | 11:57 „Ég fordæmi í fyrsta lagi auðvitað þessi afskipti stjórnvalda af þessari lögreglurannsókn sem greinilega teygir sig til fleiri landa. Það er furðulegt að þetta hafi fyrst verið heimilað og síðan skyndilega dregið til baka samkvæmt fyrirskipun innanríkisráðherra.

Ég tel alveg liggja fyrir að þetta er pólitísk ákvörðun.“ segir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, í samtali við mbl.is.

Eins og fjallað hefur verið um krafðist Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, þess að öllu samstarfi íslenskra lögregluyfirvalda við bandarísku alríkislögregluna FBI í ágúst 2011, vegna rannsóknar hér á landi meðal annars vegna mögulegrar árásar á tölvukerfi Stjórnarráðsins, yrði hætt.

Samstarfið mun þá hafa staðið yfir í um tvo mánuði, meðal annars með aðkomu innanríkisráðuneytisins. Var rannsóknin stöðvuð á þeim forsendum að hún félli utan réttarbeiðni sem bandarísku lögreglumennirnir höfðu lagt fram og verið samþykkt af yfirvöldum hér á landi.

Vigdís bendir á að það sé ekki innanríkisráðuneytisins að fjalla um það hvort slíkar rannsóknir falli utan við fyrirliggjandi réttarbeiðnir eða ekki heldur sé það hlutverk ríkilögreglustjóra að sjá um það.

„Það er sjálfstæð stofnun og framkvæmdavaldið getur ekki gripið þarna inn í enda hefur það ekki forsendur til þess að leggja mat á það.“

„Því miður verður ekki betur séð en að þetta sé einfaldlega hluti af því að reyna að halda þessari ríkisstjórn saman, eins og svo margt annað, sama hvað það kostar.

Koma til móts við ákveðna áhangendur Hreyfingarinnar og tryggja þannig að þingmenn flokksins láti ekki að stuðningi sínum við ríkisstjórnina sem eins og allir vita er formlega orðin að minnihlutastjórn. Rétt eins og í stjórnarskrármálinu. Þetta snýst bara um pólitík,“ segir hún./////////Mikið sammála Vigdísi þarna þetta er þræl pólitík og ekkert annað!!!þetta er hvílík skömm að það hálfa væri nóg!!við erum þarna að slá á hendi samvinnu við Bandaríkjamenn um misindismenn og hakka og jafnvel teropista,ég bara sé í gegnum Ögmund sem er svona stemdur!!!! og einnig að hafa  Hreyfinguna  góða!!!!/Halli gamli


mbl.is „Þetta snýst bara um pólitík“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er einhver sérstök ástæða fyrir því að leyfa ríki sem hefur jafnslæma sögu í mannréttindamálum og Bandaríkin að valsa hér um?  Eigum við kannski að bjóða Kínverjum að stunda hér lögreglurannsóknir ef þeim þóknast svo?

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 6.2.2013 kl. 17:05

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Af hveju ekki ef við höfum af þvi gott,bara spyr þig H.T. Bjarnason???

Haraldur Haraldsson, 6.2.2013 kl. 17:47

3 identicon

Ég er ekki sammála þeirri hugsun að tilgangurinn helgi meðalið.  Við eigum ekki að þola óréttlæti bara af því að við kunnum að hagnast á því.

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 6.2.2013 kl. 18:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband