Óeðlilegt að miða við kynningartilboðin//ég fordæmi svona aðferðir,þetta þjónar ekki okkur sem mynnst hafa!!!


Árni Pétur JónssonÓeðlilegt að miða við kynningartilboðin Innlent | mbl.is | 14.2.2013 | 20:09 Árni Pétur Jónsson, forstjóri Iceland, segir að meginástæðan fyrir því að verðlag í Iceland hafi hækkað um 10% frá því í haust sé að þá hafi verslunin verið að opna og þess vegna hafi verslunin boðið kynningartilboð á mörgum vörum.

Hann fullyrðir að verslunin sé eftir sem áður að bjóða lægsta verð á matvörumarkaðiÓeðlilegt að miða við kynningartilboðin Í könnun ASÍ er verð á vörum í dag borið saman við verðkönnun sem gerð var í september.

Samkvæmt könnuninni er mest hækkunin í versluninni Iceland, ríflega 10% og í Krónunni 9%.

Í verslunum 10-11 hefur vörukarfan hækkað um 6,4%, í Hagkaupum um 5,6% og í Bónus um 4,2%. Í Nóatúni og Samkaupsverslununum nemur hækkunin 2-3%.

Í versluninni Víði hefur heildarverð vörukörfunnar hækkað um 1% síðan í haust þrátt fyrir að flestir vöruflokkar aðrir en kjötvörur hafi hækkað nokkuð í verði.

Séu kjötvörur undanskildar úr körfunni nemur hækkunin 4% í Víði. Svipaða sögu er að segja úr Nettó en þar hefur heildarverð körfunnar lækkað síðan í september um 2,8%, séu kjötvörurnar hins vegar undanskildar hefur verð körfunnar hækkað um 2,3%.

„Í september voru við nýbúnir að opna okkar fyrstu verslun og voru að keyra mikið af kynningartilboðum. Við vorum með mjög sterk tilboð sem ég held að allir hafi vitað að við vorum með tímabundin tilboð sem gátu ekki varað lengi.

Að taka þau og bera þau og bera saman við stöðuna núna og segja að það hafi orðið umtalsverð hækkun segir enga sögu,“ segir Árni Pétur. Árni Pétur segir að prósentutölur segir takmarkaða sögu um vöruverð.

Hann segir að Iceland fylgist með verði hjá samkeppnisaðilum og í könnun sem gerð var í þessari viku hafi komið í ljós að af um 1100 vörutegundum hafi tæplega 900 verðið lægstar í Iceland.//////////////það er ekki furða að allt sé í uppnámi með þessar kannanir ef svona er að þeim staðið,þetta er forkastanlegt og bara ber að stoppa ef menn eru settir svona upp við vegg  opinberlega!!!Ég tek ofan fyrir mönnum sem hætta í svona plat skoðunarkönunum!!það er það minsta að ASÍ biðjist afsökunar,og taki mark á því sem þarna er að fara fram,og ekki bara við Iceland heldur hinar verslanir sem ekki vilja taka þátt vegna aðstæðna á ýmsum sviðum gæði og fjölda vöruflokka og þar fram eftir götum,þessu verður að breyta,eða leggja niður/Halli gamli


mbl.is Óeðlilegt að miða við kynningartilboðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Þessi 10% hækkun hjá Iceland er skiljanleg í ljósi tilboðana vegna opnunarinnar, en þessi 9% hækkun hjá krónunni þarf að útskýra betur finnst mér...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 15.2.2013 kl. 06:28

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Sammála þer vinkona mjög,og þakka inlitið,kveðja

Haraldur Haraldsson, 15.2.2013 kl. 12:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045683

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband