Aldraðir gerðir að blórabögglum//ljót mál og löðurmannlegt,við mótmælum gamlingjar!!!

Aldraðir gerMynd 601404ðir að blórabögglum Innlent | mbl | 20.2.2013 | 12:51 Í janúar síðastliðnum var viðbragðsáætun Landspítans virkjuð í tvígang og sjúkrahúsið sett á óvissustig. Með því afhjúpaðist krísa sem legið hefur í leyni.

Þetta segir segir Pálmi V. Jónsson, yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítalanum. Hann segir aldraða hafa verið gerða að blórabögglum. Hann gagnrýnir málflutning stjórnenda spítalans og segir aldraða hafa verið gerða að blórabögglum í því ástandi sem skapaðist.„Í málflutningi nokkurra forsvarsmanna LSH í fjölmiðlum var látið að því liggja að vandi LSH væ

ri að 100 eldri manneskjur stífluðu sjúkrahúsið,” segir Pálmi. „Með því er verið að gera gamalt fólk að blóraböggli eða hengja bakara fyrir smið þegar hið raunverulega vandamál er niðurskurður um liðlega 20% á undanförnum árum.

Ein birtingarmynd hans er að rúmanýting á góðum dögum á lyflækningadeild er 95- 115%, það er að segja: þegar fáir bíða eftir hjúkrunarheimili og farsóttir og stórslys eru fjarri. Það var of lengi látið í veðri vaka að allt væri öruggt og gott á LSH þegar í raun mátti ekkert út af bregða.

” Pálmi var einn þriggja frummælenda á fundi læknaráðs Landspítalans 15. febrúar síðastliðinn þar sem vandi Landspítalans var ræddur. Hann segir að horfast þurfi í augu við raunveruleikann, þora að ræða opið og af hreinskilni um stöðu mála og horfur til framtíðar.

Eitt vandamálið er úrelt hugsun „Vandamál LSH er niðurskurður fjármagns, gömul hús, gömul tæki en líka úrelt hugsun,” segir Pálmi. „Sú hugsun sem gerir gamalt fólk tortryggilegt á LSH á rætur í hugsun sem hefði verið góð og gild árið 1970.

Þá var húsakostur LSH helmingi yngri og ævilíkur Íslendinga voru tíu árum skemmri en nú. Á þeim tíma hrifsuðu bráðasjúkdómar fólk til sín á góðum aldri.

Margir af sigrum læknisfræðinnar eru fólgnir í því að breyta bráðum sjúkdómum í langvinna, sem fólk lærir að lifa með um árabil.”

Þörf á öldrunarspítala Pálmi bendir á að þörf sé á nýjum húsakosti, þar með talið öldrunarspítala á háskólalóð, nýjum tækjum, en ekki síst nýrri hugsun sem horfir til framtíðar, 2030 fremur en 1970. „Þá munu ævilíkur Íslendinga hafa vaxið um tæp fimm ár til viðbótar.

Opna þarf nú þegar legurými, þannig að meðtaltalsnýting á legudeildum lyflænissviðs verði í kringum 85-90%. Með því býr starfsfólk við eðlilegri starfsskilyrði, gangainnlagnir væru óþekktar og LSH þyrfti ekki að fara í neyðarstöðu, þó að óhjákvæmilegar sveiflur í aðsókn sæust, svo sem með slæmum faröldrum eða hópslysum.“ Gamalt fólk er ekki eldra miðaldra fólk Pálmi segir að hafa þurfi í huga að Landspítalinn væri eina almenna sjúkrahúsið á höfuðborgarsvæðinu.

„Ef hugsað er um eldra fólk með eitt bráðavandamál og svo þörf fyrir endurhæfingu, þá eru þarfir eldra fólks stórlega vanmetnar.

Eldra fólk þarf á að halda heildrænu öldrunarmati sem tekur á öllum viðfangsefnum samtímis og hverfist um greiningu, meðferð og endurhæfingu. Hér kemur hin nýja hugsun inn: Gamalt fólk er ekki eldra miðaldra fólk, fremur en að börn eru lítið fullorðið fólk.” Margt líkt með LSH og Icelandair Pálmi líkir starfsemi LSH við Icelandair.

„Bæði fyrirtækin eru þjónustufyrirtæki þar sem öryggi á að vera í öndvegi. Þau keppa bæði á alþjóðlegum markaði. Sá mannafli, sem LSH vill laða til starfa, hefur sótt sína sérhæfingu erlendis og hefur margvísleg tækifæri þar, ekki aðeins hvað varðar laun, heldur einnig tækjakost og vinnuaðstæður.

Flugfélag tekur sérstaklega á móti þeim sem fljúga oft og býður þeim vildarþjónustu í betri stofu og á sérstöku farrými.

Samkvæmt því ætti eldra fólk með sérstakar þarfir ekki að þurfa að koma endurtekið til að fá úrlausn sinna mála. Það þarf nútímalega nálgun á viðfangsefni þess og þegar nýtt sjúkrahús verður byggt þarf sérstakan öldrunarspítala á háskólalóðinni.”

„Nú, í aðdraganda kosninga, þarf ekki aðeins að ræða um fjármálahrunið, vanda fyrirtækja og heimila heldur einnig heilbrigðisþjónustuna sem hangir á bláþræði. Það á ekki aðeins við um LSH heldur um heilsugæslu og sérfræðiþjónustu í víðasta skilningi.”////////////////Lesið þetta og sjáíð hvernig

er að verða gamall og oft lasburða eldriborgari,þetta eru orð í tíma töluð hjá

þessu öldrunarlæknir!!!og þetta ástand varir á næstunni því ekkert er í

farvatninu til lausnar og nóg húsnæði til yfirgefnir spítalar sem mætti nota,en

öll eigum við þetta eftir engin kemst frá því,nema þeir sem deyja ungir !!og  ef

þetta verður ekki gert hvað þá??en lífeyðisjóðirnir eiga bara að byggja þetta

og svo bara breyta lögum þeirra það  opinbera getur fengið nóg lán þar með

góðum vöxtum,svo og þetta mætti einnig vera í einkageira að mínu áliti,með

sömu daggjöldum,er oft betur rekið!!!en þessi spítalamál í heildina eru í

ólestari mjög!!og þar ber að styrkja og kaupa tæki og ráða fólk, og svo fara að

byggja í áföngum nýtt þarna á staðnum,í áföngum ekki öðruvísi!!!en um sjúka

gamlingjana verður að leysa fljótt!!það strax!!!!/Halli gamli


mbl.is Aldraðir gerðir að blórabögglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband