Glæsilegur sigur Gunnars/þarna kom í ljós að æfingin og hugurin skapar meistarn!!!

Glæsilegur sGunnar Nelson igur Gunnars Innlent | mbl.is | 16.2.2013 | 21:44 Bardagakappinn Gunnar Nelson vann í kvöld frækinn sigur á Brasilíumanninum Jorge Santiago í UFC en þeir mættust á Wembley Arena í London.

Eftir erfiða fyrstu lotu hafði Gunnar mikla yfirburði í annarri og þriðju lotu og voru dómarar sammála um sigur Gunnars.

Santiago byrjaði bardagann betur og náði góðum höggum á Gunnar í fyrstu lotu.

Í þeirri annarri vaknaði Gunnar hins vegar til lífsins, náið Santiago niður í gólfið og hélt honum þar til loka lotunnar.

Það gjörbreytti bardaganum því Santiago hafði litla sem enga orku eftir í þriðju og síðustu lotunni.

Veitti Gunnar honum þá hvert níðþunga höggið á fætur öðru.

Dómararnir voru sammála um sigur Gunnars, tveir þeirra sögðu hann hafa unnið með 29 stigum gegn 28 og sá þriðji sagði Gunnar hafa unnið með 30 stigum gegn 27./////////////////////Ég er ekki alveg sammála dómurum þarna,fannst Gunnar hafa unnið stærra,kannski meta þeir þetta fyrsta högg Jorge mikið og svo átti Gunnar ekki að slaka á þarna í rest og lofa honum  að berja sig þá,það er það eina sem maður sá af mistökum hans,en sigurinn sætur!!!!(Halli gamli


mbl.is Glæsilegur sigur Gunnars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já þetta er glæsilegur sigur hjá stráknum.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 17.2.2013 kl. 00:20

2 identicon

Já, stigakerfið í þessari íþrótt er nú þannig gert að það eru gefin 10 stig til sigurvegara hverrar lotu, sá sem verður undir í lotunni fær hinsvegar 9 stig eða minna. Einn dómarana hefur klárlega fundist Gunnar hafa unnið allar loturnar á meðan hinum fannst Santiago hafa unnið þá fyrstu, ekkert óeðlilegt við þennan dóm.

Kristinn Þorri Þrastarson (IP-tala skráð) 17.2.2013 kl. 04:42

3 identicon

Þetta var svo flott, og ég og börnin mín vorum svo æst eftir sigurinn að við öskruðum saman "það er kúl að lemja fólk"!!

Við öskraði þetta örugglega 10 sinnum.

Af hverju ver ekki neitt svona gaman til að horfa á þegar ég var krakki? Ahh, jæja það er komin betri tíð.

Jonsi (IP-tala skráð) 17.2.2013 kl. 09:45

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Auðvitað er ekki gaman að sjá menn barða í klessu og það er mjög umdeilt!!!!,en svona er þetta og það er svo með allar íþróttir bjóða hættuni heim og slysum og jafnvel dauða!!!en spenna er þetta,og ég hefi verið ádándi box frá unga aldri enda æfði ég box hjá Ármanni í denn!!!!!/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 17.2.2013 kl. 14:02

5 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Allt dó

marakefi er misjafnt eins og þu veist eflaust Kritinn Þorri!!!!

Haraldur Haraldsson, 18.2.2013 kl. 00:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband