Sér ekki eftir neinu/þetta hafa menn oft sagt og ekki geta staðið við als ekki!!

Sér ekSteingrímur J. Sigfússon flytur kveðjuræðu sína sem...ki eftir neinu Innlent | mbl | 22.2.2013 | 23:57 „Algerlega hiklaust.

Ég margtók það fram að ég sæi ekki eftir einu einasta augnabliki og allra síst okkar ákvörðun um að fara inn í ríkisstjórn og leggja okkar af mörkum,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, aðspurður hvort hann myndi gera það sama á kjörtímabilinu aftur ef hann gæti

. Steingrímur lætur af formennsku í VG á morgun, laugardag, en hann hefur verið formaður flokksins frá stofnun 1999. Skömmu eftir að hann lauk kveðjuræðu sinni á landsfundi VG í kvöld gaf hann kost á viðtali.

Var auðséð að hann var djúpt snortinn eftir kveðjustundina. Bolir með myndum af Steingrími og Katríni Jakobsdóttur voru til sölu á landsfundinum í gær. Voru þeir með sniði þekktrar myndar af Che Guevara, byltingarleiðtoganum fræga.

Árni Sæberg Skynjaði samkenndina - Hvernig er þér innanbrjósts eftir að hafa haldið kveðjuræðu á landsfundi? „Mér líður bara ákaflega vel. Þetta er kannski auðvitað ákveðinn léttir svona en ég er aðallega ánægður með stemninguna og samkenndina sem ég þóttist skynja úr salnum.

Ég held að þetta sé að ganga bara mjög vel hjá okkur öllum til samans, mér og flokknum.“ - Áttu eftir að sakna þess að vera formaður? „Nei, ég held ekki, sérstaklega vegna þess að ég ætla að halda áfram og vera með og ég er fullur tilhlökkunar að takast á við það að leggja mitt af mörkum í aðeins nýju samhengi.

Ég skynja ekki annað en góðan hug og anda í kringum það. Auðvitað var þetta ákveðin saknaðarstund hjá sumum og maður skynjaði það líka.

En ég held að þetta sé að gera sig mjög vel.“ Fráfarandi og verðandi formenn VG á landsfundi í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg Stefnumálin sem marka sérstöðu VG - Hvernig meturðu sóknarfæri ykkar nú þegar eru rúmlega 60 dagar í kosningar?

„Ég met þau alveg bærileg. Ég hef svo sem aldrei haft tiltakanlega þungar áhyggjur af því að við myndum ekki fá, ja segjum þokkalega kosningu innan gæsalappa. Þ.e.a.s., ef maður horfir til okkar málefnalegu sérstöðu og hvar við erum, sem eini handhafi svona róttækrar vinstri stefnu, umhverfisverndar og kvenfrelsis og annarra hluta sem marka okkar sérstöðu og í pólítík.

Ég veit alveg að það er það margt fólk sem vill slíkar áherslur og að við fáum góða kosningu. Síðan hef ég trú á því að við eigum núna mikil sóknarfæri.

Meðal annars með því að við sýndum það hér að við getum endurnýjað okkar forystu og fengið kynslóðaskipti og glæsilega nýja sveit til að leiða okkur.

Með okkur sem höfum meiri reynslu með í hópnum held ég að það sé einhver besta blanda sem er til og ég held að enginn annar íslenskur stjórnmálaflokkur sé eins vel settur og við í þessum efnum, að eiga efnilegt og yngra forystufólk sem er tilbúið til að taka við keflinu, ungt að árum en samt með reynslu.

Þannig að ég er ákaflega bjartsýnn á það að þetta marki upphafið að viðsnúningi og að við verðum í sókn á næstu vikum og fram að kosningum.“ Framlag VG til stjórnmálaumræðunnar markverðast - Þú ræddir í síðari hluta ræðu þinnar um endurnýjun og að VG væri jafnvel mikilvægasti flokkurinn hvað það varðar?

„Ég held því hiklaust fram að við höfum lagt langmest til málefnalegrar endurnýjunar íslenskra stjórnmála núna undanfarinn einn, einn og hálfan áratug. Við höfum komið á dagskrá og komið inn í umræðuna ýmsum hlutum sem að vantaði dálítið að væri tekist á við í íslenskum stjórnmálum.

Við erum auðvitað þar með okkar áherslur og okkar pólitík en það getur enginn borið á móti því að umræða um umhverfismál, að umræða um kvenfrelsi, um baráttu gegn klámi, vændi og mansali og öðru slíku er öðruvísi í dag og Vinstri græn eiga mestan þátt í því

. Það má nefna fleiri málaflokka til. Þannig að áhrif flokka mælast ekki bara í fylgi og þeim mönnum sem þeir fá inn á þing eða í sveitarstjórnir.

Þau mælast líka í því hvort að þeir nái að setja mark sitt verulega á inntak stjórnmála. Það hafa Vinstri græn svo sannarlega gert. Þegar við bætist svo að við höfum auðvitað skipt sköpum varðandi valdahlutföllin í íslenskum stjórnmálum undanfarin fjögur ár er okkar hlutur stór í þessum efnum.

Ég býð hvaða stjórnmálafræðingi sem er upp á rökræður um það við mig. Ég held því fram að enginn einn flokkur hafi haft meiri áhrif á þróun íslenskra stjórnmála síðastliðin 14-15 ár en við Vinstri græn.“ Öðruvísi ræða en venjulega - Var það tilfinningaþrungið fyrir þig að halda ræðuna og kveðja félagana og heyra svo Maístjörnuna í lokin?

„Já. Maður varð auðvitað dálítið snortinn af þessari stund og það er margt sem flýgur í gegnum hugann. Þetta var allt öðruvísi ræða en ég er vanur að halda sem formaður, eðlilega, ég geymdi auðvitað margt af því sem verður í höndum nýs formanns að tala um og leggja meira línurnar og tala um stjórnmál líðandi stundar og það sem er fram undan í kosningabaráttunni.

Ég fór svona yfir sviðið, fór yfir hlutina og söguna. Þegar maður var að minnast góðra og genginna félaga og annarra slíkra hluta að þá eru heitar tilfinningar í því.

Ég er óskaplega ánægður og þakklátur vini mínum Høgna Hoydal að mæta. Ég vissi að hann þurfti að leggja dálítið á sig til að koma. Við höfum fylgst þétt að í gegnum líklega ein 20 ár eða meira í pólitíkinni og ég hef fengið góðar kveðjur, til dæmis frá Kristinu Halvorsen, mennta- og menningarmálaráðherra Noregs. Við höfum líka verið lengi saman í þessu.

Þannig að maður finnur fyrir því að maður á inni og það er hugsað til manns víða að, meira segja utanlands frá.“ Sér ekki eftir neinu einasta augnabliki Myndirðu gera það sama á kjörtímabilinu ef þú gætir byrjað það upp á nýtt með reynslu síðustu fjögurra ára í farteskinu? „Algerlega hiklaust.

Ég margtók það fram að ég sæi ekki eftir neinu einasta augnabliki og allra síst okkar ákvörðun um að fara inn í ríkisstjórn og leggja okkar af mörkum.

Ég á ætíð eftir að verða stoltur af því. Og ég er sannfærður um að stjórnmálasagan mun skrifast þannig að þetta voru mikilvægir og afdrifaríkir tímar fyrir landið og það sem við lögðum af mörkum skipti sköpum.

Sagan er náttúrulega þegar orðin þannig svo að hún verður ekkert umskrifuð úr þessu. Það er ekki hægt að láta fjögurra ára kafla hverfa úr sögu þjóðarinnar.

Þannig að við eigum orðið okkar sess þar í þeirri merku sögu og ég er bjartsýnn á framhaldið.

Þannig að ég gæti eiginlega ekki verið sáttari á þessum dagi,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, skömmu eftir að hann lauk kveðjuræðu sinni í kvöld./////////////Engum er als varnað ekki einu sinni Steingrími!!! en maður þarf ekki að hæla honum, hann gerir það svo vel sjálfur karlinn,að við því er engu að bæta ,engda við búin að fá flest nóg eða hvað eru ekki fylgi hans og flokksins í algjöru lágamarki um 7% eða svo!!!óvinsælar aðgerðir eru ekki þarna inni sem hann talar um,það eru bara vitlaust gefið og ekkert annað ,"það sem helst hann varast kann varað að koma yfir hann" segir máltækið ,við erum ekki að tala um hann nema pólitíkus ekki sem heimilismann og vin eða hvað það nú heitir,engin að sverta það als ekki!! en þessu ferill í 4 ára er ekki til að guma af það hefur komið inn sem betur fer gott verð fyrir allan okkar útflutning Fiskin og Álið og annað í tæknigeiranum og ferðamennskunni og fl.en forgangröðin er ekki til að að hæla sér af nema síður sé og það er hundurinn grafin að það er allt vitlaust,sem á að vara rétt gefið,við höfum verndað þá smáu og lágt á þá háu eða jafnað tekjurnar segir hann,öfugmæli og ekkert annað Bruðlað men peninga í styrki og flottheita og ferðalög óþörf oft,en er að drepa heilsugæsluna með sparnaði og þrældómi,og engar skuldir greiddar nema í nauðsins,vegna framtakleysis og atvinnuleysis eða er það ekki,við bara sjáum ekkert sem heita framafarir bara afturfarir frá kreppunni!!!svo skal þarna bara hæla sér og kenna Íhaldinu um það eru þau sammála öll þarna á vinstri vængnum!!!enda á það eftir að koma þeim illa í kosningunum/Halli gamli


mbl.is Sér ekki eftir neinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045688

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband